Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Page 36

Heima er bezt - 01.11.2005, Page 36
 Að lokmtm andlitsþvotti. Rannsóknarferð um hverfið og merking umhverfisins. þusti út úr húsum sínum til að bjarga heimilisköttum undan honum. Hann lagði fleiri ketti í einelti en Guðmund Birgi. Flökkugráni var viðloða hverfíð um tveggja ára skeið. Þá hvarf hann í einni af herferðum kattafangara borgarinnar. Eftir það ríkti konungs- dæmi Guðmundar Birgis í götunni. Válegar verur á ferð Það gerðist síöan eitt kvöldið að Guðmundur Birgir kom ekki inn. Daginn eftir var haft samband við Kattholt. Þar var í búri köttur sem fangaður var um nóttina, svartur og hvítur með heljarstóra bjöllu, merkiö haföi dottið af. Þegar komið var á staöinn húkti höfðinginn niðurlútur í búrinu. Hann hafði lent í átökum við meindýraeyði, sem hafði betur. Áður en þetta gerðist var Guðmundur Birgir afar gæfur og allir gátu náð honum. Hann þekkti ekki hrekki heimsins og það var farið að fyrnast yfir viðureign hans við Flökkugrána. í tvo næstu daga á eftir, var hann rúmliggjandi, gekk síðan haltur um tíma. Hann varð styggur við ókunnuga eftir þessa lífsreynslu og lengi aö endurheimta stolt sitt. Fleiri dýr á heimilinu Keli Brandur var gulbröndóttur, stálpaður kettlingur þegar komið var meö hann inn á heimiliö. Guðmundur Birgir brást glaður við þegar komið var með Kela Brand. Mikil vinátta tókst á milli þessara kisustráka og þeir kúröu saman í körfunni, borðuðu saman og fóru í eftirlitsferðir um nágrennið. Labradortíkin Tinna þurfti stundum að dvelja á Guðmundur Birgir leikur sér að gólfmottunni. heimilinu ef eigendur hennar fóru í ferðalag. Guðmundur Birgir fyrirleit Tinnu eins og alla aðra hunda, en Keli Brandur átti það til að leggja sig hjá henni.Til þess aó sýna Tinnu fyrirlitningu sína, sló Guðmundur Birgir hana utanundir þegar hann mætti henni en var með allar klær inni. Tinna tók aldrei á móti og reyndi alltaf að komast hjá vandræðum. Einu sinni var komið með síamskisu á heimilið. Hún náði strax undirtökunum og drottnaði yfir Guðmundi Birgi. Það kom þó stundum fyrir að hann missti þolinmæðina þegar síamslæðan með sinni yfirgengilegu frekju, ætlaði að meina honum að komast að matarskálinni, eða gaf honum kinnhest að því virtist að tilefnislausu. Guðmundur Birgir hafði þann sið að sitja ofan á bakinu á sjónvarpssófanum og þurfti mikið til að hrekja hann þaðan. Hann gat verið uppvöðslusamur þegar komu gestir og átti það til að hundsa öll boð og bönn á heimilinu, stökkva upp á borð og teygja þar úr sér. Ef honum fannst krakkarnir of nærgöngulir krækti hann með einni kló í fötin þeirra og togaði í án þess að meiða. Oftast var þetta nóg til þess að hnoðið með hann hætti, a.m.k. í bili. Þegar Guðmundur Birgir var átta ára flutti fjölskyldan nokkrum götum fjær. Hann var lengi að sætta sig við að eiga ekki lengur heima á gamla staðnum og fyrstu mánuðina á eftir fór hann hvem dag að gamla húsinu. Tveimur árum síðar dó Guðmundur Birgir úr nýrnaveiki, sem er nokkuð algengur sjúkdómur hjá geldum fressköttum. Allir sem umgengust hann söknuðu hans. Þessi köttur hafði mikinn karakter og skildi eftir sig meira tóm en venja er með dýr. ífgtB 468 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.