Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Page 39

Heima er bezt - 01.11.2005, Page 39
leikendurnir að gera sér far um að nefna einhverja skemmtilega og óvænta hluti. Ef t.d. til eru nefndir algengir ferðahlutir, t.d. taska, húfa stafur o. s. frv., má búast við að allt mistakist. „kaldur“ eftir því hvort sá, sem leitar, nálgast hlutinn eða ijarlægist hann. Óhugsandi! Skipagjöf Sá, sem ætlar að gefa öðrum skip, segir við þann sem gjöfína á að hljóta: „Skip mitt er komið að landi." Þá spyr hinn: „Hvað á það að færa?“ „Þrjár yngisstúlkur, vænar og fríðar“, (eða: „Þrjá yngissveina, væna og fríða“, ef stúlka á í hlut). „Hvað heita þær,“ spyr þiggjandinn. Gefandinn hugsar sér nú einhverjar þrjár stúlkur, sem báðir þekkja, og nefnir upphafsstafina í nöfnum þeirra. Þiggjandinn giskar á það í huganum, hvaða stúlkur sé átt við. Síðan segist hann taka eina, spásséra með annarri og kasta þeirri þrióju. Loks er hér ein spurning til þess að koma kunningja sínum í bobba, allt í gamni þó. Gangið til hans og segið með skynsamlegum alvörusvip: „Svaraðu mér nú einlæglega einni samviskuspumingu. Hvort vildir þú heldur vera heimskari en þú sýnist eða sýnast heimskari en þú ert? Ef kunninginn svarar nú: „Ég vildi heldur vera heimskari en ég sýnist,“ þá er rétt að segja við hann: „En góði minn, það er alveg óhugsandi,“ og sjá hvemig honum verður við. Svari hann hins vegar svona: „Ég vil heldur sýnast heimskari en ég er,“ þá er sjálfsagt að gefa sama svarið: „En góði ntinn, það er alveg óhugsandi!“ Svona er hægt að leika á hrekklausan náunga sinn. Dæmi: Gefandinn svarar, þegar þiggjandi spyr um nöfn stúlknanna: „Þær heita G, A, og S.“ Hinn hugsar sig um stundarkorn, en svarar svo: „Ég tek G, spásséra nteð A, en kasta S.“ Gefandinn: „Jæja, þú tekur þá Guddu gömlu í Seli, spássérar með Önnu í Nesi, en kastar henni Siggu Jóns.“ Heitur og kaldur Einn leikandinn fer út og hinir koma sér saman um hvaða hann skuli gera, þegar hann kemur inn, t.d. opna gluggann, bjóða Jóni köku, slökkva Ijósið, o. s. frv. Þegar sá, sent framkvæma á verkið, er langt frá réttum stað, kalla hinir til hans: „Þú ert kaldur.“ Nálgist hann staðinn, kalla þeir: „Þú ert að hitna,“ „þú hitnar nteir og meir,“ og „þú ert heitur,“ þegar hann er á réttum stað. Og þegar hann gerir það rétta, er kallað: „Þú ert sjóbullandi,“ eða eitthvað álíka. Stundum hefur einn úr hópnum trumbu eða pott, sem hann ber laust, þegar „kalt“ er, en herðir sig og hantrar því fastar, þvi rneir sem hitinn eykst. Líka má fela einhvern hlut og hrópa síðan „heitur“ og Huglestur Einn leikenda fer út úr herberginu. Stjórnandi leiksins leggur einhverja þrjá hluti í röð. Síðan biður hann einhvem viðstaddan að snerta einn hlutinn og segir, að sá, sem úti er, muni geta séð það hvaða hlutur hafi verið snertur. Hann kallar síðan á töframanninn, sem er mjög alvarlegur, gerir dularfullar hreyfmgar yfir hlutunum og bendir loks á þann sem snertur hafði verið og reynist það rétt. Aðferð: Stjórnandinn gefur töframanninum upplýsingar, þegar hann kallar á hann inn. Byrji hann á orði, sem hefst á G, veit töframaður að hann á að benda á þann hlut, sem fremstur stendur á borðinu, t.d.: „Gerðu svo vel,“ eða: „Gakktu í bæinn!“ Sé byrjað á stafnum Þ, er átt við hlutinn í miðjunni, t.d.: „Þetta er í lagi,“ eða: „Þá er það búið.“ Sé það stafurinn E, er átt við þann, sem Qærstur er, t.d.: „Ertu tilbúinn,“ o. s. frv. Ragnar Jóhannesson tók saman. Heima er bezt 471

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.