Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Blaðsíða 41

Heima er bezt - 01.11.2005, Blaðsíða 41
hún væri dáin. Henni vor þá veittar nábjargir og hún lögð á líkfjalir og breidd yfir hana rekkjuvoð úr vaðmáli. Hún vissi af þessu öllu og heyrði allt, sem talað var. Þannig heyrði hún fólkið í baðstofúnni tala um það að hún væri dáin og þegar hríðinni stytti upp yrði að fara til prestsins á Þingvöllum og tilkynna honum dauðsfallið. Hann mundi svo tilkynna þetta föður hinnar dánu að Utskálum. Hún varð meira hissa en hrædd, því henni fannst að hún hefði fulla meðvitund. En hvemig sem hún reyndi að tala og hreyfa sig, var henni það algerlega ómögulegt. Hún var alveg máttlaus. En þrátt fyrir þetta lifði í brjósti hennar sterk von um það að hún hlyti að geta talað og hreyft sig, þó seinna yrði. Henni þótti þó fyrir því, þegar fólkið í baðstofunni hætti að tala um andlát hennar og fór að tala um annað. Hún hélt þá að enginn mundi taka eftir því ef hún skyldi geta hreyft sig. Lítið stúlkubam, 5 eða 6 ára, var inni í baðstofunni og var að leika sér þar nálægt sem líkfjalirnar voru. Rekkjuvoðin, sem breidd var yfir líkama ömmu minnar, náði ekki alveg yfir fætur hennar, svo að tæmar voru berar. Þá segir bamið allt í einu: „Mamma! Stóra táin á henni Gunnu hreyfist!“ Móðirin sagði þá: „Vertu ekki að þessari vitleysu barn, það getur ekki átt sé stað.“ Eftir nokkra stund segir barnið aftur: „Komdu mamma og sjáðu. Hún hreyfist víst, stóra táin á henni Gunnu.“ Þarf nú ekki að hafa fleiri orð um þetta. Amma mín lifnaði við og komst hátt á tíræðisaldur. Aldrei sagði hún okkur svo sögu, að hún drægi ekki af henni holla fræðslu um háttsemi manna og reyndi að festa í brjóstum okkar andúð á hinu illa. Dró hún enga dul á það að í heiminum væm til tvö öfl, gott og illt, sem ætíð ættu í deilum. Þess vegna bæri að fylgja hinu góða, taka aldrei neitt frá öðmm og spilla engu fyrir þeim, segja aldrei ósatt og gera aldrei á hluta annarra og temja sér að hafa hemil á ástríðum og reiðinni. Hún mætti aldrei leiða okkur til haturs. Bað hún okkur að gera það fyrir sig og bregðast því ekki, þar sem hún vissi að við vorum bráðlynd, að drekka einn bolla af fersku vatni, áður en við svöruðum eða hefðumst að, gegn þeim er misbauð okkur. Mundi þá öldurót hugans lægja. Þó yrðum við að hafa það hugfast að okkur bæri að hrinda af okkur ranglæti og ódrengskap, með hugrekki og dugnaði. Heigulskapur væri ávallt fyrirlitlegur og væri allt annað en góð hegðun. í dómum um aðra menn ættum við aldrei að fara eftir annarra áliti. Við ættum sjálf að rannsaka réttmæti þeirra og fella að því búnu dóminn. Best væri þó að láta umtal og sögusagnir um aðra menn algerlega afskiptalausar. Okkur bæri að minnast þess hve erfitt væri oft að verjast falli og hve torvelt væri að dæma um hrösun annarra manna. Til þess að vera dómbær um slíkt, þyrftum við að þekkja hæfileika viðkomandi manna. Þannig fylgdi miklum gáfum miklar ástríður og mikið fjör, sem erfítt væri að ráða við og afburða skapfestu þyrfti til að sigrast á. Jafnframt því að leggja fyrir okkur lífsreglurnar og kenna okkur sálma og bænir og ýmis konar spakmæli og málshætti, lagði hún áherslu á það að æfa næmi okkar og athyglisgáfu. Þegar við sátum hjá henni í rökkrinu á kvöldin, hafði hún gaman af því að reyna nærni okkar á þann hátt að kenna okkur vísur og þulur, sem erfitt var að læra, og láta okkur keppa um það hvert okkar systkinanna yrði fljótast að nema þær. Fylgdu þá oftast smásögur um það hvemig vísumar urðu til. Þannig sagði hún okkur sögu af manni, sem var smiður, en nefndi öll smíðatólin sín urga og kallaði smíðisgripina því nafni líka og því hlaut hann sjálfur nafnið urgur. Varð þá til þessi vísa, sem hún lét okkur glíma við að læra: Borar urgur urg í urg argur, kargur meður sarg, urgur fór að Jjörga urg, fargast urgur garps við arg. Þá sagði hún okkur einnig ffá því að hagyrðingur hefði heimsótt prest, sem einnig var hagyrtur. Presturinn spurði hann frétta. Gesturinn hafði þá búið til vísu, sem hann ætlaðist til að prestur ætti erfítt með að læra og muna, er hljóðaði svo: Eg hlaut að stauta blauta braut, bikkjan skrykkjótt nokkuð gekk. Hún þaut og hnaut, ég hraut í laut, hnykk með rykk í skrokkinnfékk. Eg hef tekið þessi tvö dæmi og valið þau úr mörgum, til að sýna hvernig hún æfði næmi okkar. En auk þessa flýttum við okkur til hennar ef vanda bar að höndum okkar bamanna, og ávallt var hún jafn fus til þess að reyna að leysa úr vandræðunum, jafha ágreining og leiða hug okkar á réttar brautir. Þannig man ég það alla ævi, þegar ég frostaveturinn mikla (1881) kom inn í baðstofuna frá því að gegna gripum, kjökrandi af kulda, er hún rétti mér svonefnda lambhúshettu úr þeli, sem hún sjálf hafði prjónað og þæft og gaf mér. Hún hlífði hálsi, enni, höku og eymm, og eftir það þoli ég kuldann vel. Þetta, sem nú hefúr sagt verið, snertir áhuga hennar fýrir uppeldi okkar systkinanna. Verður nú drepið á þá hlið, sem snýr að umgengni hennar í ellinni við eldra fólk. Þegar ég var 14 ára gamall, þóttist ég orðinn mikill maður og fær í flestan sjó. Mætti ég þá eitt sinn ömmu minni úti á túni og sagði við hana í gamni: „Nú get ég sýnt þér, amma mín, glímubragðið, sem ég skellti honum Leifa á.“ Hún tók þessu vel, en um leið og ég ætlaði að sýna henni bragðið, brá svo við að hún felldi mig á augabragði. Hló hún þá og sagði að ég þyrfti líka að kunna snarræði og viðbragðsflýti. Var hún þá nærri áttræð. Er menntamenn bar að garði, spurðu þeir strax eftir Guðrúnu Sæmundsdóttur. Kom hún þá ofan af baðstofuloftinu til fundar við þá, glettnisleg og brosandi og kát og glaðleg. Byrjuðu þá strax glaðværar og fjömgar samræður. Heimaerbezt 473
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.