Heima er bezt - 01.11.2005, Blaðsíða 51
Sigríður Jónsdóttir,
föðuramma Grétu.
Ingólfur Magnússon.
Stór-Hólmur í Leiru.
eftir aðalmáltíðinni, stundum var sagógrjónagrautur með
kanil og sykri, hrísgrjónagrautur og búðingar.“
Búðarferðir fyrir ömmu
„Á þessum árum voru nokkrar búðir í Keflavík. Eg
man eftir Kaupfélagi Suðurnesja, Ingimundarbúð,
Þorsteinsbúð við Hafnargötuna, sem verslaði með fatnað
og álnavöru, svo var verslun Kristínar og ein búð enn,
sem ég man ekki hvað hét. Þá voru tvö bakarí í Keflavík.
Annað á Hafnargötunni, hitt á Vatnsnesveginum. Allt var
þetta nokkuð miðsvæðis í bænum. Á þessum tíma var
ekki komin nein byggð upp í heiðina eins og núna er.
Ég var ekki há í loftinu þegar amma sendi mig í
búðimar. Líklega ekki nema fimm ára. Amma átti erfitt
með að ganga og hún var farin að sjá illa. Ég var látin
fara með litla peningabuddu sem hafði að geyma peninga
fyrir því sem ég átti að kaupa og skrifaðan miða sem ég
átti að fá búðarfólkinu. Fyrst var
mjólkin sett í brúsa en síðan voru
það flöskurnar. Oft þurfti ég að
fara tvær ferðir eftir mjólkinni því
ég gat ekki borið nema lítið í einu.
Síðan fór ég í nýlenduvörubúð
með peningabudduna og skrifaða
miöann. Það var erfíðast að fara í
fiskbúðina, fiskurinn var þræddur
upp á vír en ég var svo stutt að ég
átti í vandræðum með að draga
hann ekki í götuna. Seinna var
farið að pakka fískinum í dagblöð,
það var miklu betra.
Bakaríið hafði sérstakt að-
dráttarafl, með lykt af vínar-
brauðum, sem blandaðist saman
við aðra góða lykt af brauðmeti.
Það voru vínarbrauðin sem mér
þóttu óskaplega góð. Stundum fékk
Halldóra
Bjarnadóttir
ásamt móður
sinni Sigríði
Kjartansdóttur.
Sogablettur 9.
Magnús
Grímsson
afi Grétu í
föðurætt.
Heima er bezt 483