Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Page 56

Heima er bezt - 01.11.2005, Page 56
Ég hef unnið á nokkrum stöðum í Reykjavík, ég byrjaði í Alþýðubrauðgerðinni, síðan vann ég við Sundhöllina í Reykjavík. Eitt sumarið fór ég í kaupavinnu vestur í Garpsdal við Gilsfjörð, mest til þess að vera úti. Það var ágætt að vera þar. I mörg ár vann ég á vöggustofu en það gat verið erfitt að skilja við börnin sem maður var búin að vera lengi með í fanginu. Þegar bam er langdvölum á vöggustofu er hætt við að einhverjir erfiðleikar séu hjá foreldrum þess. Á Hrafnistu vann ég nokkuð lengi, það var góður tími. Þar eignaðist ég góðar vinkonur, stelpur sem unnu með mér eða á nærliggjandi göngum. Margt af vistfólkinu var skemmtilegt og fræðandi að kynnast því. Eftir langa ævi hefur fólk frá mörgu að segja og svo sannarlega er það þroskandi fyrir þá sem yngri eru að umgangast gamla fólkið. Systkinin Halldóra og Kjartan. sem ég kom þangað. Veðrið var með eindæmum gott, logn og glampandi sól.“ Að komast í tölu fullorðinna „Ég var fermd frá Laugarneskirkju. Þá var Langholtskirkja í byggingu. Séra Árelíus fermdi mig en við voru þrjátíu sem fermdust saman. Á eftir var veislukaffi heima í Skipasundinu og nánustu vinum og ættingjum boðið. Pabbi gaf mér mjög vandað úr og ég fékk ýmislegt annað í fermingargjöf. Það sumar var ég hjá prestshjónunum á Utskálum í Garði. Þegar Halldóra, tostra mín, gat ekki lengur verið ein á daginn vegna öldrunar og lasleika, en hún hafði brotnað illa, tók ég þann kost að vera heima hjá henni og hlúa að henni í ellinni. Hún átti það svo sannarlega skilið af mér, hún, sem gekk mér í móðurstað, en hún var líka eins og amma mín. Ég var yfír Halldóru nótt og dag í sex ár eða þar til yfír lauk. Hún fékk þá ósk uppfyllta að geta verið heima og þurfa ekki að fara á öldrunardeild. Ég er búin að vinna í húsum hjá öldruðu fólki núna síðustu 17 árin. Mér fellur þessi vinna vel þó að kaupið mætti vera hærra. Það er mikill fróðleikur sem margt af þessu fólki hefur miðlað mér og hreint ótrúlegt hvað margir hafa áorkað í lífínu. Síðasta myndin sem tekin var af Halldóru Þegar ég var fímmtán ára fór ég á Húsmæðraskólann á Laugarvatni. Ég var langyngsti nemandinn en það var gaman á Laugarvatni og veturinn of fljótur að líða. Ég sé ekki eftir því að hafa farið þangað því að þar lærði ég mikið af þeim störfum sem konur þurftu að kunna. Mér fínnst það ekki rétt stefna að húsmæðraskólarnir hafa svo til verið lagðir niður en auðvitað þurfti að breyta einhverju í kennsluháttum eftir því sem tímarnir breytast. Ég saumaði mikið út eins og hvítsaumsdúk, annan dúk með flatsaum og mislöngum sporum og síðast en ekki síst svartsaumsdúk. Það var óskapleg vinna á þessum dúkum. Einnig var kenndur fatasaumur og talsvert saumað af barnafatnaði. Matreiðsla og bakstur höfðu veglegan sess í námsskránni og þrif og þvottar einnig. í þessum skóla var ekki kenndur vefnaður og Halldóru þótti það ómögulegt að ég fengi ekki að læra að vefa. Ég fór því seinna á námskeið í vefnaði á Húsmæðraskólann á Löngumýri í Skagafírði. Það var líka góður tími. Ég hef oft verið spurð að því af hverju ég hafí ekki gift mig og eignast böm. Því er til að svara að ég kynntist ekki neinum rnanni sem mig langaði til að eiga. En litlu frænkurnar og frændurnir hafa veitt mér mikla ánægju.“ Halldóra fóstra mín „Eftir að Halldóra fóstra mín varð rúmliggjandi ákvað ég að hugsa um hana heima svo að hún þyrfti ekki að vera á hjúkrunarheimili. Það hafa margir sagt við mig að ég hafi lengt líf hennar með því. Það má segja að þá fyrst hafí hún haft tíma til þess að lesa, en lestur góðra bóka hafði alltaf verið hennar áhugamál. Halldóra var fróð kona og afburða dugleg. Þegar hún var á þrítugsaldri fór hún til Kaupmannahafnar að læra hjúkrun. Hún var langt komin í prófunum og búin að fá næluna, en átti eitthvað eftir í námi, þegar hún veikist og varð að fara heim til íslands. 488 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.