Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Side 58

Heima er bezt - 01.11.2005, Side 58
 , ^ Örn H. Bjarnason: vjnréH ■ V Iðufundur / apríl 1262 Aðdraganda Iðufundar má rekja til þess að Þorvaróur Þórarinsson lét drepa Þorgils skarða á Hrafnagili árið 1258. Það var talin fólskuleg aðför og á líkinu fundust 22 sár, þar af sjö blæðandi. Sighvatur Böðvarsson (1230-1266) á Stað á Snæfellsnesi var bróðir Þorgils og vildi hann hefna hans. Ferð hans aó Iðu 1262 var þó fyrst og fremst farin til að reyna að ná sáttum og höfðu þeir Þorvarður mælt sér mót að Laugarási við Iðu, 3. apríl. Áður hafði, fyrir milligöngu Vigfúsar Gunnsteinssonar, sem sat á Sauðafelli, og Sturlu Þórðarsonar, borist sáttarboð frá Þorvarði. Þeir Vigfús og Þorvarður höfðu hist að Keldum á Rangárvöllum um veturinn. En snúum okkur að ferð Sighvatar frá Stað. Við vitum að hann kemur við í Reykholti í Borgarfírði. Sturlu Þórðarson, föðurbróður sinn, hittir hann við Hallbjamarvörður nálægt Brunnum. Þaðan fer hann um Klukkuskarð niður í Laugardal. Úr Laugardal fer hann í Skálholt og að Laugarási. Viðfangsefni mitt er aðallega að reyna að finna líklegustu leiðina milli þessara staða. Fyrst verður manni á að spyrja hvers vegna hann velur einmitt þennan tíma árs til fararinnar? Til þess geta legið ýmsar ástæður. Ein er sú að ferðir um Snæfellsnes og Mýrasýslu voru oft erfíðar að sumarlagi. Gerðu það mýrarnar. Áður en frost var farið úr jörðu var hins vegar víða hægt að fara nokkuð beint af augum. Þetta var kallað að fara vetrarveg. Um vegi þama fyrir vestan segir Kölund á einum stað: “Allar þessar sveitir hafa frá öndverðu verið illræmdar fyrir afleita vegi og fram til síðustu tíma varð naumast farið með hesta nema meðfram sjó, eftir árbökkum eða þá upp undir fjöllum...” Eg hef áður lýst ferð frá Stað á Ölduhrygg í Reykholt og mun þess vegna sleppa því hér. Þó má geta þess að Sighvatur hefur væntanlega farið niður að Straumfirði og um Stakkahamarsljöru og Hausthúsaíjöru að Snorrastöðum. Síðan meðfram tjöllunum yfir Hítará og Langá og þaðan sem leið lá í Reykholt. Frá Reykholti í Laugardal í Reykholti réðust þeir í för með honum Hallvarður gullskór og Egill Sölmundarson. Þeir fara væntanlega upp hjá Rauðsgili og um Okveg að Hailbjarnarvörðum. Þar koma á móti þeim Sturla og Vigfús. í Sturlungu segir að þeir Vigfús, Egill og Hallvarður fari til Þingvalla, en Sighvatur og Sturia “riðu suður til Laugardalsskarða.” Hér er átt við Klukkuskarð, en á þá leið er farið suður frá Kerlingu undir Skjaldbreið inn Langadal í skarðið sjálft. Þaðan innan við Hrossabrún og um Fagradal niður að Hjálmsstöðum í Laugardal. Ekki er hægt að fullyrða hvaða leið Sighvatur og Sturla fara að Kerlingu. Vera má að þeir hafi farið Skessubásaveg fyrir norðan og austan Skjaldbreið. Eins geta þeir hafa tarið hjá Gatfelli og þar á Eyfiróingaveg að Kerlingu eða um Kluftir á Eyfirðingaveg. Samt er eins og lesa megi út úr frásögninni, að þeir haft skilið við Oft hef ég hent Sturlungu út í horn og heitið því að líta aldrei framar í þá nafnasúpu. Svo áður en ég veit af er ég kominn með hana aftur mér í hönd. Það er engu líkara en að þann sem einu sinni hefurorðið henni handgenginn, láti hún seint alveg í friði. Fyrir þann sem vill skoða gamlar reiðleiðir er hún auðvitað hrein náma, enda spannar athafnasvið hennar nánast allt landið. í þessari grein 490 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.