Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Page 59

Heima er bezt - 01.11.2005, Page 59
þá sem fóru til Þingvalla við Hallbjarnarvörður. Sé það rétt þá hafa þeir farið Skessubásaveg, en hann sveigir af Kaldadalsvegi og liggur austur með Hrúðurkörlum og norðan Skjaldbreiðarhrauns. Síðan heldur frásögnin áfranr: „Tók þá veður að þykkna og gerói á drífu og þvínæst ijúk; gerðist þá færð íll. Lögðust þá fyrir bæði menn og hestar af óveðri. Þeir lágu úti um nóttina í skörðunum en veður rauf upp í mót degi. Fóru þeir þá suður af heiðinni og voru drottinsdag í Laugardal, en riðu mánudag í Skálholt.“ Sjálfsagt hefur leiðin um Klukkuskarð ætíð eitthvað verið farin milli Borgarijarðar og uppsveita Arnessýslu. Þess er getið í Sturlungu að árið 1242 ríður Þórður kakali “suður um heiði Skarðaleið til Laugardals þar til hann kom í Tungu til bús Gissurar.” Þarna fer Þórður um Klukkuskarð. Ekki er þessi leið þó gallalaus, því að hjá hluta hennar getur reynst ertltt að komast í vatn og eins er þarna alllangt milli byggða. Úr Laugardal í Skálholt Ekki er ósennilegt að úr Laugardal hafi þeir farið um Reykjavað yfir Brúará, en það er skammt frá Syðri- Reykjum í Biskupstungum. Sveinn Pálsson minnist á þetta vað í Ferðabók sinni og í Sýslu- og sóknalýsingu frá árinu 1840 er líka sagt frá því. Þar segir: „Úr Torfastaðasókn er ýmist farið yfir Brúará til Miðdalssóknar á áðumefndu Miklaholtsnesvaði eður hjá Syðrireykjum og þegar vöxtur er í ánni verður að fara yfír hana á trébrú, sem er á henni uppi í Úthlíðarsókn." Þess má geta að Brúará er ein af vatnsmestu bergvatnsám á landinu. Á gömlu herforingjaráðskorti má sjá aó leiðin frá Syðri- Reykjum hefur legið meðfram Hveralæk á leið sem lá ofan frá Úthlíð, hjá Miðhúsum og Brekku um Tjarnarheiði og hjá Torfastöðum í Biskupstungum í Skálholt. Komið var á þessa leið fyrir sunnan Tjarnartjörn. Osennilegt er að þeir hafí farió á Miklaholtsnesvaði, en það mun hafa verið hjá Böðmóðsstöðum. Það vað var talið slæmt vegna dýpis og straums. Hafi þeir engu að síður farið þar yfír Brúará, þá hafa þeir komið hjá Miklaholti og á ofangreinda leið hjá Torfastöðum. Geta má þess að Brúará var ekki reið nema þegar lítið var í ánni, vegna þess hvað hún gat verið vatnsmikil og straumþung. Á öðrum stað í Sturlungu er verið að ræða um ferð Auðuns kolls í Skálholt. Sagt er að hann hafi hlaupið Lyngdalsheiði þvert til Lyngdals og austur fyrir ofan Svínavatn. Á Þórustöðum fær hann hest og ríður til Eskidalsvaðs. Brúará var þá svo mikil að hann varð að synda yfir og hljóp hann síðan heim í Skálholt. Kannski er þetta með vatnsmagnið í ánum skýringin á því, hvers vegna Sighvatur og Þorvarður völdu þennan árstíma til fundarins. I byrjun apríl hafa árnar væntanlega verið tiltölulega vatnslitlar, sérstaklega jökulárnar. Á einum stað í Njáls sögu segir frá ferð Þorgeirs skorargeirs. Þar segir: “riðu síðan allir saman til þess er þeir komu til Reykja í Biskupstungu.” Og aðeins seinna: “Riðu þeir þá vestur yfír Brúará.” Þarna hafa þeir greinilega farið um Reykjavað. En aftur að ferð Sighvatar. Ekki tók Sigvarður Skálholtsbiskup vel á móti þeim Sighvati: “Þótti honum þeir draga flokka á staðinn.” Þeir fengu ekkert hey hjá honum og engan beina. Neitaði hann líka með öllu að vera viðstaddur fundinn við Iðu. Fundurinn við iðu Þorsteinn Skeggjason og Jón Kárin báru þær fréttir í Skálholt að Þorvarður væri kominn til Iðu og fóru þeir Sighvatur þá þangað. Hófust nú miklar samningaumræður, sem enduðu m.a. með því að “Þorvarður skyldi gjalda Sighvati sex tugi hundraða; skyldi vera þriðjungur í gulli og brenndu silfri, annar í gripum sæmilegum og dugandi löndum, hinn þriðji í þeim gripum er ekki væri minna en tíu aura verður.” Jón usti sem sakaður var um víg Þorgils, skyldi fara utan og aldrei koma aftur til landsins. Þorvarður var hins vegar ekki gerður landrækur. Gaf hann Sighvati silfurker, skarlatskyrtil og fmgurgull. Eftir fundinn fór Þorvaróur austur yfir ár en Sighvatur var um nóttina í Skálholti. Hann var þá hestlaus og falaðist eftir hesti hjá biskupi, en fékk synjun. Hann keypti þá hest af Katli presti. Síðan segir: “Voru þeir Sighvatur þar um daginn og átu þar náttverð þrír; lét biskup gefa þeim að drekka. Reið Sighvatur út til heiðar um kvöldið og varð fátt að kveðjum með þeim biskupi, en hann kom heim til Staðar föstudaginn langa.” Ferðin heim Ekki er vitað hvaða leið Sighvatur hefur farið heim, en ekki er ósennilegt að hann hafi farið svipaða leið og hann kom. Hann leggur af stað frá Skálholti að kvöldi 4. apríl og er kominn heim að Stað 7. apríl. Dagleiðir hafa því greinilega verið mjög langar og það er ekki eins og maðurinn hafi verið vel ríðandi með þennan eina hest frá Katli presti. Sighvatur varð ekki langlífur. Hann andaðist úr sótt suður við Rauðahaf árið 1266 og var þá í Jórsalaferð. Heima er bezt 491

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.