Heima er bezt - 01.11.2005, Blaðsíða 59
þá sem fóru til Þingvalla við Hallbjarnarvörður. Sé það
rétt þá hafa þeir farið Skessubásaveg, en hann sveigir af
Kaldadalsvegi og liggur austur með Hrúðurkörlum og
norðan Skjaldbreiðarhrauns.
Síðan heldur frásögnin áfranr:
„Tók þá veður að þykkna og gerói á drífu og þvínæst
ijúk; gerðist þá færð íll. Lögðust þá fyrir bæði menn og
hestar af óveðri. Þeir lágu úti um nóttina í skörðunum en
veður rauf upp í mót degi. Fóru þeir þá suður af heiðinni
og voru drottinsdag í Laugardal, en riðu mánudag í
Skálholt.“
Sjálfsagt hefur leiðin um Klukkuskarð ætíð eitthvað
verið farin milli Borgarijarðar og uppsveita Arnessýslu.
Þess er getið í Sturlungu að árið 1242 ríður Þórður
kakali “suður um heiði Skarðaleið til Laugardals þar til
hann kom í Tungu til bús Gissurar.” Þarna fer Þórður um
Klukkuskarð. Ekki er þessi leið þó gallalaus, því að hjá
hluta hennar getur reynst ertltt að komast í vatn og eins
er þarna alllangt milli byggða.
Úr Laugardal í Skálholt
Ekki er ósennilegt að úr Laugardal hafi þeir farið
um Reykjavað yfir Brúará, en það er skammt frá Syðri-
Reykjum í Biskupstungum. Sveinn Pálsson minnist á
þetta vað í Ferðabók sinni og í Sýslu- og sóknalýsingu
frá árinu 1840 er líka sagt frá því. Þar segir:
„Úr Torfastaðasókn er ýmist farið yfir Brúará til
Miðdalssóknar á áðumefndu Miklaholtsnesvaði eður hjá
Syðrireykjum og þegar vöxtur er í ánni verður að fara yfír
hana á trébrú, sem er á henni uppi í Úthlíðarsókn."
Þess má geta að Brúará er ein af vatnsmestu
bergvatnsám á landinu.
Á gömlu herforingjaráðskorti má sjá aó leiðin frá Syðri-
Reykjum hefur legið meðfram Hveralæk á leið sem lá
ofan frá Úthlíð, hjá Miðhúsum og Brekku um Tjarnarheiði
og hjá Torfastöðum í Biskupstungum í Skálholt. Komið
var á þessa leið fyrir sunnan Tjarnartjörn. Osennilegt
er að þeir hafí farió á Miklaholtsnesvaði, en það mun
hafa verið hjá Böðmóðsstöðum. Það vað var talið slæmt
vegna dýpis og straums. Hafi þeir engu að síður farið
þar yfír Brúará, þá hafa þeir komið hjá Miklaholti og
á ofangreinda leið hjá Torfastöðum. Geta má þess að
Brúará var ekki reið nema þegar lítið var í ánni, vegna
þess hvað hún gat verið vatnsmikil og straumþung.
Á öðrum stað í Sturlungu er verið að ræða um ferð
Auðuns kolls í Skálholt. Sagt er að hann hafi hlaupið
Lyngdalsheiði þvert til Lyngdals og austur fyrir ofan
Svínavatn. Á Þórustöðum fær hann hest og ríður til
Eskidalsvaðs. Brúará var þá svo mikil að hann varð að
synda yfir og hljóp hann síðan heim í Skálholt. Kannski
er þetta með vatnsmagnið í ánum skýringin á því, hvers
vegna Sighvatur og Þorvarður völdu þennan árstíma
til fundarins. I byrjun apríl hafa árnar væntanlega verið
tiltölulega vatnslitlar, sérstaklega jökulárnar.
Á einum stað í Njáls sögu segir frá ferð Þorgeirs
skorargeirs. Þar segir: “riðu síðan allir saman til þess
er þeir komu til Reykja í Biskupstungu.” Og aðeins
seinna: “Riðu þeir þá vestur yfír Brúará.” Þarna hafa þeir
greinilega farið um Reykjavað.
En aftur að ferð Sighvatar. Ekki tók Sigvarður
Skálholtsbiskup vel á móti þeim Sighvati: “Þótti honum
þeir draga flokka á staðinn.” Þeir fengu ekkert hey hjá
honum og engan beina. Neitaði hann líka með öllu að
vera viðstaddur fundinn við Iðu.
Fundurinn við iðu
Þorsteinn Skeggjason og Jón Kárin báru þær fréttir í
Skálholt að Þorvarður væri kominn til Iðu og fóru þeir
Sighvatur þá þangað. Hófust nú miklar samningaumræður,
sem enduðu m.a. með því að “Þorvarður skyldi gjalda
Sighvati sex tugi hundraða; skyldi vera þriðjungur í gulli
og brenndu silfri, annar í gripum sæmilegum og dugandi
löndum, hinn þriðji í þeim gripum er ekki væri minna
en tíu aura verður.” Jón usti sem sakaður var um víg
Þorgils, skyldi fara utan og aldrei koma aftur til landsins.
Þorvarður var hins vegar ekki gerður landrækur. Gaf hann
Sighvati silfurker, skarlatskyrtil og fmgurgull.
Eftir fundinn fór Þorvaróur austur yfir ár en Sighvatur
var um nóttina í Skálholti. Hann var þá hestlaus og
falaðist eftir hesti hjá biskupi, en fékk synjun. Hann
keypti þá hest af Katli presti. Síðan segir: “Voru þeir
Sighvatur þar um daginn og átu þar náttverð þrír; lét
biskup gefa þeim að drekka. Reið Sighvatur út til heiðar
um kvöldið og varð fátt að kveðjum með þeim biskupi,
en hann kom heim til Staðar föstudaginn langa.”
Ferðin heim
Ekki er vitað hvaða leið Sighvatur hefur farið heim,
en ekki er ósennilegt að hann hafi farið svipaða leið og
hann kom. Hann leggur af stað frá Skálholti að kvöldi 4.
apríl og er kominn heim að Stað 7. apríl. Dagleiðir hafa
því greinilega verið mjög langar og það er ekki eins og
maðurinn hafi verið vel ríðandi með þennan eina hest frá
Katli presti.
Sighvatur varð ekki langlífur. Hann andaðist úr sótt
suður við Rauðahaf árið 1266 og var þá í Jórsalaferð.
Heima er bezt 491