Heima er bezt - 01.11.2005, Síða 61

Heima er bezt - 01.11.2005, Síða 61
Þessi ungu hjú bundu nú heit sín, er þau voru á leið heim af dansleik. Um haustið fór kaupakonan heim til sín. En ekki átti þetta að vera skilnaður að eilífu, því að um réttirnar ætluðu þau að skella sér í heilagt hjónaband. Hann hélt til Reykjavíkur, en sá því miður ekki neina unnustu, og stóð þarna einn eins og dæmdur dalasveinn. Ævintýri dalasveinsins var á enda, því miður. Og frá þvi segir í framhaldi ljóðsins, sem Alfreð söng: Loksins mœtti ég meyjunni mitt á Oðinsgötunni. Eg bauð góðan dag, hún galt í sömu mynt. Einhver maður með henni var, mér til sárrar bölvunar; ég sá óðara, að hún var honum hlynnt. „ Heyrðu, ungi sveitasveinn, þú ert einum degi of seinn, því með offisera éggifti mig í gœr. Nei, að elska sveitaflón, sem heitir ekkert nema Jón, það er ekki fyrir unga borgarmær. “ Eg sló öllu upp í glens, „ O, elsku fjárhúskofaséns, var ekki notalegt að sofa í töðunni? “ I því þutu þau á braut, en ég öskraði eins og naut: „Manstu næturnar í lambhúshlöðunni? “ Alfreð gerði þama stormandi lukku, líkt og annars staðar þar sem hann lét til sín heyra og sjá. Fólk hafði ekki aðeins yndi af að heyra rödd þessa listamanns, heldur var allt hans fas mjög spennandi. Hvað þessi veikbyggði maður gat þanið sig! Haustið 1946 var Alfreð ráðinn í því að halda til Kaupmannahafnar, ásamt frú sinni, Ingu Þórðardóttur leikkonu, að læra leiklist. Grein um Alfreð birtist um þetta leyti í tímaritinu „Eimreiðinni", er bar yfirskriftina „Skopleikari of saltan sjá“. Höfundurinn var Lárus Sigurbjörnsson rithöfundur, er ritaði margt um tónlist og tónlistarmenn í þetta gamalgróna menningarrit. Fram að þessu hafði Alfreð aðallega sinnt gamanhlutverkum, en ætlaði þar eftir að leggja stund á alvarlegri hlutverk. Þetta haust hélt Alfreð allmargar söngskemmtanir í Gamla Bíói við Ingólfsstræti, og var jafnan fullt hús hjá honum. Agóðinn af söngskemmtunum þessum átti að duga listamanninum og konu hans fyrir ársdvöl í borginni við Sundið. Skemmtanir þessar hófust ekki fyrr en kl. 23:30, eða eftir að kvikmyndasýningum lauk. Á þessum tíma var ég nemandi í 2. bekk Kennara- skólans viö Laufásveg, og leigði mér herbergiskytru undir súð í sambýlishúsinu Eskihlíð 14. Ég sótti eina al þessum söngskemmtunum Alfreðs, ásamt skólafélaga, Sigurði Kristinssyni, er bjó í sama húsi, og var einum bekk ofar en ég. Við Sigurður hlupum ofan úr Hlíðum í myrkri kvöldsins og kulda, en þetta var seint í nóvember. Og við þurftum ekki að sjá eftir því að eyða tíma og fé í að hlusta á hann Alfreð Andrésson. Vafalítið munu vísumar um rottufarganið, sem Alfreð söng þama, verða mér minnisstæðastar. Sumarið á undan hafði rottugangur í höfuðstaðnum slegið öll met. Fengnir höfðu verið erlendir sérfræðingar á vegum Reykjavíkurborgar, til að eyða þessu fargani. Bar það nokkurn árangur. Og nú gef ég Alfreð orðið um sinn. Ljóðið, sem hann söng, bar yfirskriftina „Rottugangur“: Það ríkir hér ömurlegt rottufargan, alltaf sí og œ, þær vaða hreint um allan bœ, svo varla er hœgt aðfá sér dræ. Og fari einhver út til að fá sér sjans, nú þá er rotta þar; þær eru svona rotturnai; bara alls staðar. Þær fluttust hingað inn, er Englendingurinn kom að fmna stúlkurnar með stóra jlotann sinn. Það getur vel verið, að hún sé setulið. Raunalega rœöa menn um rotturástandið. Annar bragur, sem Alfreð söng þama, vakti mikla gleði. Fjallar hann um síldveiðar, sem þá voru enn stundaðar fyrir Norðurlandi, og var Siglufjörður þar í brennidepli. Þar var „síldarborgin“. Alfreð hóf söng sinn með þessu erindi: Þegar síldveiði byrjar við höldum í haf með hjartað svo fullt af vonum. Þá er ekki slóað né slegið neitt af skriðnum á dampskiponum. Við höldum í blússi út í Haganesvík, því hún er af síldinni rík. Betur á stjói; stjói; stjói; klárir í bátana, torfan er stór, stór, stór, hrað, hrað, hraðar nú, drengir, hér dugar ekki neitt slór, slór, slór, dragió ekki af, af, af hver andskotinn, torfan erfarin í kaf, búm, búm, á sjómannamáli við segjum, að þetta sé búm, búm, búm. Oft söng Alfreð í útvarpið, og eru margar upptökur til með honum á þeim bæ. Einn frægast bragur, sem hann söng þar, er eftir Ragnar Jóhannesson, þann ljóðhaga mann, og nefnist hann „Tólffótungur“. Fjallar hann um ríkisstjórn þá, sem mynduð var haustið 1944, undir forsæti Olafs Thors, og skipuð ráðherrum úr þremur stjórnmálaflokkum, samtals sex að tölu: „Tólfótungur" var því réttnefni. Þarna fór Alfreð á kostum. Bragurinn Heima er bezt 493
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.