Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Side 63

Heima er bezt - 01.11.2005, Side 63
Jóni Auðuns og séra Árelíusi. Hann hermdi einnig eftir söng manna og tókst allvel, enda lagði hann stund á dægurlagasöng um skeið. Eitthvað fékkst Jón við leiklist, en varð lítt þekktur á því sviði. Honum var annars margt til lista lagt. Móðir hans hét Karlína Jónsdóttir, en gekk undir nafninu Dalla. Foreldrar hennar bjuggu í Skuld, litlu koti við Blönduós. Hún var oft á ijölunum á Olafsfírði um sína daga og þótti góð leikkona. Maður hennar og faðir Jóns, var verkamaður á Ólafsfírði og hét Gunnlaugur Jónsson. Vafalítið hefur Jón hlotið leikarahæfíleika sína frá móður sinni. Jón B. Gunnlaugsson var um skeið hjá Ríkisútvarpinu og sá um tónlistarþætti eins og „Eftir hádegið“, þar sem fólk valdi sér lög til flutnings. Hafði margur yndi af. Þá var Jón um skeið útvarpsþulur og las fréttir í forföllum Jóns Múla. Hann var hvergi hikandi. Þannig man ég hann Karl Einarsson var alþekktur skemmtikraftur í Reykjavík og víðar á sjöunda og áttunda áratugnum. Nokkrum sinnum hlýddi ég á Karl og sá tilburði hans á skemmtistöðum. Alls staðar var að honum fagnaðarauki. Maðurinn var í meðallagi hár, dökkur á hár, enda á besta aldursskeiói. Var mjög vel til fara. Gekk með slaufu um háls í stað hálsbindis. Nokkrar eftirlætispersónur átti hann til að herma eftir. Mátti þar nefna Árna Tryggvason, sem hann náði ágætlega. Hæst mun þó hafa borið prúðmennið Gunnar Sigurðsson Thoroddsen, ráðherra og borgarstjóra. Var með ólíkindum hversu vel Karl náði Gunnari, hvað orðaval, framburð og tilburði áhrærði. Þetta virtist Karl hafa kynnt sér af kostgæfni. Dr. Gunnar notaði gjarnan ávarpið „Góðir íslendingar“, þegar hann talaði til alþjóðar. Þegar Karl mælti þetta á sviði var vart hægt að greina annað en þarna væri sjálfur Gunnar Thoroddsen kominn. Eitthvað heyróist að því vikiö á stundum, að ýmsir þeir, sem tóku við hinum ýmsu bótum almannatrygginga, væru ekki neinir aumingjar tjárhagslega. Þess vegna var Gunnar látinn segja með munni Karls Einarssonar: „Góðir íslendingar! Eg held nú að hagur fólks sé ekki svo slæmur sern at er látið. Það mun til aö mynda ekki ótítt, aó menn komi í einkabifreiðum til að sækja ellistyrkinn sinn.“ Karl Einarsson vann hjá Landhelgisgæslunni um skeið, og var handtekinn af Bretum ásamt fleirum, er landhelgin var færð út í 12 mílur 1958. Frá því sagði hann í sjónvarpinu á sínum tíma. Um skeið var Karl húsvörður félagsheimilisins Árness í Gnúpverjahreppi. Því miður bilaði heilsa þessa ágæta skemmtikrafts. Hjartað gaf sig. Hann andaðist snemma árs 1977. Árni Tryggvason er það kunnur sem leikari og skemmtikraftur, að óþarft er að kynna hann. Árni er jafnfær að leika fyrir fullorðna sem börn. Það hefur hann margsinnis sýnt. Hver gleymir honum í hlutverki Lilla klifurmúsar í „Dýrunum í Hálsaskógi“, eftir Torbjöm Egner. Þar sat hann uppi í tré og setti sig í spor Lilla, sem söng um sjálfan sig og læddist um lágan runn og klett. Sá litli var sannarlega sniðugur. Og Árni túlkaði hann af sinni alkunnu hógværð. Eg hef hlýtt á Árna og horft, bæði á sviði og í gildaskála. Á báðum stöðum sómir hann sér vel, þessi lágvaxni maður. Hann er kattlipur og léttur á sér. Ekki er alltaf kostur að vera stór og kraftalegur. Ekki hæfa öll hlutverk þess konar manngerð. Árni ætlaði upphaflega ekki að gerast leikari. Hann var verslunarmaður á Borgarfírði eystra, um þriggja ára bil. Þótti hann lipur í því starfí. Þegar ég bjó þarna um þriggja ára bil, sögðu menn mér það. En einmitt þarna hlaut Árni sína eldskírn sem leikari, tróð upp í samkomuhúsi staðarins, sem þá var ekki háreist, vægast sagt. Eitt sinn sem oftar var ég gestur í sölum Hótels Borgar. Þar skemmti Ámi Tryggvason. Mér er minnistætt, er hann lék veiðimann, sem var að fá'ann. Greinilegt var, að maðurinn hafði sjálfur stundað laxveiði, eða vissi að minnsta kosti, hvernig átti að bera sig við að draga físk á land. Síðar mun Ámi kunnur fyrir fískidrátt sinn á Eyjafirói. Hann dvelur á æskuslóðum sínum í Hrísey á sumrin. Þar hitti ég hann í það eina sinn, sem ég steig á land á þessari vinalegu eyju. Við ræddumst við um stund. Barst í tal dvöl hans á Borgarfírði eystra, en ég var með skólabörn mín þarna í skemmtiferð. Marga mundi hann þar, þótt liðin væru 40 ár frá því að hann rétti vömr yfír búðarborð í kaupfélaginu á staðnum, því að þetta var fyrir tíma kjörbúðanna. Bubbi karlinn, Björn Ólafsson, var ofarlega í huga Árna. Frásagnargleði einkennir þennan ágæta leikara. Þeir, sem lesið hafa minningar hans, er út komu fyrir jólin 1991, komast að raun um að þarna er um léttlyndan mann og glaóan að ræða. Ég held, að Ámi hafí lent á réttri hillu í lífínu. Mörgum hefur hann skemmt á sviði og annars staðar. Minnistætt verður öllum, er hann söng „Álafossbraginn" í útvarpið í þætti Péturs Péturssonar, „Góðan dag, góðir hlustendur“. Erfitt er að túlka margt rneð oröum, ekki síst hrifningu. Leikarahæfileikar Áma Tryggvasonar fara ekki milli mála. Heima er bezt 495

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.