Heima er bezt - 01.11.2005, Page 65
Sú var tíðin...
Gluggað í gömul blöð og skoðað hvað var efst á baugi á viðkomandi tíma
Gaman getur verið að kíkja í gömul dagblöð og rijja upp
hvaða dægurmál voru efst á baugi á þeim tíma þegar þau
komu út. Að þessu sinni munum við hlaupayfir helstu
fréttir og atburði sem uppi voru i janúarmánuði árið 1960
og styðjast að þessu sinni, einna helst við Morgunblaðið
firá 3. janúar þess árs.
Ólafur Thors.
í UPPHAFI MÁNAÐARINS er
vitnað í útvarpsávarp Olafs Thors á
gamlárskvöld 1959, en eitt aðalinntak
ræðu hans var að Islendingar þyrftu
að breyta tafarlaust um stefnu í
efnahagsmálum, því uppbótakerfíð
hefði leitt þjóðina út í ógöngur.
Egyptar eru að hefja miklar
stífluframkvæmdir í Níl, er höfðu
hlotið heitið Aswan-stíflan. Stíflan
var geysilega fjárfrek og íjörmögnuðu
Rússar hana að mestu leyti. Hófust
framkvæmdir á því að Nasser forseti
Egyptalands sprengdi 30 tonn af
dýnamíti þar sem heljast átti handa.
Miklar og verðmætar fornminjar hlutu
óhjákvæmilega að fara undir vatn
þegar stíflulónið tæki að fyllast og
áttu Egyptar ekki fé til þess að verja
þær. Var það ætlun þeirra að senda
öllum þjóðum bænaskrá um stuðning
til þess að reisa varnargarð umhverfis
minjarnar.
ÖLDUNGADEILDARMAÐURINN
John F. Kennedy tilkynnti það í
upphafí mánaðarins að hann myndi
gefa kost á sér til framboðs af hálfu
demókrataflokksins við næstu
forsetakosningar í Bandaríkjunum.
John F. Kennedy.
í KÖNNUN BANDARÍSKS fyrirtækis
á notkun talsímans í meira en 200
löndum kom fram að Islendingar
voru í öðru sæti hvað varðaði notkun
hans. Kanadamenn voru í fyrsta sæti.
Jafnaðartalan fyrir íslendinga var
486 símtöl á mann en 511 í Kanada.
Bandaríkjamenn voru í þriðja sæti með
472 símtöl hver.
ÞÁ URÐU HÚSBÆNDASKIPTl á
Hótel Borg, þegar Pétur Daníelsson
fékk afhenta lykla hótelsins úr höndum
Jóhannesar Jósefssonar eiganda
hótelsins, er hafði stofnað það og rekið
undanfarin 30 ár. „Pétur var á meðal
þriggja veitingaþjóna, sem Jóhannes
sendi til Kaupmannahafnar nokkru
áður en Borg tók til starfa til þess að
fullnuma sig í starfi sínu.“
NÝJAR KIRKJUKLUKKUR höfðu
verið settar upp í Borgarneskirkju í
desember 1959. Voru klukkurnar gjöf
Kaupfélags Borgfírðinga. Klukkurnar
voru misstórar og vó sú stærri tæplega
600 kíló en sú minni 340 kíló. Litlu
munaði að klukkurnar næðu ekki til
landsins fyrir jólin en fyrir sérstaka
velvild Eimskipafélags Islands tókst
það og á miðnætti 19. desember,
var klukkunum hringt í fyrsta sinn
fyrir opnum turngluggum, í heila
klukkustund, svo öllum Borgnesingum
mætti vera Ijóst að kirkjuklukkurnar
þeirra væru komnar upp og tilbúnar
til síns hlutverks.
KEPPT VAR UM heimsmeistaratitil
í plægingum á írlandi. Var þar
ekki bara keppt um það hver væri
flinkastur við það að plægja akur
sinn, heldur líka horft til þess á hvaða
dráttarvélartegund sigurvegarinn sat.
Sigurvegari varð einn heimamanna
og dráttarvélartegundin, sem hann
notaði til verksins, var Fordson Major,
Heima er bezt 497