Heima er bezt - 01.11.2005, Page 66
Fordson Major dráttarvél.
plógurinn af Ransom gerð. Var tekið
fram að þetta væri í sjötta skiptið í röð
sem Fordson-dráttarvél var í fyrsta sæti
í þessari plægingarkeppni.
í REYKJAVÍKURBRÉFI Morgun-
blaðsins er fjallað um það hversu
litlu hefði munað að Halifax lávarður
hefði orðið forsætisráðherra Bretlands
í stað Winstons Churchill við upphaf
seinni heimsstyrjaldarinnar, vorið
1940. Má af ýmsu ráða að þar hafi
kannski fáeinar mínútur ráðið sköpum
í ákvarðanatökunni. Þar er einnig sagt
frá orðum dr. Helga Pjeturss, er hann
ritaði árið 1912 í Skírni, en á ferð
sinni til Bretlands skömmu áður hafði
hann harmað það að hafa ekki fengið
Winston Churchill.
tækifæri til þess að hitta Winston
Churchill ráðherra, af hinni frægu
Marlborough ætt. Er vitnað í þessi orð
dr. Helga og þeirri spurningu varpað
fram hvort þau væru spásögn. En Helgi
segir þar m.a.:
[...] „Winston Churchill er sagður
manna fríðastur og giftusamlegastur,
en mér eru dálítið tortryggilegir þeir,
sem lánið leikur mjög dátt við í þessum
undarlega heimi, sem er áreiðanlega
talsvert verri en efni eru til. Væru þeir
lánsamastir, sem mest eru verðir og
mest gæti orðið úr, þá mundi lengra
komið mannkyninu en nú er, þar sem
allar horfur virðast á að þetta mikla
Edward Halifax.
fyrirtæki, sem hefur kostað svo mikið
af kvölum, blóði og tárum, ætli að
misheppnast.“ [...]
1 Reykjavíkurbréfínu segir enn-
fremur:
„Þegar í harðbakkann sló og
stríðið braust út í september 1939,
var Churchill þó þegar gerður að
flotamálaráðherra og hinn 16. maí
1940 [...] falið að mynda stjóm. Þremur
dögum síðar hélt hann eina sína mestu
ræðu í neðri málstofunni, þar sem hann
mælti þau orð, sem e.t.v. öðmm fremur
verða ætíð tengd við nafn hans:
„Ég hef elckert að bjóða annað en
blóð, erfiði, tár og svita.““
[...] „Hverja skoðun sem menn hafa
á kenningum dr. Helga Pjeturss, verður
vart um það deilt, að einkennilegt er
og eftirminnilegt, að hann skuli nær
30 árum áður en Winston Churchill
mælti sín fleygu orð um blóð og tár,
einmitt nefna þau í sambandi við hinn
sama mann og á þann veg, að vart sé
þeim að treysta er ekki hafí lent í þeirri
raun sem Churchill og breska þjóðin
sannanlega var í stödd, þegar hann hélt
ræðu sína 13. maí 1940.“
OPNUÐ VAR NÝ sjálfvirk símstöð í
Kefíavík og var þar um að ræóa þá
fullkomnustu á landinu. Þessi símstöð
var fyrsta skrefíð í þeirri þróun sem
væntanleg var á næstu árum að hver og
einn gæti hringt úr sínum heimasíma
vítt um landið án þess að þurfa á
sérstakri landssímaþjónustu að halda.
Á gömlu stöðinni höfðu starfað 30
stúlkur en við breytinguna fækkaði
þeim um helming. Sími kom fyrst til
Keflavíkur árið 1908.
SAGT ER FRÁ ÞVÍ AÐ fræg
myndastytta við Tjörnina í Reykjavík,
af hafmeyju, hafi verið sprengd í loft
upp á nýársnótt. Myndastyttan var
eftir Nínu Sæmundsson, og hafði verið
nokkuð umdeild. Ekki hafði hafst upp
á þeim er verknaðinn framdi en nokkuð
mun það hafa skipst í tvö horn hvað
mönnum fannst um þennan atburð.
498 Heima er bezt