Heima er bezt - 01.11.2005, Page 67
Hjörtur
Þórarinsson:
Lífið í gamla
Reykhólabænum
I þessari grein skal gerð tilraun að
lýsa aðbúnaði og aðstœðum í gamla
Reykhólabœnum og búskapnum á
Reykhólum um miðja síðustu öld.
Eftirfarandi atriði verða rakin og
reynt að gera þeim skil: upphitun og
eldivið, lýsingu og eldun, geymslu
matvœla og matreiðslu, hreinlœti og
rœstingu, loftræstingu, húsrými og
rúmstœðum, ástandi húsnœðis, k/œðnaði
og fatahirslum, þvotti, tómstundum,
vinnuaðstöðu, heyskap ogferðalögum.
Allt hefur þetta gjörbreyst svo að nákvæm
lýsing hlýtur að vera reyfarakennd og
erfitt fyrir yngra fólk að setja sig í spor
þeirra sem lifðu þessa tíma.
Reisulegasti bær við Breiðafjörð
Bjarni Þórðarson reisti þennan bæ 1873-74. Stærð
bæjarins og reisn var slík að aðeins bærinn í Rauðseyjum
þótti hæfur til samanburðar. Mælieining þeirra tíma var
hversu margar hurðir væru á jámum. Reykhólabærinn
mun hafa verið með 29 eða 30 hurðir og lofthlera á
járnum.
Bærinn var með þrjár samtæðu timburburstir, 12
metra langar, eru sneru móti suðvestri. Allar vistarverur
timburklæddar í hólf og gólf nema hlóðaeldhúsið, það
var eingöngu með torfþaki, torfveggjum og moldargólfi.
Torfveggir voru um 1.50 metri á þykkt og öll þök voru
torfþakin. Jámklæðning mun hafa verið til staðar undir
torfinu á sumum stöðum.
Móðir mín, Steinunn Hjálmarsdóttir og stjúpfaðir,
Tómas Sigurgeirsson, fluttu að Reykhólum í fardögum
1939. Við bjuggum í miðhluta bæjarins fram á haust
1943. Bakhlutinn, eldhúsið, 3.80 x 2.80 m á stærð, var
einnar hæðar með háu risi og tveimur þakgluggum en
framhlutinn var á tveimur hæðum. Niðri var miðstofan
3 x 3.30 á stærð og matar- og mjólkurbúr 1.60 x 3.30 á
stærð en uppi var svefnloftið 4.80 x 3 m. og tveir kvistir
ca 1.80 x 2 m hvor um sig. Fremsti hluti bæjarins var
annars vegar geymsla og smíðahús en í bakhlutanum
var þriggja hlóða eldhús og eldiviðargeymsla. Önnur
tjölskylda bjó í skárri hluta bæjarins til vors 1946.
Reyndar hafði öldruð kona aðsetur á suðurkvistinum
tveim árum lengur. Þá var bærinn orðinn svo hrörlegur að
símastaurar voru reistir upp við þilin svo þau féllu ekki
fram á hlaðið. Bærinn var að hruni kominn er hann var
jafnaður við jörðu haustið 1951.
Heima er bezt 499