Heima er bezt - 01.11.2005, Síða 72

Heima er bezt - 01.11.2005, Síða 72
Grunnmynd Reykhólabæjarins, einnig teiknuð af Samúel Eggertssyni. til spari, ég fékk síðast svona spariskó á jólunum 1937, þegar ég var 10 ára gamall. Fatageymsla Geymsla á klæðnaði var erfið við þessar aðstæður. Reykmengun gat verið fínnanleg. Sængurfatnaður var geymdur í stórum kistum. Utifatnaður var allur geymdur frammi í fremstu stofunni. Reyrgresi var sett í fatageymslur og rúmbotna, það þótti gott til vamar gegn mölflugunni. Pvottur Þvottaaðstaða var ein sú besta sem þekktist í sveitinni. Hvíti þvotturinn var lagöur í sápulög og látinn standa yfir nótt í stórum bala í hvernum, síðan nuddaður á bretti og skolaður upp úr kaldara hveravatni. Kom hann þá tandurhreinn úr þessari sjálfvirku þvottavél náttúrunnar. Misliti þvotturinn fékk vægari hita en þeim mun meir var hann meðhöndlaður á sléttu steinunum er sjást ennþá úr fyrirhleðslu, sem talin er vera frá dvöl Grettis Ásmundarsonar, er hann dvaldi á Reykhólum árið 1012. vinnuaðstaðan Hún var á ýmsan hátt mjög erfíð vegna lítillar birtu og mikilla þrengsla. Tóvinna var stunduð og sérstaklega var vélprjón hjá mömmu mjög mikið. Hún saumaði mikið af fötum á okkur. Amma spann mikið á rokk, bæði einspinnu og tvíspinnu. Stundum voru fléttuð reipi og gjarðir úr hrosshári og úrgangsull. Hagldir á reipin voru mest smíðaðar úr eikartunnufjölum. Við kunnum að bregða gjarðir, sem settar voru á hnakka og klyfbera. í fremstu stofunni var hefilbekkur staðsettur og þar var hægt að vinna við létta trésmíði. Járnsmíði var úti í sérstakri skemmu. Þar var skeifnasmíðin stunduð og fleira sem til þurfti, m.a að svíða sviðin. Heyskapurinn Öflun heyja og fóðurs fyrir búpening var undirstaða þess að búskapurinn gæti borið sig. Á árunum fram yfir 1952 var heyfengur tekinn að meiri hluta á útengjum og í eyjunum. Heimatúnið gaf aðeins fjórðung af því heymagni sem til þurfti. Eyjaheyskapurinn var mjög háður veðráttu og góðum flutningabátum. Þangað var ekki hægt að fara fyrirvaralaust, væru veðurhorfur góðar. Ut á engjarnar var alltaf hægt að fara og nýta hverja stund sem gafst. Til sparnaðar á heyforða var reynt að nýta beitina í eyjunum eftir fremsta megni. Tugir hesta gátu verið þar í vetrarbeit. Einnig voru ásetningslömbin og nokkrar eldri ær oft fluttar þangað á haustin og féð látið vera þar fram undir jólin. Hrútamir voru hafðir í sérstökum eyjum. Þær eyjar voru mjög öruggar gagnvart allri flæðihættu. Á jólaföstunni var allt þetta fé sótt og flutt í land. Hlunnindin á Reykhólum eru annars svo sérstakur kafli að það væri efni í langa trásögn. Ferðalög Ferðir og fararskjótar voru næstum óbreyttir frá landnámstíð. Ávallt voru til góðir hestar til áburðar og reiðar og sumir til hvoru tveggja. Þeir hestar, sem ekki voru ætlaðir til notkunar að vetrinum, voru fluttir fram í eyjar og hafðir þar í vetrarbeit fram í lok apríl. Áður en farið var með þá fram, voru skeifumar dregnar undan þeim. Aðrir hestar voru teknir á hús um jólin og þá settir á skaflajárn. Sjóferðir Auk allra ferða við hlunnindi vor og haust og flutning á búfé, þá voru verslunarferðir til Króksíjarðarness allan þennan tíma fram til 1946, að vöruflutningar gátu hafist að sumrinu út að Reykhólum. Vetrarferðir að Króksfjarðarnesi héldust lengur. Mest af þungavöm var skipað beint upp úr flutningaskipum á Reykhólum og flutt í land á bátum. Þeir flutningar voru mjög ertlðir þegar ísalög voru komin upp að landinu. Selfossi 12. nóvember 2005. 504 Heima er bezt
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.