Heima er bezt - 01.11.2005, Qupperneq 73
Til Heima er bezt
Ég undirritaður þakka ykkur fyrir mjög gott og fróólegt
blað, sem ég er nýlega byrjaður að kaupa aftur, eftir langt
hlé.
Astæða þess að ég skrifa þetta bréf nú, er sú, að ég
rakst á slæma villu í 3. tölublaði, 54. árg., í annars ágætri
grein eftir Guðmund Sæmundsson, „Þar sem mannlífíð
hvarf‘. A bls. 117 má lesa að Jakob Thorarensen hafí
verið sonur Jakobs kaupmanns á Kúvíkum og Guðrúnar
Oladóttur konu hans. Þetta er rangt. Það er einnig rangt
að nafn skáldsins hafí verið Jakob Jens. Það rétta er að
einn sonur Jakobs kaupmanns Thorarensen, hét Jakob
Jens, en hann var ekki skáld heldur bóndi og sjómaður
á Gjögri. Hann eignaðist tvö börn með bústýru sinni,
Vilhelmínu Gísladóttur frá Stóra-Fjarðarhorni, Jakob
Thorarensen skáld og Jakobínu kaupkonu á Hólmavík.
En eiginkona Jakobs á Gjögri varð Jóhanna Sigrún
Guðnrundsdóttir frá Kjós. Meðal barna þeirra voru hinir
þekktu Thorarensenbræður á Gjögri, þeir Axel, Karl og
Valdemar. Jakob kaupmaður á Kúvíkum var þannig afí
Jakobs skálds en ekki faðir.
Vafalaust er búið að leiðrétta þetta eftir annarri
ábendingu, því að þessi er nokkuð síðbúin, en þar sem ég
hef ekki tekið eftir umbótum í þessu efni, sendi ég þennan
miða til ykkar, meö vinsemd og þökk fyrir gott rit.
4. júlí 2005.
Torfi Guðbrandsson.
DC tveir og hálfur
Fáar flugvélar eru þekktari
en Douglas DC3, og trúlega
hafa ekki verið framleiddar
fleiri vélar af neinni annarri
gerð, flestar í Bandaríkjunum
en margar auk þess í
öðrum löndum með leyfi
bandaríska framleiðandans.
Flugvélin var tyrst smíðuð
til farþegaflugs á árunum
fyrir síðari heimsstyrjöld
en megnið var framleitt á
heimsstyrjaldarárunum, þegar þessi tveggja
hreyfla fíugvél var uppistaðan í flutningaflota
herja fíestra Bandamanna, í það minnsta
framan af styrjöldinni. Eftir stríðið keyptu
flugfélög víða um heim vel með farnar DC3-
herflugvélar (eða C-47, eins og flugvélin var
auðkennd í flugflota Bandaríkjahers) til nota á
styttri flugleiðum; meðal annars hafði Flugfélag íslands
„þrista“ í innanlandsflugi þar til skrúfuþotur leystu þær af
hólmi.
Hin síðasta þessara flugvéla hér á landi var til skamms
tíma notuð við áburðardreifíngu og hét þá Páll Sveinsson.
Vélin er nú safngripur og var þegar þetta var skráð á
sýningarflugi erlendis.
Frumgerð DC3 var fýrst flogið
opinberlega hinn 17. desember 1935,
en þann dag fyrir 32 árum, lyftist
flugvél Wright-bræðra í fýrsta sinn frá
jörð fyrir eigin vélarafli. Framleiðsla
á DC3 til farþegaflugs hófst svo
fljótlega, en áður hafði Douglas
framleitt og selt fyrirrennara þessarar
flugvélar, sem auðkennd var DC2
og minnti á þristinn að sjá, en
bolurinn var mjórri og farþegarými
að sama skapi minna. Bandarísk
og erlend flugfélög sýndu
flugvélinni verulegan áhuga, og
fljótlega var af henni þróuð DC3
gerðin. Einhverjar DC2-flugvélar
rötuðu til bandaríska hersins, og
ég las fyrir löngu um eina þeirra,
sem hafnaði löskuð og óflughæf
á bandarískri herstöð í stríðinu við Japana, að ég held
á kóraley á Kyrrahafí. Úr nothæfum pörtum af þessari
DC2-vél og varahlutum úr DC3 var saman sett flugvél,
sem að sjálfsögðu var kölluð DC2V2.
Ornólfur Thorlacius tók saman.
Heimaerbezt 505