Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Page 81

Heima er bezt - 01.11.2005, Page 81
Steinunn R. Eyjólfsdóttir: Stroff, dokkur, gardínur og dúkkur Orðið „stroff1 er ekki íslenska. Ekki heldur „dokka“. Það sem prjónablöð nú á dögum nefna „stroff‘ heita brug(ð)ningar eða fit. Ekki virðist nein gild ástæða til þess að taka „stroffið“ upp í málið, fremur en erlendu sögnina að „strikke“, um að prjóna. Eins sýnist manni að „dokkan“ hafi ekkert fram yfír hespu, hnotu eða hönk. Reyndar eru handavinnublöð mjög misjöfn hvað málfar snertir. Blaóið Hugur og hönd hefur þar greinilega vinninginn. En því geri ég þetta að umtalsefni hér, að ég veit að margt fólk, sem komið er á virðulegan aldur og hefur því tíma til að iðka handavinnu og segja öðrum til les Heima er bezt. Leyfum „stroffum“ og „dokkuni“ að taka sér hvíld. Auglýsingahefti stórverslananna eru nú heldur ekki alltaf á neinni gullaldaríslensku. Kaupmenn ættu að hugsa sig betur um oft og tíðum, því eins og þeir vafalaust ætlast til, les allur landslýður heftin þeirra. Mikið væri nú gaman að sjá þar meira um gluggatjöld en minna um gardínur, eins og ég hef víst einhvem tíma nefnt áður. Jafnvel meira um brúður en minna um dúkkur. Þó ekki væri nú farið að setja manneskjuleg nöfn á brúðurnar, í stað einhverra skrípanafna, sem flest enda á men“. Hvernig var annars hægt að snara nöfnum Mjallhvítar og Rauðhettu á sínum tíma? Nöfn nútímabrúða eru oft fremur óhugnanleg, þó bæta megi úr þegar brúðan hefur eignast lögheimili. Þannig aðstoðaói ég nýlega einn ömmudrengja minna við að skíra sköllóttan kraftakarl, sem hann eignaðist og nú heitir karlinn blátt áfram Steingrímur. En vissulega vanda sumir auglýsendur sig, eins og til dæniis Elko. Þó að einstaka „digital“ sleppi í gegn, þá er greinilega metnaður á þeim bæ hvað varðar rétt orð og þýðingar. 00 Möppurnar utan um Heima er bezt geyma blaðið í handhægu formi. Hver mappa tekur einn árgang. HEIMA ER Pöntunarsími: 553-8200 Netfang: heimaerbezt@simnet.is Heima er bezt 513

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.