Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Page 83

Heima er bezt - 01.11.2005, Page 83
liggur fyrir neðan túnið í Nesi, Sverrir spyr föður sinn engra frétta þaðan, en augu hans leita fast heim að bænum. Næturkyrrðin ríkir ein umhverfis þennan gamla sveitabæ í fagurgrænu túni með sóleyjar og gleym-mér- ei í varpa. Hann eygir í óskalundi hugans ástmey sína þar sem hún hvílir í værum blundi heima í baðstofunni í Nesi, fögur og hrein eins og á síðustu kveðjustund þeirra og hann er aðeins nokkra faðma frá henni. Hve hann þráir heitt endurfúndina, en hann verður að bíða þeirra til næsta dags. Ekki lengur. Feðgarnir á í hvamminum að venju og hvíla gæðingana um stund. Sverrir hallar sér útaf í flosmjúkan vorgróðurinn og andar að sér angan jarðar. Þessi hvammur er hans Edenlundur. Feðgamir halda áfram för sinni. Brátt kemur höfuðbólið að Hamraendum í sjónmál. Nýtt, stórt steinhús blasir við augum Sverris og skyggir á gamla bæinn, en innan veggja þess bæjar leit hann fyrst dagsins ljós og allar bemsku- og æskuminningar hans eru tengdar honum á einhvern hátt. Saknaðarkennd fer um huga Sverris, en gamli bærinn stendur þó enn á sínum stað, þótt enginn búi þar lengur. Þorgerður húsfreyja vakir ein og býður þeirra feðganna. Loks ríða þeir í hlað. Og ástrík móðir fagnar langþráðum einkasyni. Hún leiðir hann inn í nýja húsið, en þar er honum búið vistlegt, sólríkt herbergi, sem á að vera einkaaðsetur hans í framtíðinni. Liðið er langt á nótt og brátt gengur hamingjusöm íjölskylda til náða. Hvíldin býður Sverris, djúp og vær eftir langt ferðalag. Og heima er best. *** Nýr dagur rís úr skauti friðsællar nætur. Sverrir er snemma á fótum þrátt fyrir stuttan nætursvefn. Hann þarf að skoða sig um á æskuheimilinu, sem hefur tekið stómm breytingum í ljarveru hans og heilsa þar öllu, dauðu og lifandi. Vinnumenn Karls hreppsstjóra hafa rekið stóran hrossahóp inn í rétt, en á þessum degi á að jáma þörfustu þjónana. Fyrir hendi er flutningur á ullinni í kaupstaóinn. Sverrir gengur suður að réttinni. Hestar hafa löngum verið hans yndi og eftirlæti. Og að kvöldi þessa dags ætlar hann að söðla Létta, gæðing sinn og skeiða út að Nesi. Hann getur ekki beðið lengur. Sverrir vippar sér upp á réttarvegginn og horfir yfir hrossahópinn, þau era flest gamlir vinir hans. Kristján frá Fossá, vinnumaður á Hamraendum, er þessa stundina einn manna í réttinni. Sverrir heilsar honum glaðlega og heldur svo áfram að virða hrossin fyrir sér. En brátt nema augu hans staðar á ljósgráum hesti innarlega í réttinni. - Hver á þennan ljósgráa gæðing, spyr hann Kristján og bendir á hestinn. - Þekkir þú hann ekki? Þetta er hann Fákur, sem eitt sinn var reiðskjótinn hennar Sigrúnar í Nesi, svarar Kristján glottandi. - Hvers vegna er hann hér, spyr Sverrir að bragði. - Vegna þess að pabbi þinn keypti hann fyrir nokkru síðan af Jóni í Nesi. - Hver er það? - Nýi bóndinn þar. Hvað, vissir þú það ekki? - Hvar er þá Bjöm? Sverrir var orðinn fljótmæltur. Kristján veltir vöngum og svarar þessari spurningu Sverris með mestu ánægju. - Hann Bjöm er löngu fluttur eitthvað vestur á firði og er þar víst í horninu hjá Sigrúnu dóttur sinni. Hún er gift frænda hans og býr þar. - Er þetta satt? - Já, víst er það satt, hvað skyldi mér ganga til að skrökva slíku að þér. Finnst þér þetta eitthvað ótrúlegt? Sverrir svarar því engu. Hann liggur náfölur á réttarveggnum og starir á Fák. Kristján lýtur á Sverri, fyrrum meðbiðil sinn og sér hvað honum er brugðið. Þeir eru þá komnir undir sama hatt, kotungssonurinn frá Fossá og einkaerfinginn á höfðingjasetrinu, hvomgur þeirra fær Sigrúnu frá Nesi fyrir konu, hugsar hann og glottir meinfýsinn. En Sverrir er ekki lengi augnagaman Kristjáns á þessari sámstu örlagastundu lífs síns. Hann rennir sér þegar niður af réttarveggnum og reikar heim til bæjar. Getur þetta verið raunveruleiki? Að Sigrún hafi brugðist honum? Sé horfin honum að fullu og öllu? Hún, sem hefur verið bjartasti vonar- og hamingjugeisli lífs hans. Hann veit ekki hve lengi. Ef til vill allt frá því að þau voru böm í skólanum á Fossi. A síðustu kveðjustund áður en hann hélt utan, hétu þau hvort öðra ævilangri ást og tryggð og á meðan hann dvaldi í framandi landi, dreymdi hann marga, stóra og fallega drauma um heimkomuna og endurfundi þeirra. Hennar vegna vildi hann ná langt í lífinu og gera hana hamingjusama á meðan bæði lifðu. En nú er hún orðin eiginkona annars manns. Það er dauðadómur yfir ást hans og lífshamingju. Framtíð hans er í rúst. Nýja, glæsilega steinhúsið á Hamraendum, sem við heimkomuna síðastliðna nótt, blasti við honum sem dýrðleg framtíðarhöll, með Sigrúnu Björnsdóttur í drottningarsæti, hefur nú misst líf og ljóina í vitund hans og er ekki annað en kaldur steinninn. Sverrir reikar inn í húsið og upp í herbergi sitt. Þar leggst hann til hvílu og myrkur harms og vonbrigða heltekur hann. Karl hreppsstjóri kemur í eldhúsið til konu sinnar og spyr hana hvort hún viti hvað hafi orðið af Sverri. - Nei, svarar Þorgerður, - en ég sá hann ganga suður túnið fyrir stundu síðan. Kom hann ekki að hrossaréttinni til ykkar? - Nei, ekki meðan ég var þar, en ég skrapp nú frá, aðeins smástund, ef til vill hefur hann komið þangað á meðan. Eg ætlaði að sýna honum reiðhestaefnin, sem hafa vaxið hér upp í fjarveru hans. Þú segir honum góða mín að ég hafi verið að spyrja um hann ef þú skyldir hitta hann á undan mér, segir Karl hreppsstjóri og hraðar sér út aftur. Þorgerður er á ný ein í eldhúsinu. Undarlegar hugsanir læðast að henni. Hvar skyldi Sverrir vera? Vonandi hefur ekkert óvænt komið fyrir hann. Henni er eitthvað Heima er bezt 515

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.