Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Qupperneq 85

Heima er bezt - 01.11.2005, Qupperneq 85
*** Sumarið er horfíð í eilífðar sæinn. Haustið sest að völdum. Karl hreppsstjóri situr á tali við konu sína yfir kaffibolla í eldhúsinu á Hamraendum. Einkasonurinn er umræðuefni þeirra, þau hafa bæði þungar áhyggjur af honum. En brátt kemur Sverrir inn í eldhúsið til foreldra sinna. Hann á brýnt erindi við þau. Þorgerður rís þegar frá borðum og vísar syni sínum til sætis. - Það var gott að þú komst Sverrir minn, segir hún blíðlega, nær í bollapör og hellir í þau kaffi handa honum. - Drekktu okkur pabba þínum til samlætis. Gjörðu svo vel vinur. - Þakka þér fyrir mamma mín, svarar Sverrir hæversklega en snertir ekki kaffíð. Hann styður hönd undir kinn og djúp þögn ríkir um stund. En svo snýr Sverrir sér að föður sínum og segir hljómlausri röddu: - Eg er á förum að heiman pabbi. Karl lýtur snöggum, undrunarfullum augum á son sinn. - Jæja, og hvert er ferðinni heitið góði minn? - Eg ætla að fara suður til Reykjavíkur og fá mér vinnu þar á komandi vetri. Heldurðu að það henti þér eitthvað betur en að starfa hér heima á æskustöðvum þínum? Ég treysti því fastlega að þú yrðir hjá mér í vetur og kenndir mér ýmsar nýjungar í sauðijárrækt, sem þú hefur numið ytra á undanförnum árum. - Mig tekur það sárt að valda þér vonbrigðum pabbi minn og vonandi fæ ég tækifæri til að bæta þér þetta upp síðar. En ég verð að fara. - Þá er ekkert við því að segja, það verður þá svo að vera. En mér er óskiljanlegt hvað getur knúið þig til þess að taka slíka ákvörðun, svarar Karl hreppsstjóri döprum rómi. Þorgerður hefur hlustað þögul á orðaskipti þeirra feðganna en nú lítur hún á mann sinn og segir með hægð: - Við skulum ekki reyna að aftra för Sverris að heiman, góði minn. Hann finnur best sjálfur hvað honum hentar í þessum efnum. - Já, vitanlega. Og að sjálfsögðu er hann frjáls ferða sinna, svarar Karl rólega. Svo beinir hann orðum sínum til Sverris og spyr þýðlega: - Er ekki eitthvað sem ég get gert fyrir þig að skilnaði, sonur minn? - Jú, pabbi, þakka þér fyrir. Mig langar til að biðja þig einnar bónar. - O, jæja, minna gat það varla verið og hver er hún? - Viltu selja mér ljósgráa gæðinginn, sem þú keyptir af honum Jóni í Nesi í fyrravor eða hvenær það nú var? - Er það ekki annað en þetta lítilræði, sem þú vildir biðja mig um að skilnaði? Ef þú skyldir einhvern tíma vitja æskustöðvanna að nýju, sem ég vona fastlega að þú gerir, er ljósgrái gæðingurinn þín eign sonur minn. - Þakka þér hjartanlega fyrir gjöfina. En mig langar ennfremur að biðja þig að láta gefa þeim ljósgráa við sama stall og Létta mínum. - Já, það skal gert. Feðgamir rísa úr sætum og fallast í faðma. Svo snýr Sverrir sér að móður sinni, hann þarf engu að síður að færa henni þakkir sínar. Karl hreppsstjóri gengur fram úr eldhúsinu. Hann hefur tamið sér frá ungdómsárum að taka á vandamálum lífsins með stillingu og jafnaðargeði og gefist það vel. Sonur hans hefur verið honum mikil ráðgáta frá því hann kom heim á síðastliðnu vori. Drengurinn hlýtur að hafa orðið fyrir einhverju örlagaríku áfalli þama ytra. Sennilega ástarsorg. Að stúlkan hafi verið sænsk og þau heitbundin en henni svo ekki litist á það þegar að heimför hans kom, að fylgja elskhuganum til Islands og eyða þar með honum ævinni og þá slitið sambandi þeirra. En Sverrir tekið sér þetta svona nærri sem raun ber vitni. Hann var gjörbreyttur maður fyrsta morguninn hér heima og eftir því að dæma hefur hann hlotið þetta áfall í veganesti úr Svíaríki. Frá heimkomu hans er nú liðið heilt sumar og allur sá tími virðist ekkert hafa megnað að draga úr hjartasorg drengsins nema síður sé, hugsar Karl hreppsstjóri dapur og vonsvikinn. En hann ætlar einskis að spyrja son sinn hvað þetta mál varðar og láta hann einráðan með öllu, enda orðinn fulltíða maður. Og svo hlýtur tíminn smám saman að milda og græða sárin. Sverrir Karlsson er kominn til Reykjavíkur. Hann leigir sér herbergi á gistihúsi, kaupir og les öll fáanleg dagblöð í leit að atvinnutilboði sem honum hentar en það lætur á sér standa og nokkrir dagar líða. Milt haustkvöld ríkir í höfuðborginni. Sverrir er einn á göngu niður í miðbæ. Hann þræðir hverja götuna af annarri án þess að hafa nokkurt ákveðið takmark fyrir augum. Hann verður einhvern veginn að eyða tímanum þangað til hann fínnur sér verk að vinna. Mynd Sigrúnar í Nesi ásamt harmsárum endurminningum víkja ekki úr huga hans í einsemdinni hér á framandi slóðum. Hann veit það eitt um hagi Sigrúnar að hún er gift frænda Bjöms og búsett á Vestíjörðum, en hvar veit hann ekki. Vestfirðirnir eru margir og stórir með víkur sínar og voga. Hann spurði ekki Kristján frá Fossá um heimilisfangið eða dvalarstað hennar morguninn örlagaríka, honum hefur víst fúndist þá að slíkt skipti litlu máli úr því sem komið var. En nú iðrast hann þess að hafa ekki aflað sér frekari vitneskju um hagi hennar og dvalarstað, þótt það hefði í engu getað breytt örlögum þeirra. Sverrir er svo niðursokkinn í þessar hugsanir sínar að ys og þys borgarlífsins nær ekki að vekja athygli hans. Skyndilega hrekkur hann við, hönd er lögð á herðar hans og honum boðið glaðlega gott kvöld. Sverrir snýr sér snöggt að þessum vegfaranda, sem heilsar honum svo kunnuglega, um leið mætir augum hans óvænt sjón, gamall vinur og skólabróðir stendur brosandi hjá honum. - Ragnar Snjólfsson! Þú hér, gamli vinur og félagi, segir Heima er bezt 517
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.