Heima er bezt - 01.11.2005, Page 86
Sverrir með undrun og fögnuði í rómi og réttir Ragnari
höndina. Þeir heilsast með gagnkvæmum innileik.
- Ekki átti ég von á að hitta þig hér á götum
Reykjavíkur, Sverrir minn, segir Ragnar glaður í bragði. -
Ég frétti ekki alls fyrir löngu að þú værir við háskólanám
úti í Svíþjóð.
Ég lauk því á síðastliðnu vori og kom þá heim, svarar
Sverrir dapurlega. - En hvað er að frétta af þér vinur?
- Þakka þér fyrir, allt það besta, ég er nýgenginn í það
heilaga, á góða og fallega konu, við búum héma við
næstu götu. Nú býð ég þér heim og við eigum saman
ljúfa kvöldstund.
- Þökk fyrir, svarar Sverrir, ég þigg boðið.
Síðan fylgist hann með vini sínum yfir á næstu götu.
Brátt sitja þeir félagamir í vistlegri stofu á heimili
Ragnars og rifja upp gamlar, kærar minningar frá löngu
liðnum samverustundum á skólasetrinu að Hólum forðurn
daga og margt ber á góma. Kona Ragnars ber fram
rausnarlegar kaffíveitingar og drekkur eiginmanni sínum
og gesti hans til samlætis. Að lokinni kaffidrykkju spyr
Ragnar hress í bragði:
-Hvemig er það gamli vinur, starfar þú hér í borginni
eða ertu héma á ferðalagi? Sverrir brosir dauflega.
- Ég er hér í leit að vinnu.
- Þú verður varla í neinum vandræðum með að finna
þér starf við hæfi, segir Ragnar sannfærandi. - Hefurðu
leitað víða?
- Já, ég hef undanfarna daga lesið atvinnuauglýsingar
dagblaðanna upp til agna en einskis orðið vísari.
- Ég ætti kannski að útvega þér vinnu, en hún er ekki
hér í höfuðborginni, segir Ragnar og brosir örlítið glettinn
á svip til vinar síns.
- Það skiptir mig engu máli. Mér er ekkert kærara að
starfa í Reykjavík en einhvers staðar úti á landsbyggðinni,
svarar Sverrir aó bragði.
- Æ, fyrirgefðu vinur, ég sló þessu fram í gríni. Maður
með þína menntun, sem getur valið um störf, færi aldrei
að ráða sig til innanbúðarþjónustu hjá smákaupmanni í
litlu sjávarþorpi vestur á landi.
- Menntun, varla ætti hún að standa í vegi fyrir því að
gerast afgreiðslumaóur í verslun, ég ætti þá að kunna að
leggja saman tvo og tvo. Hefur þú eitthvað slíkt í boði?
- Já reyndar, þess vegna var ég að gantast með þetta við
þig. Þannig er mál með vexti að pabbi, sem er kaupmaður
vestur í Lóni, eins og ég hef trúlega sagt þér frá í gamla
daga, varð fyrir því óhappi að innanbúðarmaðurinn,
sem starfað hefur hjá honum í mörg ár, veiktist fyrir
skömmu. Læknirinn fyrir vestan sendi hann hingað suður
í rannsókn. Við rannsókn kom í Ijós að hann þyrfti að
gangast undir uppskurð. Svo hann verður frá vinnu um
óákveðinn tíma. Pabbi hringdi til mín í morgun og sagði
mér þessar fréttir og sló því fram um leið hvort ég gæti
ekki ráðið til sín góðan afgreiðslumann á meðan hinn er
að ná bata og verða aftur vinnufær. Ég sagði pabba eins
og var að ég hefði ekki á neinn vísan að róa en bauðst til
að setja auglýsingu í dagblööin og það ætla ég að gera
strax á morgun. Pabbi hefur lengi verið fótaveikur og
fitnað mikið með aldrinum, af þeim sökum treystir hann
sér ekki til að afgreiða sjálfur í búðinni þótt umfangið sé
ekki stórt.
- Hvernig er með húsnæði og fæði þarna á staðnum,
spyr Sverrir rólega. - Er eitthvert mötuneyti og
svefnaðstaða fyrir aðkomumann.
- Já, það eru verbúðir en aðkomumaður sem ynni hjá
pabba byggi að sjálfsögðu á heimili foreldra minna, fengi
þar fæði og þjónustu ef hann óskaði þess. Hvað vinnulaun
snertir býst ég við að þau séu hin sömu og greidd eru
almennt á þessum markaði, svarar Ragnar greiðlega.
- Ég vil gjama ráða mig í þetta starf þann tíma, sem
búðarþjónn föður þíns er frá verki, en sá tími er auðvitað
nú sem stendur, óákveðinn, segir Sverrir festulega.
- Er þér virkilega alvara gamli vinur. Ragnar er í senn
glaður og undrandi.
- Já, full alvara. Því ekki að skoða landið frá öllum
sjónarhornum?
Það er bundið fastmælum að Sverrir fari með næsta
strandferðaskipi vestur í Lón.
Sverrir situr lengi kvölds í boði vinar síns og nýtur
gestrisni þeirra hjónanna. Þau bjóða honum gistingu en
hann afþakkar hana. Sverrir býst nú til brottfarar. Ragnar
fylgir þessum aufúsugesti sínum heim á gistihúsið þar
sem hann hefur aðsetur. Þar kveðjast þeir vinirnir með
miklum, gagnkvæmum kærleikum, báðir þakklátir fyrir
ánægjulega endurfundi og góð málalok.
** *
Að tveimur dögum liðnum kveður Sverrir Karlsson
höfuðborgina og stígur á skip, sem ber hann vestur í Lón
við Lónsijörð.
Haustið hefur rist sínar rúnir í ásjónu landsins.
Fjörðurinn blikar spegilsléttur í kvöldkyrrðinni.
Strandferðaskipið siglir hægt inn höfnina í Lóni
og boðar komu sína með hressilegum lúðrablæstri.
Uppskipunarbátur brunar þegar í stað frá Iandi út að
skipinu. Sverrir Karlsson fær far í land með fyrstu ferð
uppskipunarbátsins og er feginn landtöku. Hann hefur
ekki verið laus við sjóveiki á vesturleiðinni, fyrir þeim
kvilla hefur hann ekki fundið áður. Snjólfur kaupmaður
er mættur á bryggjunni og tekur á móti Sverri um leið og
hann stígur upp úr bátnum og fagnar honum vel. Síðan
halda þeir strax af stað heim í hús kaupmannsins, sem
stendur góðan spöl fyrir ofan höfnina.
Alfheiður, kona Snjólfs, fagnar Sverri engu minna
en maður hennar. Hún veit að þessi piltur er gamall
skólabróðir og vinur einkasonar hennar og þess skal
hann njóta á meðan hann dvelur á heimili þeirra hjóna.
Ríkulegur kvöldverður bíður langferðamannsins en
Sverrir gerir honum lítil skil, hann hefur litla matarlyst
eftir sjóferðina.
Að loknu borðhaldi vísar Álfheiður honum til
herbergis, sem á að vera hans einkaaðsetur á meðan hann
51 8 Heima er bezt