Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2005, Side 88

Heima er bezt - 01.11.2005, Side 88
þungt andvarp stígur svo frá brjósti hennar, það hvarflar þó engan veginn að henni að Sverrir Karlsson frá Hamraendum sé orðinn innanbúðarþjónn í Snjólfsverslun, slíkt er svo óraljarri öllum hugsanlegum raunveruleika. Þórarinn, maður Sigrúnar er með reikningsviðskipti hjá Pöntunarfélagi Lónsijaraðar en þar eru einungis matar- og hreinlætisvörur í boði og Sigrún gerir innkaupin á nauðsynjavörum til heimilisins í Pöntunarfélaginu. Snjólfsverslun býður einnig þann sama vaming en jafnframt álnavöm og alls konar smá þarfa hluti í miklu úrvali. Þetta er mikilvægt fyrir Lónsbúa. Sverrir litli kemur stöku sinnum í Snjólfsverslun til að kaupa smávaming fyrir móður sína. Eitthvert ósýnilegt afl dregur Sverri Karlsson að þessum litla dreng og eftir því sem fundum þeirra ber oftar saman eykst væntumþykja hans á drengnum. Augu þeirra nafnanna mætast jafnan yfir búðarborðið á meðan þeir ræða viðskiptin og sitthvað fleira. Hvað sér Sverrir Karlsson í þessum fögm, djúpbláu bamsaugum, sem vekur heita þrá í brjósti hans, þrá eftir einhverju sem hann gerir sér ekki skýra grein fyrir hvað er. En þessum dreng gleymir hann aldrei. *** Vetri er tekið að halla. Snjór að leysast úr fjöllum. Veðráttan að mildast. Hækkandi sól á himinbraut. Komið er fast að lokunartíma í Snjólfsverslun. Sverrir er einn í búðinni. Hann hallar sér fram á afgreiðsluborðið, styður hönd undir kinn og bíður reiðubúinn til þjónustu ef vera kynni að einhver viðskiptavinur næði inn fyrir lokun. Skyndilega opnast dyrnar. Sverrir litli Þórarinsson skundar inn að afgreiðsiuborðinu. Hann er sveittur og móður og segir með ákafa í röddinni: - Sæll nafni minn, ég á að kaupa suðusúkkulaði fyrir mömmu, hún á von á gestum í kvöld. - Sæll vinur, svarar Sverrir Karlsson brosmildur, - þú kemur ekki með skrifaðan miða um hvað þú átt að kaupa. - Nei, ég sagði mömmu að ég gæti vel munað þetta. - Duglegur ertu nafni minn. Sverrir nær þegar í umbeðna vöru en á meðan hann vefur hana í umbúðapappír og tekur við greiðslu úr lófa drengsins, skýtur spurningu snögglega upp í huga hans, sem hann hefur ekki áður borið fram við nafna sinn. - Hvað heitir hún mamma þín? - Mamma mín heitir Sigrún og afi minn hét Björn. Mamma segir að hann sé núna heima hjá Guði, svarar drengurinn skýrt og skilmerkilega. Sigrún Bjömsdóttir búsett hér! Sverri Karlssyni er meira en lítið brugðið. Hann hefur lokið við að afgreiða nafna sinn og segir þýðri, dapurri röddu: - Flýttu þér nú heim til hennar mömmu þinnar vinur minn. Drengurinn þakkar fyrir sig og snýr til dyra en í sömu andrá kemur Snjólfur fram úr skrifstofunni sinni og lokar búðinni. Sverrir og Snjólfur verða samferða heim í kaupmannshúsið. Frú Álfheiður ber fram ilmandi kvöldverð en Sverrir gerir honum lítil skil. - Ertu lasinn Sverrir, spyr hún með móðurlegri umhyggju, - þú ert náfölur. - Nei, það er ekkert alvarlegt, svarar Sverrir rólega, - en ég ætla samt að leggja mig snemma í kvöld. Hann býður kaupmannshjónunum góða nótt og hverfúr til herbergis síns. Djúp sorg nístir hjarta hans, hann afklæðist og leggst í rekkju en svefn og hvíld er honum víðsfjarri. Hann starir döprum augum út í vaxandi kvöldhúmið, hið óvænta svar Sverris litla um móðerni sitt á síðastliðnum degi tekur hug hans allan. Sigrún Björnsdóttir býr þá hérna, rétt við hliðina á honum! Undarlegt leikbragð örlaganna. Nú er honum ljóst af hverju Sverrir litli kom honum svona kunnuglega fyrir sjónir við fyrstu samfundi þeirra, drengurinn er smækkuð mynd af móður sinni, þótt hann áttaði sig ekki á því fyrr en nú, þegar hann veit hver hún er. Og augu þessa fallega drengs, sem vöktu þrá í brjósti hans, eru lifandi eftirlíking af brúnaljósum þeirrar konu sem hann ann og hefur unnað, hann veit þar engin tímamörk. Og sonur Sigrúnar ber nafn hans. Hún er þá ekki alfarið búin að gleyma honum. En hún er gift öðrum manni og slíkt er dauðadómur yfir ást hans. I hjarta Sverris vaknar óslökkvandi Iöngun eftir því að mega líta Sigrúnu augum, aðeins einu sinni áður en hann hverfur héðan alfarinn frá Lóni. En hann heitir því jafnframt við samvisku sína og drengskap að þetta skuli í engu skaða hjónaband hennar. Honum finnst það heldur ekki óréttmæt krafa að hann fái að vita ástæðuna fyrir þeim miskunnarlausu örlögum, sem biðu hans við heimkomuna frá Svíþjóð. Hann Iangar einnig til þess að fá að vita um líðan Sigrúnar, þótt hann geti þar engu breytt, eins og málum er komið. Sverri er það ljóst eftir þessa stóru frétt um móðerni nafna hans, að hann getur ekki dvalió mikið lengur á þessum stað enda ekki ráðinn til starfa neinn ákveóinn tíma. Hann hefur í hyggju að ræða þau mál bráðlega við Snjólf. Þetta litla, afskekkta sjávarþorp er ekki neinn griðastaður gleymskunnar. Og nóttin færist yfir sofandi drótt og svefnvana sálir, mild og hljóð. *** I næsta húsi við Sigrúnu búa ung hjón með þrjú börn sín. Gamall ekkjumaður á húsið, sem er ein hæð og kjallari. Eigandinn býr sjálfur á hæðinni, en leigir ungu hjónunum kjallarann, leigan er fæði og þjónusta fyrir gamla manninn. Bömin í kjallaranum em öll eldri en Sverrir litli en taka hann inn í hópinn eins og jafningja og eru mjög góð við hann. Sigrún kann vel að meta þetta og sýnir leikfélögunt sonar síns það í verki. Hún býður þeim oft inn til sín og veitir þeim mat og drykk og það er þegið með þökkum. Þetta góða samkomulag barnanna leiðir til þess að Sigrún og Silla, konan og móðirin í kjallaranum, 520 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.