Hljóðabunga - 01.11.1978, Síða 8
Jón Jónsson á yngri árum sínum.
Sæmund og sagði fólkinu að það yrði að koma
sér vel við hann Finn, annars léti hann það
skíta í box. Þetta voru mín kveðjuorð. Þeim
þótti nú nóg um mínum mönnum að ég skyldi
segja þetta allt saman og konan mín var að
gefa mér bendingu aftur og aftur að hætta. Ég
lést ekki sjá það. Þetta var sannleikur. Það var
gremja í Finni, eldur bara, en ég kærði mig
ekkert um að hlífa honum.
KRÖFUGÁLAN
Karítas Skarphéðinsdóttir var mesta heið-
ursmanneskja og ekki vantaði að hún vildi
fórna sér fyrir verkalýðssamtökin. Nei, það er
alveg öruggt. Flún vildi halda áfram að gera
umbætur verkafólki í hag og fór fram á að það
væri bættur hagur vöskukvenna í Neðstakaup-
staðnum, að þar yrði búið til eitthvert skýli,
sem þær gætu drukkið kaffið sitt í, af því að
það var kaldsamt að vera úti við þvottakörin
sem köldum sjó var dælt upp í og fiskurinn
þveginn upp úr.
Jæja, hún var kölluð kröfugála og búnar til
um hana háðvísur, ósmekklegar í allan máta,
og farið með þær til skemmtunar í verkalýðs-
félaginu. Þetta er skrýtið, það skilur þetta
enginn. Enn vísan er svona:
Ein er gálan gjörn á þras
gulli silki búin,
Kaffiskála-Karítas
Kommúnistafrúin.
Hún átti upphlut. Ha, ha, ha. Og vildi að
það væri komið upp skýli fyrir vöskukonur!
Gísli Indriðason hefndi fyrir Karítas og bjó
til liðlegar vísur á þennan mann sem orti. Þær
voru óþverralega skammarlegar. Já, það var
farið með þær.
Kauðann Hjálmar kenna ber
kjaftasögu snata
Að hann drulludindill er
dáðalausra krata.
Slúðurkindin kosta nett
kvefsar fjarri líkum.
Margar slíkar lifa létt
lýs í krataflíkum.
SKEMMTILEGUR FUNDUR
Þeir voru oft skemmtilegir fundirnir hér.
Sigfús Daníelsson síðasti verslunarstjórinn hjá
Ásgeirsverslun, var reglulegur íhaldsmaður og
hafði gaman af því að reyna að standa uppi í
hárinu á þeim sr. Guðmundi, Helga Sveins-
syni og Vilmundi Jónssyni þegar þeir voru
farnir að vera með glans hérna. Svo er það á
einum fundi að Vilmundur er að tala fyrir
kaupunum á Hæstakaupstaðnum og svo segir
hann upp á sína vísu sko: „Sá sem er ekki með
spítalabyggingu, hann er á móti spítalabygg-
ingu. Sá sem ekki er með kaupunum á Hæsta-
kaupstað, hann er á móti kaupunum á Hæsta-
8
HLJÓÐABUNGA