Hljóðabunga - 01.11.1978, Page 10
Einar Eyþórsson:
Þegar frelsið
verður ánauð
Um innflutningsfrelsi
og áhrif þess á verðbólgu,
skuldasöfnun og fleira.
„Á árinu 1960 var mörkuð sú stefna að gefa
utanríkisverslunina frjálsari og afnema innflutn-
ingshöft. Stærstur hluti innflutningsins er nú
orðinn frjáls til mikilla hagsbóta fyrir þjóðar-
heildina. Enn er þó nokkur hluti innflutnings
háður leyfum, jafnvel þrátt fyrir gagnstæðar
skuldbindingar í samningum okkar við aðrar
þjóðir. Verslunarráð telur að efnahagslegur á-
vinningur af frjálsum utanríkisviðskiptum sé ó-
umdeilanlegur og hvetur stjórnvöld því til að
halda áfram á markaðri braut og gefa innflutning
frjálsan á þeim vörum sem enn eru háðar inn-
flutningsleyfum."
(Ályktun frá Verslunarráði íslands, Mbl. 4.2.1978).
Alyktunin hér á undan er nokkuð dæmigerð
fyrir þann „almennt viðurkennda sannleika“
að frjáls innflutningur sé þjóðinni til hags-
bóta. Menn virðast einfaldlega slá því föstu að
svo sé, án þess að rökstuðnings sé þörf. Undir-
ritaður telur þetta mál þó umdeilanlegra en
Verslunarráð vill vera láta, - og mun ég reyna
að skýra ástæðuna hér á eftir.
Um hagfræði
Ef við í fljótheitum lítum á þá hagfræði-
kenningu sem notuð er til stuðnings frjálsum
innflutningi, gengur hún út á það að því
frjálsari sem heimsviðskiptin séu, þess meiri
verði hagnaðurinn fyrir alla aðila. Kenningin
sér heiminn sem samansafn fyrirtækja sem
keppa á frjálsum markaði þar sem hver og
einn reynir að bjóða lægra verð en keppinaut-
urinn. Þannig verði sá sem framleiðir með
minnstum tilkostnaði ofaná í samkeppninni
og neytendur fái þá um leið vöruna á lægsta
verði. Allar viðskiptahömlur og tollar milli
landa séu þessvegna neytendum í óhag. Þetta
lítur ákaflega vel út á pappírnum - og gildir
raunar í sumum tilfellum.
Kenning þessi varð til á bernskuskeiði iðn-
aðarins í Evrópu, áður en auðhringar með
nútímasniði komu til sögunnar. Því er eðlilegt
að spyrja: er hún nothæf í dag?
Hinn heimsfrægi bandaríski hagfræðipró-
fessor John Kenneth Galbraith hélt gestafyrir-
lestur í Óslóarháskóla í feb. s.l. og ræddi þá
þessa spurningu:
„Aöalatriðið í fyrirlestri Galbraiths var að hag-
fræðiþekking einnar kynslóðar væri ónothæf
fyrir þá næstu. Meirihluti hagfræðinga í hinum
vestræna heimi notar Ifkan þar sem kerfið er
John Kenneth Galbraith: Meirihluti vestrænna hagfræð-
inga gerir sér ranga hugmynd um ástand efnahagsmála i
dag.
10
HLJÓÐABUNGA