Hljóðabunga - 01.11.1978, Side 12

Hljóðabunga - 01.11.1978, Side 12
— Síendurteknar gengisfellingar með filheyrandi óðaverðbólgu. — Erfiðleikar iðnaðar sem framleiðir fyrir heima- markað. — Mikil áhersla á sjávarútveginn sem kemur fram í rányrkju á fiskimiðunum. — Miklar lántökur erlendis. — Aukin áhersla á erlenda stóriðju. Þar sem samhengi þessara atriða og þáttur auðhringaveldis og innflutningsfrelsis í þeim er e.t.v. ekki ljós í einni svipan mun ég reyna að skýra það nokkru nánar hér á eftir. Greiðslujöfnuður Greiðslujöfnuður er í stórum dráttum jöfn- uður milli verðmætis innflutnings og útflutn- ings, eða milli gjaldeyrisstreymis út úr og inn í landið. Sé innflutningur á ákveðnu tímabili meiri en svo að hægt sé að borga fyrir hann með útflutningstekjum sama tímabils, mynd- ast s.k. greiðsluhalli. Áhrifamesta tækið sem ríkisstjórnir ráða yfir til að rétta af slíkan halla er að takmarka innflutning eða gjaldeyrissölu, og efla jafnframt innlendan iðnað þannig að þörfin fyrir innflutta vöru minnki. Annað áhrifamikið tæki, sem beitt er í sama tilgangi, eru tollar, sem gera innflutta vöru dýrari og þar með minna eftirsótta. Hafi ríkisstjórn aftur afsalað sér þessum stjórntækjum eins og tilfellið er á íslandi eftir samningana við EFTA og EBE, verður að beita öðrum aðgerðum gegn greiðsluhallan- um. Samkvæmt kenningunni um hagkvæmi frjálsrar verslunar, á að mæta auknum inn- flutningi, sem óhjákvæmilega er afleiðing inn- flutningsfrelsis, með auknum útflutningi á þeim vörum sem hægt er að framleiða á hagkvæmastan hátt í landinu. íslendingar hafa lengst af bara framleitt eina slíka vöru, nefnilega fisk. Því hefur nú fiskiskipaflotinn verið efldur stórkostlega og landhelgin færð út. Fiskútflutningur hefur þó ekki vaxið eins og til var ætlast, og er langt frá því að afli hafi aukist í hlutfalli við eflingu togaraflotans. Og ástæðan er einföld: Það er ekki nógur fiskur í sjónum. —Eru nú góð ráð dýr. Nýr útflutningsiðnaður verður ekki hristur fram úr erminni, og spurning hverjar þær auðlindir sé að finna á íslandi sem gefi tækifæri til stór- felldrar gjaldeyrisöflunar. Þar koma mönnum íslendingar borga útflutningsbætur með álinu. fyrst í hug vatnsföll landsins, og orkan sem í þeim býr. Þessa orku er hægt að nýta fyrir svonefndan orkufrekan iðnað. Stóriðja Raunar var farið að huga að slíkum iðnaði strax uppúr 1960. Álverið í Straumsvík hóf starfsemi sína 1969, og sama ár gerðist ísland aðili að EFTA, ekki síst til að auðvelda álútflutning til Evrópu. Álverið er í eigu erlends auðhrings, Alusuisse, og kemur það til af því í þessari iðngrein ríkir einokun. Fáeinir auðhringar sitja yfir hráefnalindum, fram- leiðslutækni og markaði, svo ekki er árennilegt að leggja þar út í „frjálsa samkeppni“. Reynslan af álverinu sýnir nokkuð vel að orkufrek stóriðja er ekki sá bjargvættur sem ýmsum hefur orðið á að trúa. Þótt sleppt sé að minnast á mengun, félagsleg áhrif og heilsufar verkamanna, er ljóst að gjaldeyristekjurnar eru dýru verði keyptar. Álverið fær raforku á verði sem liggur langt undir kostnaðarverði, og er undanþegið venjulegum sköttum og tollum. (Greiðir s.k. lágmarksskatt, sem er föst upphæð, — 250 milljónir 1975.) Þannig greiða íslendingar í reynd útflutningsbætur með á- linu. Það er lítil ástæða til að ætla að annað verði uppi á teningnum með stóriðju í fram- tíðinni, einfaldlega vegna þess að auðhring- arnir hafa ekki áhuga á að byggja verksmiðjur sínar á íslandi nema orkuverðið sé svo lágt að 12 HLJÓOABUNGA

x

Hljóðabunga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.