Hljóðabunga - 01.11.1978, Side 17

Hljóðabunga - 01.11.1978, Side 17
Gestur Vestfirðingur 1847-1855 Fyrsta tímarit á Vestfjörðum Þegar er vér liyggjum aft háttuin og venju aim- ara Jijóða, sjáum vtr, aft livervetna þar sein meiit- unar og framfara amli er tekinn aft lifna og glæð- ast, finna menn {iðrf á, að hlöð og timarit risi upp til að flytja út í {ijóðlífið viðbuiði tiinanna, liugs- anir manna, orð þeirra og athafnir; ekki er lield- ur við {iví að dyljast, að {íetta cr hið mesta fram- fara og fullkomnunar efni; því eins og áin liefir vöxt sinn og vatnsmegn úr uppsprettum þeim og lækjuin, er að henni liggja, eins fær þjóðfélagið ekki fjör eða franitaksmagn, fyrr en í það streymir all og aðstoð á ymsan hátt frá sem flesluin felög- um þess og flokkum. Nú þareð timaritin eru til þess ætluð að flytja á milli þjóðfelaganna, það er tíðindavert þykir eður þjóðinni liorfir á einhvern liátt til fróðleiks, mentuiiar og framfara, þá er auð- sætt, að þess meiri þörf er á tímaritum í hverju landi, sem það er strjálbygðara og þjóðfundir eru þar færri, eigi nokkurr felags og framtaksandi að geta lifnað og viðhaldizt, svo ekki fari einföruni i sína áttina hverr, og „bauki“ ser, eða lirjóti það niður, er liinn byggir. Þannig eru upphafsorð fyrsta almenna tímaritsins á Vestfjörðum, Gests Vestfirðings, sem út kom árin 1847 - 1855. Arsrit þetta varð til á ákaflega merkilegri þjóðarvakningu og framfarahreyfingu við Breiðafjörð og á Vest- fjörðum uppúr 1830, sem nær hámarki í þjóðréttindabaráttu Jóns Sigurðssonar. Sú barátta varð til þess meðal annars að danir létu verslunina frjálsa og tímabil framfara og mikillar endurreisnar átti sér stað um land allt. —Við skulum kynna okkur örlítið að- dragandann að tilurð þessa timarits og efni þess, sem á margan hátt er ekki aðeins fróð- legt, þannig að það varpi ljósi á liðna tíma, heldur beinlínis skemmtilegt og uppörfandi. Um og fyrir aldamótin 1800 var bókakostur alþýðufólks fjarska lítill, ef frá eru skildar örfáar guðsorðabækur, sem til voru á flestum heimilum. Árið 1790 stofnuðu nokkrir prestar og aðrir embættismenn, undir forystu Magn- úsar Stephensen, fyrsta lestrarfélagið: ,,Hið íslenzka Suðurlands bókasöfnunar og lestrarfé- lag“. Þetta fordæmi hafði þau áhrif að stofnuð voru lestrarfélög norðanlands, en einnig í Djúpavogi og í Barðastrandarsýslu. Var hið síðastnefnda kallað „Barðastrandarsýslulestrar- félag“ eða „Lestrarfélag þarflegra danskra bóka“. Heiti þess bendir til að það hafi varla verið ætlað almenningi. Þetta félag starfaði í sex ár, en lagðist þá niður. Það var endurreist árið 1817 og þar kemur við sögu sá maður, sem mest áhrif átti eftir að hafa á upplýsingu og menntun almennings við Breiðafjörð og á Vestfjörðum um miðbik síðustu aldar: Ólafur Sívertsen, prófastur í Flatey. Ólafur og kona hans, Jóhanna Friðricka, komu á fót menningarfélagi í Flatey árið 1820, er nefnt var Framfarastofnunin. Tilgangur þess var ,,að efla upplýsingu, siðgæði og dugnað í Flateyjarhreppj’eins og segir í stofnbréfi þeirra hjóna, einkum með því að lána bækur, sum- part danskar, og einnig með því að veita verðlaun eða præmíu til þeirra, sem álitið var að skarað hefðu fram úr innan sóknarinnar í nytsamlegri þekkingu, siðgæði og dugnaði. Auk þeirra hjóna gáfu ýmsir embættismenn, kaupmenn og gildari bændur Framfarastofn- uninni bækur og nokkra peninga. Árið 1858 átti bókasafn þess 1102 bækur, þar af voru 351 á íslensku, 644 á dönsku, 85 á þýsku og 22 á- latínu. Brynjólfur Benedictsen, kaupmaður og fræðaunnandi í Flatey, lét árið 1864 reisa fyrir eigið fé fyrstu bókhlöðu á íslandi undir bóka- safn Framfarastofnunarinnar. Um þessar mundir var einnig í Flatey safn bóka, er danskur háskólakennari, Jens Möller að nafni, hafði gefið klerkum á íslandi. Það var um 250 bindi og nefnt hið Mölleríska bókasafn. Var þá hvergi á íslandi jafn mikill bókakostur á HLJÓÐABUNGA 17

x

Hljóðabunga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.