Hljóðabunga - 01.11.1978, Page 18

Hljóðabunga - 01.11.1978, Page 18
þessum tíma og í Flatey, þegar frá er talin Reykjavík. Áhrifanna af starfsemi Framfarastofnunarinn- ar gætti meðal annars í því, að í Barðastrandar- sýslu var stofnað fyrsta lestrafélag alþýðu í íslandi: Lestrarfélag Guðdæla, árið 1843. Því næst spruttu upp lestrarfélög í Múlasveit, Sauðlauksdals- og Rauðasandssóknum, í Ön- undarfirði, í Dalasýslu og á Snæfellsnesi. Strandamenn stofnuðu Lestrarfélag Trölla- tungu- og Fellssafnaða og um tíma áttu félags- menn þess kost á fjölmörgum blöðum og tímaritum: Nýjum félagsritum, Reykjavíkur- pósti, Skírni, Norðurfara, GESTI VEST- FIRÐINGI, Þjóðólfi, Lanztíðindum, Norðra, Ingólfi, Alþingistíðindum, svo og Fjölni. Ólafur prófastur Sívertsen og vinir hans, sem stóðu saman að Framfarastofnuninni, létu ekki staðar numið við þann félagsskap einan. Árið 1840 stofnuðu þeir hið svonefnda Bréflega félag. Tildrögin voru þau, að þeim þótti fráleitt að ekkert tímarit væri gefið út í landinu, en Sunnanpósturinn hafði lagt upp laupana tveim árum áður og aðeins tvö tímarit bárust þá landsmönnum, bæði úgefin af Is- lendingum í Kaupmannahöfn: Skírnir og Fjölnir. (Ný félagsrit, undir forystu Jóns Sig- urðssonar, bættust í hópinn ári seinna). Bréf- lega félagið var því hugsað sem eins konar grein af Framfarastofnuninni og átti að vinna að því að fá menn til að skrifa um þjóðfélags- mál og sjá um að það kæmist fyrir almennings sjónir. í iögum félagsins, sem hét fullu nafni „Flat- eyjar framfara stofnlega bréflega félag“, segir um markmið þess, að það sé „að vekja fjör og anda, umhugsun og útbreiðslu nytsamra hug- leiðinga um landsins gagn og nauðsynjar, leitast við að gagna og gleðja, og bæta með því úr skorti þarflegra tímarita, en gefa þeim mönnum, sem þar til hafa færi og löngun, kost á að opinbera sem felstum, án nokkurs sérlegs tilkostnaðar, gagnsamlegar meiningar sínar, enda þótt þeir fái þeim ekki á prent komið.“ Félagsmenn áttu að greiða ákveðinn inn- gangseyri og árgjald, en skuldbundu sig einnig til að senda árlega ritgerð. Svonefndir „lestrar- limir“ gátu ennfremur fengið lánaðar ritgerðir félagsins, fyrir nokkra skildinga, en nutu eigi annarra réttinda. Meðlimir Bréflega félagsins urðu flestir 33, þar af voru 19 bændur, og ÁRSRITIÐ GESTUR VESTFIRÐÍNGUR CEFIÐ ÚT AF FLATEYAR FRAMFARA STOFNFÉLAGS RRÉFLEGA FÉLAGL (&> F y r s t a á r» ji, V‘ @42+48+-«+ forstoÐunkfríd: ÓIjAFItR SÍVERTSEIV, I{IIYNJÚLFITR BENEDICTSEN, EIRÍKUR KÚLD, CUÐMUADUR EINARSSOA. flut' |)u iiú, Cestur, gaungu þiuu iifn fósturfold, ojn fréttir tjáftu; fróóleiks og mcnta frömudiir vertu, kurteys meö einurö kynn hift sanna. R E Y K .1 A V í K l’rentaA í preritsniiftjii lamlsiiii af Helga Hel^asyni. 1847. Titilblað Gests Vestfirðings. ritgerðirnar sem birtust fram undir 1851 urðu 80 talsins. Félagsmönnum Bréflega félagsins, einkum þeim Ólafi Sívertsen og Brynjólfi Benedict- sen, varð brátt ljós nauðsyn þess að geta birt ritgerðirnar almenningi, og þannig urðu til hugmyndir um útgáfu tímarits og jafnvel stofnun prentsmiðju. Því var það, að í nóv- ember 1845, boðaði Ólafur til fundar í Flatey alla meðlimi félagsins og var á þeim fundi ákveðið að gefa út ársrit, er birta skyldi ritgerðir félagsmanna og fleira. Fjögurra 18 HLJÓÐABUNGA

x

Hljóðabunga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.