Hljóðabunga - 01.11.1978, Síða 38

Hljóðabunga - 01.11.1978, Síða 38
22. Seggjum greinir sagan Ijós saman þetta á rifinu ber nes Kaldrana - finnur fjós fossinn sá í ánni er. 23. Enn fyrir þá ertu rif allvel kominn sundið blá lát ei verða á leiðum svif líka haltu Stigann á. 24. Höfðinn Vals - er harla hár hermt stjórnborða þá að hlið og til þess hún Grímsey gár í gilið Þorpa er rennt á snið. 25. Búðar vog ég birti frá beint fyrir ofan sker eitt er ýmislegt þar óttast má ef ei vel til leiða sér. 26. Er og gilið eyjuna við undir eins og segir frá kastið máls um mærðar snið meining hefur sanna þá. 27. Bjarnarnes fyrir bæinn inn beint mátt halda þessa leið gilið Þorpa gróðurinn minn greitt má losna skers við reið. 28. Vfst skalt halda á Vatnsnesfjall er virðar kalla Brandafell þó til suðurs þér að hall þarf ei kvfða neinum skell. 29. Seima börnum segi ég reynt sannlega nóg er undir djúp fram skulu halda höldar beint Helgafell á Víkurnúp. 30. Það inn eftir þá úr því þú mátt halda réttan kós allt þó viljir Brekku á bý boði er einn á leið óljós. 31. Undan stefnu Ennis bæ á þá Fellið losna við lát það aftur gjöra að gæ geym að skríða inn á mið 32. Sagan úti um sagða leið svo til lykta kljáð nú er hýrar frúr og hringa meið hver sem hlýðir forlát mér. Ljóðabréf Hallvarðar Hallssonar er á marg- an hátt mun skemmtilegri lesning en Strand- leiðarríman, enda er hann þar að lýsa bæði landslagi, veðráttu og atvinnugreinum Strandamanna á 18. öld. Bréf þetta er ort til Orms sýslumanns Daðasonar, 6. september 1744. Hér er stuðst við handrit Bólu Hjálmars (Lbs/1440,4to) og Þorsteins Þorsteinssonar (Lbs/681,4to), sem fyrr er getið. Ljóðabréf 1. Efnis leita mitt skal mál f mærðar blandi þó með orða þíðu standi þér að gamni tilskrifandi. 2. Upp á skemmtun einum þér í óðar gildi það er ei sem þéna skyldi þótt að öðrum sýna vildi. 3. Setja vil ég Sómar þátt í sögu slétta umgetandi fátt til frétta fljótt þó undirvísa þetta. 4. Ef að greina ég skal þér með orðum vöndum eyðiplássið allt á Ströndum ólfkt er það Suðurlöndum. 5. Hættuleiöir Horns á ströndum hér má sanna í fyrstu viku fardaganna fullbúinn ég var að kanna. 6. Sjófarendum viðnám veitir vegurinn stirði kom ég leið úr Kollafirði kannske margur fyrir sér virði. 7. Var ég orðin þjáður þá til þrauta löngum af óvegum ærið ströngum allt var skaplegt norður að Dröngum. 8. Minn þá bróðir með mér var ég má það inna orku sýndu ærið stinna engu fljórri mér að vinna. 9. Vorum við sagðir vitlausir f vinnugerðum tfðum veginn tveir þó herðum tamir lítt í sjóarferðum. 10. f Trékyllis opna vík ég upp nam halda bæði gekk þá brim og alda beint á land með austan kalda. 11. Á grynningum ekki þar sig aldan duldi stóð þar eftir stormur og kuldi Strandasýslu fjöllin huldi. 38 HLJÓÐABUNGA

x

Hljóðabunga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.