Hljóðabunga - 01.11.1978, Síða 42

Hljóðabunga - 01.11.1978, Síða 42
Hvað er menning? Jónas Guömundsson: Þróun menningar — hvert stefnir? Inngangur íslensk menning er engin fornaldarrós. Hún hefur breyst mikið á löngum tíma en þó aldrei eins og á allra síðustu áratugum. Nú á hver vitandi íslendingur fjölda dæma í endur- minningajsóðum frá umskiptum gamalla og nýrra siða í landinu. En hver eru helstu einkenni þessara siðaskipta, þessara breytinga á menningunni? Lítið hefur heyrst af gagnrýni á þróun menningar á íslandi. Breytingum hefur flest- um verið tekið sem fagnaðarboðum nýs tíma og þeim hugsunarlítið stungið í flokk fram- fara. Og vissulega er oft ástæða til að fagna. En það er oft ekki minni ástæða til að efast; til að skoða breytingarnar í víðtæku samhengi og leita meðal þeirra varhugaverðra tilhneiginga. Til að varpa ljósi á nefndar tilhneigingar væri ráð að einangra ákveðna þróunarþætti menningarinnar og nota við það, sem hjálpar- tæki, reynsludæmi úr öðrum þjóðfélögum og skýringaskrif nokkurra mannfræðinga. En fyrst verður að skýra merkingu hugtaks- ins menningar. Með íslenskri málvenju hefur merkingu menningarhugtaksins verið þvælt og rangsnú- ið. Dagleg notkun þess er gjarnan bundin við fagurfræði, s.s. bókmenntir og listir. Dæmi af því tagi má finna í orðunum, menningarviti og menningarsnobb og í tískuorðinu árið 1975, menningarneyslu, sem á að merkja lestur bókmennta og setu í leikhúsum, tónlist- arhöllum og fyrirlestrasölum. Við ofangreinda merkingu hugtaksins menningar vil ég ekkert kannast í þessari grein. Samkvæmt skilningi þess manns, sem mest og best hefur skrifað um forníslenska menn- ingu, Sigurðar Nordal, samsvarar menningerl- endu orðunum culture og kultur. Þessi alþjóð- legi orðstofn á rætur að rekja til latnesku sagnarinnar vultura, sem þýðir að rækta land. Jarðrækt var einmitt eitt merkasta stigið í þróun mannlegs samfélags. Frummerkingin í culture er því ákveðið dæmi um sérhæfni mannsins, en hefur nú víkkað út yfir allt sem maðurinn á fram yfir aðrar lífverur. Menning samsvarar því vel nútímamerkingu erlenda hugtaksins culture. í mannfræði er menning nákvæmar skil- greind. Á fræðilega hátt má lýsa menningu sem skipulagi á hegðunarlögmálum og við- miðum hvers menningarhóps. Hún er kerfi útbreiddra félagslegra hugmynda, félagslegt skipulag, sjálfsvitund. Hún er leið mannsins til að viðhalda tegund sinni. Að frágengnum slíkum fræðilegum skilgreiningum getum við sagt að menning sé allt sem viðkomi skipulagi mannlegs samfélags, stofnunum þess, tækni og vinnuaðferðum, lífsgildum þegnanna og trú- arbrögðum. f stuttu máli, öll einkenni samfé- lagsins, frá stórum einingum til smárra og frá hugarheimi til efnislegra uinmerkja. Breytileiki menningar Frá því að sögur hófust, og lengur ef marka má fornleifarannsóknir, hafa lifnaðarhættir mannsins verið að breytast, menningin að þróast. Einstakar uppgötvanir, s.s. hagnýting eldsins, hafa búið manninum gjörbreytt lífs- skilyrði. En hvort slíkar uppgötvanir eigi 42 HLJÓÐABUNGA

x

Hljóðabunga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.