Hljóðabunga - 01.11.1978, Page 49
Eitt af millistigum vestrænnar menningar: fjöldaframleiðsluhættir hafa rutt sér til rúms. Myndin
sýnir þýska verksmiðju um aldamótin 1900.
Hvað er hægt að gera?
Það eru engin óumflýanleg örlög að íslensk
menning lendi á sama stigi og menningin
Vesturlanda. Við höfum ennþá tækifæri til að
sveigja af þeirri þróunarbraut, sem við erum
stödd á. Og ég vil leyfa mér að benda á fáeina
tillögur til úrbóta: Við gætum t.d. úthýst
fjöldaframleiðsluháttum, en sett okkur þess í
stað að byggja upp sjálfstætt efnahagskerfi
með megin einkennum smáiðnaðar, nýtingu
innlendra hráefna með hjálp innlendra orku-
gjafa. Við gætum ætlað persónutengslum
meira rúm en nú er. Við gætum aukið mann-
gildið gagnvart peningagildinu. Við gætum
eflt sjálfstæði þjóðarinnar, svo að menningar-
arfur hennar fái að njóta sín, í stað þess að láta
erlenda strauma vera allráðandi.
Ég tel að með hækkun menningarstigsins,
gætum við varðveitt öll bestu einkenni sam-
myndaðrar menningar, og nálgast jafnframt
frammyndaða menningu, og þannig tryggt
hraðar breytingar í þjóðfélaginu.
En tillögugerð er ekki höfuðviðfangsefni
þessarar greinar. Tilgangi greinarinnar er náð,
ef tekist hefur að varpa örlitlu ljósi á það,
hvernig menning á vanda til að þróast, og
hvort þróunin bendi tii þess framtíðarskipu-
lags sem við höfum að markmiði.
Gert í Dartmouth Gollege,
Hanover, Bandaríkjunum,
janúar 1978.
j.G.
Bókalisti:
Fredrick C Gamst og Edward Norbeck: „Ideas of
Culture; Sources and Uses. “
Margaret Mead: „Culture and Commiltrnent“.
Sigurður Nordal: „ Baugabrot. ”
Ritstjórar„ The Ecologist“: „Ideimur á helvegi. “
Hagtiðindi, maí 1977; útg. Hagstofa Islands.
1)
Þessar tölur eru upphaflega í skýrslu frá OECD en voru
teknar upp í Hagtíðindum. maí 1977. útgefnum af
Hagstofu fslands. Orkunotkun á fslandi 1974 sam-
svaraði 5,35 tn af olíu á íbúa og í Bretlandi 3.82 tn. Til
að gefa örlitla hugmynd um hvað þessar tölur merkja í
öðrum orkueiningum má nefna að orkunotkunin á
íslandi jafngilti 62 milljón kílówattstundum á íbúa árið
1974.
)
HLJÓÐABUNGA
49