Hljóðabunga - 01.11.1978, Síða 52

Hljóðabunga - 01.11.1978, Síða 52
Þegar Atlantis hvarf í þangiö Hljóðabunga kannar þangvinnslu í Noröur-Noregi Þang og þörungavinnsla hafa valdið mikl- um höfuðverk síðastliðið ár, og þá ekki síst það hvernig losa eigi þennan nytsama sjávargróð- ur af hafsbotni. Það var því tæpast tilviljun sem réði því að ég brá undir mig betri fætinum s.l. vor og litaðist um á Brasey við Hálogaland, þar sem um langt skeið hefur verið rekin þörungavinnsla. Brasey er í eyjaklasa sem kenndur er við Herey, og þangað gengur ferja frá uppgangs- plássinu Sandnessjöen sem nú nýtur blessunar Norðursjávarolíunnar í formi stóriðju í bor- pallaframleiðslu. Ókræsileg braggahverfin umhverfis iðjuverið, sem hýsa aðflutta verka- menn, vitna um þann vanda sem er samfara snöggum vexti. Fáir leiða þó hugann að slíku, því mikið er í húfi að ná olíunni af geymslu- stað sínum á hafsbotni, og það snarlega. Á ferjunni til Braseyjar hittum við gamlan sjó- mann sem fræðir okkur um eyjabyggðina og örlög hennar. Fyrr meir segir hann þungamiðju byggðar- innar hafa verið úti í eyjum, enda er þar meira undirlendi og styttra á fiskimiðin en frá fastlandinu. Fólk stundaði hér landbúnað og sjómennsku jöfnum höndum, enda fiskur all- staðar innan skerja. í eyjunni blasir við okkur mikið þéttbýli, þessi einkennandi jafna dreif- ing húsanna, sem hvorki er hægt að kalla sveit eða þorp á íslenskan mælikvarða. —En núna, segir sá gamli, er farin að þynnast hér byggð- in, mörg húsin eru aðeins notuð á sumrin, en fólkið vinnur annarsstaðar á vetrum. Sjálfur varð hann að hætta við bát og búfé þegar heilsan bilaði, enda börnin farin að heiman og út í buskann. Stjórnin hefur ekki litið náðar- augum á útvegsbændur síðustu áratugina, en reynt að fá menn til að stunda annað tveggja, landbúnað eða fiskveiðar. Slíkir kostir eru óaðgengilegir fyrir eyjamenn, og margir hafa valið að flytja, en hinir hafa flestir snúið sér að fiskinum einum, en fargað búfénu. —Það er ekki talið borga sig að hafa hér fé, segir sá gamli, —en gaman var nú að ánum, bætir hann við og hann ljómar eins og barn þegar hann hnyppir í mig til að sýna mér jórtrandi tvílembu sem liggur í dularfullum þönkum á grasbala á stórum hólma sem við siglum framhjá. Ég spyr um þangvinnsluna, og hann segir þetta nú vera orðinn feikn mikinn iðnað og möguleika á góðum tekjum við þangskurðinn. Sjálfur stundaði hann mikið þangskurð meðan hann var og hét, en áður fyrr var nú lítið uppúr þessu að hafa nema þreytuna. Þá þurfti maður sjálfur að koma þanginu á land og þurrka það við eld, en núna er þetta allt annað. Menn slá þangið með orfi og ljá, og vaða út með landinu í vöðlum. Þangið sem flýtur upp við sláttinn lendir inni í stóru hringneti sem síðan er snurpað saman þannig að þangið myndar þétta fljótandi breiðu. Þessi þangfloti er síðan dreginn frá landi með bát og flutningabátur kemur að sækja það. ÍBrasey Þegar við göngum á land í Brasey blasir verksmiðjan við. Hún minnir á gömlu fiski- mjölsverksmiðjuna á Torfnesi á ísafirði, breið bárujárnsskemma með rjúkandi strompi, og innan veggja er olíukynnt þurrkunartromla sem snýst. Verksmiðjan gengur allan sólar- hringinn, og við hana starfa 6-8 manns á tveimur vöktum. Einn þeirra hittum við um kvöldið þar sem hann var að huga að trjám í 52 HLJÓÐABUNGA

x

Hljóðabunga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.