Hljóðabunga - 01.11.1978, Page 58
Pier Paolo Pasolini:
/fáum ríkjum jarðar er andstœðan milli auðlegðar
katólskrar kirkju og örbirgðar alþýðu jafn átakanleg
og á Italiu. Þessi andstœða hefur orðið skáldum og
listamönnum þess sögufrœga lands að mikluyrkisefni.
Pier Paolo Pasolini (1922-1976) var, auk þess að
vera skáld og nthöfundur, einhver frœgasti kvik-
myndahöfundur og leikstjón siðustu áratuga. Meðal
Ijóðabóka hans eru: Le ceneri di Gramsci (1957) og
La religione del mio temþo (1961).
Til páfa
Skömmu fyrir andlát þitt
haföi dauðinn fest sjónir á einn jafnaldra þinn;
um tvítugt varst þú stúdent, hann verkamaður,
þú auðugur og tiginborinn, hann fátækur og ættlaus
en dagarnir liðu jafnt fyrir hann og þig
og hinn forni svipur Rómar breyttist.
Vesalings Zucchetto, ég sá jarðneskar leifar hans.
Hann hafði nótt eina reikað um drukkinn gegnum markaðstorgin
og orðið undir sporvagni frá San Paolo,
dregist nokkurn spöl eftir teinunum
meðfram trjánum
og fyrir skammri stundu var hann ennþá undir hjólunum;
hópur manna safnaðist saman og horfði þegjandi á hann;
það var framoróið og fáir á ferli.
58
H LJÓÐABUNGA