Hljóðabunga - 01.11.1978, Blaðsíða 64

Hljóðabunga - 01.11.1978, Blaðsíða 64
ur ef hér brytust út harðvítug verkföll. Ég byði ekki í það. Og þá vaknar spurningin: hvernig getum við betur haldið uppi röð og reglu en einmitt með því að láta FBI mennta allt okkar lögreglulið og skipa sína menn í mikilvægustu stöðurnar? Gústi: Ha? Ókunn.: Þeir hafa gert þetta fyrir mörg ríki, einkum í Suður Ameríku, með frábærum árangri Gústi: En.. Ókunn.: Þér finnst kannski ekki nauðsyn að á að halda uppi röð og reglu? Gústi: Ha? Jújú, mikil skelfing. Nei ég ætlaði bara að segja að dómskerfið þyrfti allt endur- skoðunar við. Ég sagði það líka á fundinum um daginn. Okunn.: Og verður þjóðin ekki að vera sjálfri sér samkvæm? Gústi: Ha? Jú... jú auðvitað. Ókunn.: Og fyrst við viljum að þeir borgi, og fyrst við viljum nýta reynslu þeirra og þekk- ingu, og fyrst við viljum láta þau mál ganga fyrir sem mikilvægust eru en samt í hvað mestum ólestri - nú, hvað er þá sjáifsagðara en að þeir taki að sér dómsmálin? Gústi: Þú segir það. Dóra (lágt): Oh, Gústi, þú ert búinn úr glasinu. Gústi (lágt): Heyrðu? Farðu og kauptu fyrir okkur báða. Dóra:(lágt): Ég held nú ekki! Ókunn.: Konan þín er greinilega orðin óróleg. Gústi: Neinei, alls ekki, alls ekki. (Lágt við Dóru:) Þetta er með áhrifamestu... Og þó hann sé kannski dáldið... Ég verð kannski kosinn í nefnd, kannski varnarmálanefnd. Hugsaðu um það! Ókunn.: Þá er það eitt vandamálið, konurnar og börnin. Gústi: Ha? Ókunn.: Þjóðfélagið einkennist um þessar mundir af siðferðislegri upplausn. Það er staðreynd. En ekki sprettur hún af sjálfri sér, eða hvað? Gústi: Ne-ei... Ókunn: Nútíma félagsvísindi hafa komist að þeirri niðurstöðu að hún orsakaðist fyrst og fremst af því, að tvær helstu uppeldisstofnanir þjóðfélagsins, fjölskyldan og skólinn, gegna ekki lengur hlutverkum sínum sem skyldi. Gústi: Það þarf meiri aga í skólana, segi ég. Ókunn.: Einsog mælt af mínum vörum. Við eigum áreiðanlega eftir að vinna vel saman á landsfundinum. —En af hverju stafar agaleys- ið í skólunum? Helsta orsökin er vafalaust slæmir kennarar. Ég veit ekki hvernig ástandið er á ísafirði í þessum efnum, en samkvæmt smá-könnun sem nefnd á vegum flokksins lét gera í samráði við vissa aðila, þá eru 57% kennara á íslandi kommúnistar, hippar og lauslætisfólk. Heil 12% eru allt þetta þrennt. Gústi: Á ísafirði, biddu fyrir þér... Ókunn.: En hvað skal gera? Eigum við að leyfa þessum aðilum að halda niðurrifinu áfram, leyfa þeim að eitra útfrá sér og brjóta niður siðferðisþrek æskunnar, leyfa þeim að grafa undan lýðræðinu? Gústi: Ekki alldeilis, segi ég. Sem ég heiti Gú- stav Pétursson. Ókunn.: En hvað skal taka til bragðs þegar gott og réttsýnt fólk fæst ekki í þessar stöður vegna lágra launa? Svarið liggur í rauninni í augum uppi. Þjóðin verður að vera sjálfri sér sam- kvæm. Sem greiðslu fyrir það dýrmæta land sem hún lætur þeim í té fær hún fullkomna stjórnun þeirra á öllum skólamálum landsins. Gústi: Öllum? Ókunn.: Þú heldur kannski að hér dugi eitthvert hálfkák? Gústi: Ha? Nei, auðvitað ekki, auðvitað ekki. —Þú... þú hefur mig afsakaðan andartak, bara andartak. (Hverfur inná barinn. Þögn. Ókunnugur og Dóra horfa hvort á annað.) Ókunn.: Fjöllin eru bundin hálendinu. Þau geta ekki losað sig eitt andartak. En... (Þagnar). Dóra: En giftar konur... (þagnar). Ókunn.: Það er nú það. Dóra: Já, það er nú það. Ókunn.: Það er margt í mörgu. Dóra: Það má nú segja. Ókunn.: Sveimér margt í mörgu. Dóra: Sveimér margt í sveimér mörgu. Okunn.:Jamm ogjamm. Dóra: Bara ef sumir væru ekki að fara á lands- fund. Ókunn.: Sumirog ekki sumir. Dóra: Sumir og ekki aðrir? Ókunn.: Jólasveinar einn og átta.... Dóra:... ofan komu af fjöllunum... 64 HLJÓÐABUNGA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Hljóðabunga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.