Hljóðabunga - 01.11.1978, Blaðsíða 71
Mál og menning gefur t ár ái um það
bil þrjátíu bækur. Meðal útgáfubóka
eru þrjár íslenskar skáldsögur, smá-
sagnasafn, þrjár Ijóðabækur, fjögur
þýdd skáldverk, barnabœkur ogfræði-
rit að ógleymdu einhverju merkasta
ævintýrasafni veraldarbókmenntanna,
Þúsund og einni nótt. Eitt af megin
verkefnum Máls og menningar er að
gera almenningi kleift að eignast góð-
ar bækur við viðráðanlegu verði.
Þetta hlutverk rækir Mál og menning
með því að bjóða félagsmönnum út-
gáfubækur sínar 15-25% undir mark-
aðsverði.
Árgjald félagsins er 3.500 krónur.
Innifalið í þvi eru 4 hefti Timarits
Máls og menningar, á fimmta hundr-
að blaðsiður af sögum, Ijóðum ogýmis
konar ritsmiðum. Líki félagsmönnum
ekki útgáfubækurnar erti þeir ekki
skyldugir til að kaupa nokkra þeirra.
Gerstu félagsmaður
í Máli og menningu!
Meðal útgáfubóka MM 1978 eru:
Guðlaugur Arason: Eldnúsmellur.
Guðbergur Bergsson: Flateyjar-Freyr.
Ólafur Jóhann Sigurðsson: Virki og vötn.
William Heinesen:Fjandinn hleypur í Gamalíel.
Gabríel García Márquez: Hundrað ára einsemd.
Einnig bækur eftir þessa höfunda:
Ólaf Hauk Símonarson, Úlfar Þormóðsson, Sjöwall&Wahlöö,
Böðvar Guðmundsson, Hannes Sigfússon, Sófókles, Einar
Olgeirsson, Astrid Lindgren, Sven Wernström, K.M. Peyton,
Gísla Pálsson o.fl.
Umboðsmaður á ísafirði: •
Hallur Páll Jónsson (s. 3920). Irlíll Og IllCnillllg
HLJÓÐABUNGA
71