Bænavikan - 07.11.1959, Síða 4
4
Systkini, þið, sem hafið veitt sannleika Guðs
orðs viðtöku, hvaða þátt viljið þið eiga í síð-
ustu viðburðum hoimssögunnar? Gerið þið
ykkur grein fyrir mikilvægi þessa atriðis?
Gerið þið ykkur grein fyrir hinu mikla undir-
búningsstarfi, sem fram fer bæði á himni og
jörðu? Allir, sem hafa veitt ljósinu viðtöku
og fengið tækifæri til að lesa og hlýða á spá-
dómana, ættu að gefa gaum að innihaldi þeirra,
„því að tíminn er í nánd. Enginn skyldi eiga
neitt saman við synd að sælda. ... Eða halda
áfram í deyfð og heimskulegu hirðuleysi. Lát-
ið ekki sálarheill ykkar hanga á heljarþröm
óvissunnar. Verið viss um, að þið séuð Guðs
megin. Spyrjið af auðmjúku hjarta: Hver
mun fá staðizt? Hafið þið kostað kapps um
að vanda til uppbyggingar lyndiseinkunnar
ykkar á þessum síðustu, dýrmætu stundum
náðartímans? Hafið þið hreinsað sálir ykkar
af öllu illu? Hafið þið fylgt ljósinu? Eru verk
ykkar í samræmi við trúarjátningu ykkar?
„Vinna mýkjandi og göfgandi áhrif Guðs
náðar á ykkur? Eru hjörtu ykkar næm, augu
ykkar sjáandi og eyru ykkar heyrandi? Hefur
boðun hinna eilífu sanninda um þjóðir jarðar-
innar verið til eihskis gagns? ...
„Ef þið vanrækið eða skeytið engu viðvör-
unum Guðs, ef þið alið með ykkur synd eða
afsakið hana, innsiglið þið örlög sálar ykkar.
... Vinnum heilshugar með eilífðina fyrir aug-
um, meðan náðartíminn varir og meðan Jesús
er milligöngumaður okkar.“ Test. 6b 404 405.
Mætti þessi Bænavika verða til þess að vekja
sérhvert okkar til að undirbúa okkur fyrir
þann dag, þegar hin trúu og bíðandi börn
Guðs segja með fögnuði: „Þessi er vor Guð,
sem vér vonuðum á að hann mundi frelsa oss.“
Mættum við öll verða meðal þeirra, sem þráð
hafa opinberun hans.