Bænavikan - 07.11.1959, Side 9

Bænavikan - 07.11.1959, Side 9
9 falla fram og tilbiðja líkneski það, er ég hefi gjöra látið, þá nær það ekki lengra, en ef þér tilbiðjið það ekki, þá skal yður samstundis vera kastað inn í eldsofn brennandi, og hver er sá guð, er yður megi frelsa úr mínum hönd- um?“ (Dan. 3, 14. 15.) Það hefði verið auðvelt fyrir þessa menn að láta undan vegna ótta við dauðann, þegar þeir heyrðu þessa skipun, ef sannfæring þeirra hefði ekki verið á traustum grundvelli byggð. Staða þeirra bauð upp á frægð og áhrifamátt, en þeir skildu til fulls, að æðsta skylda manns- ins er að sýna Guði trúmennsku allt til dauða. Orð Guðs var öllu æðra. Ef eitthvað, sem fyrir þá kom í lífinu, braut í bága við það, vissu þeir, að þeim bar að standa Guðs megin. Trú þeirra haggaðist ekki við orð konungsins, held- ur svöruðu þeir án þess að hika: „Vér þurfum ekki að svara þér einu orði um þetta. Ef Guð vor, sem vér dýrkum, getur frelsað oss, þá mun hann frelsa oss úr eldsofninum brennandi og af þinni hendi, konungur; en þótt hann gjöri það ekki, þá skalt þú samt vita, konung- ur, að vér munum ekki dýrka þína guði, né til- biðja gull-líkneskið, sem þú hefir reisa látið.“ (Dan. 3, 16—18.) Árangurinn af þessu varð sá, að Nebúkad- nezar varð að viðurkenna fyrir öllum, að Guði bæri heiður og dýrð. „Síðan hóf konungur þá Sadrak, Mesak og Abeð-Negó til stórra mann- virðinga í Babelhéraði." (Dan. 3, 30.) Þeir öðluðust því „líf og nægtir.“ (Jóh. 10, 10.) Meðan þurrkurinn stóð yfir á dögum Elía, „kom orð Drottins til hans, svolátandi: Far þú héðan og hald austur á bóginn, og fel þig við lækinn Krít, sem er fyrir austan Jórdan. Og þú skalt drekka úr læknum, og hröfnunum hef ég boðið að fæða þig þar“. (1. Kon. 17, 2—4.) Seinna „kom orð Drottins til hans svolátandi: Tak þig upp og far til Zarpat, sem liggur undir Zidon og sezt þar að; sjá, ég hefi boðið ekkju nokkurri þar að fæða þig.“ (1. Kon. 17, 8. 9.) Þess konar lifnaðarhættir eru með öllu óal- gengir, og menn gera sér þá ekki auðveldlega að góðu, en þetta var orð Guðs, og fyrir það hélt Elía lífi. Menn halda, að þeir eigi vizku og skynsemi og finnst orð Guðs ekki vera í samræmi við óskir sínar. „Vér skulum sjálfir fæða oss og klæða,“ (Jes. 4, 1.), segja þeir. „Þeir fara hver sinna ferða, líta allir á sinn eiginn hag.“ (Jes. 56, 11.) í skammsýni sinni langar manninn stundum til, eins og sagt er í einni af dæmisögum Krists, að rífa niður gömlu hlöðurnar og byggja aðrar stærri, svo að nóg rúm verði fyrir forða hans og auðæfi, og hann segir síð- an við sál sína: „Sál mín, þú hefir mikil auð- æfi, geymd til margra ára; hvíl þig nú, et og drekk og ver glöð. En Guð sagði við hann: Heimskingi, á þessari nóttu verður sál þín af þér heimtuð.“ Sá, sem þannig lætur ógert að hugsa um andlegan hag sinn, „er ekki ríkur hjá Guði.“ (Lúk. 12, 16—21.) Eftir skírn sína, var Jesús „leiddur af and- anum út í óbyggðina, til þess að hans yrði freistað af djöflinum; og er hann hafði fastað f jörutíu daga og f jörutíu nætur, tók hann loks að hungra. Og freistarinn kom og sagði við hann: Ef þú ert Guðs sonur, þá bjóð þú, að steinar þessir verði að brauðum." (Matt. 4, 1—3.) Það var á Krists valdi að framkvæma slíkt kraftaverk; hann gerði það síðar öðrum til blessunar. En hann vildi ekki gera krafta- verk til að afsanna þá getgátu, að hann væri ekki sonur Guðs. Líkaminn þráði brauð, en Kristur stóð stöðugur í orði Guðs. Hann vildi ekki forsmá fyrirheit Guðs og setja traust sitt á líkamlegt viðurværi. Fæða Krists var að gera vilja þess, sem sendi hann og fullkomna verk hans, (Jóh. 4, 34.) Hann langaði ekki til að hindra verk hjálpræðisins vegna brauðs. Hann, sem var fæddur undir lögmáli, „til þess að hann keypti lausa þá, sem voru undir lög- máli“, (Gal. 4, 4. 5.), getur sóð aumur á veik- leika okkar, því að hans var „freistað á allan hátt eins og vor“, (Heb. 4, 15.) Hann vissi, að mennirnir myndu ekki geta boðið steinum að verða að brauði, ef þeir væru hungraðir. Til þess að geta orðið frelsari mannkynsins, varð hann að vinna sigur yfir freistingum í að- stöðu hins dauðlega manns. Hann varð að vinna þar sigur, sem hinum gamla Adam mis- tókst. I The Desire of Ages lesum við: „Þegar Kristur sagði við freistarann: ,Maðurinn lifir ekki á brauði einu saman, heldur á sérhverju orði, sem fram gengur af Guðs munni', endur- tók hann orðin, sem töluð höfðu verið til Isra-

x

Bænavikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.