Bænavikan - 07.11.1959, Síða 18

Bænavikan - 07.11.1959, Síða 18
18 — Jesúm Krist öllum heiminum. Þetta er gífur- legt hlutverk. Margbreytilegir menningarhætt- ir, fjöldi flókinna tungumála og margvísleg- ar stjórnmálastefnur skapa erfið vandamál, sem virðast óleysanleg frá mannlegu sjónar- miði séð. Þörfin á leiðtogum og fjárhagsleg- um stuðningi í þessu víðtæka ætlunarverki er gífurleg. Mannmergðin í heiminum, sem er dreifð út til yztu endimarka jarðarinnar, bíður eftir fullkomnun þessa verks. Kæru lesendur, hugsið um alla_ íbúana á hnetti okkar, 2,7 billjón talsins! Á hverju ári er fjölgun þeirra 30—35 milljónir! Milljónir þeirra hafa aldrei heyrt eða lesið fagnaðarboðskapinn. Guð hefur í náð sinni og miskunn gert aðventfólkinu það mögulegt að efla starf sitt með trúboðsstöðvum víðs vegar um heim. Kirkjur hafa verið reistar og söfnuðir mynd- aðir í flestum löndum heims. Bókmenntir hafa verið gefnar út á 24 tungumálum. Heilsuhæli hafa verið stofnuð um allan heim, sem eru starfrækt af læknum og hjúkrunarliði. Prestar og trúboðar vinna að útbreiðslustarfi á 787 tungumálum og mállýzkum. Safnaðarmeðlimir hvarvetna í heiminum hafa fúslega og örlát- lega helgað syni sína og dætur þessu ætlunar- verki að boða heiðingjunum kristni. Heitar, einlægar og kærleiksríkar bænir hafa stigið upp til Guðs um blessun hans á þessu víðtæka verki frá fólki, sem er sameinað í heilögu áformi um að ljúka starfinu. En því er enn ekki lokið. Samkvæmt skýrslum Sameinuðu þjóðanna eru 208 lönd og ríki í heiminum. Sjöunda dags aðventistar starfa í 185 löndum, sem innihalda 98% af íbúatölu heimsins. Margra þjóðflokka í þessum 185 löndum hefur ekki enn verið náð til með boðskapinn um endurkomu Krists. Frá einu starfsvæði, sem rækt hefur verið í rúml. 60 ár, berast þær fréttir, að innan endimarka þess séu 135 borgir hver um sig með 10.000 íbúa eða fleiri, og að skipulegt starf sé hafið í aðeins 38 þessara borga. 1 öðru starfsvæði, þar sem starf hófst stuttu fyrir síðustu aldamót, eru 242 borgir hver með 10.000 íbúa eða fleiri, en í 117 þeirra hefur enn ekki verið starfað. Þegar við virðum þetta ófullgerða ætlunar- verk fyrir okkur, er okkur næst að álíta, að faðir okkar á himnum vilji, að við sýnum meiri andlegan áhuga fyrir því að útbreiða boðskap- inn, bæði heima og að heiman. Lokaþætti starfsins er lýst í Opinberunarbókinni á eftir- farandi hát’t: „Eftir þetta sá ég annan engil stíga ofan af himni og hafði hann mikið vald, og jörðin Ijómaði af dýrð hans“ (Op. 18, 1). Við vitum, að við verðum að fórna miklu og sýna meiri kostgæfni og að samheldni er nauð- synleg, til þess að málefni Guðs eflist og beri sigur úr býtum. Guð vill, að við horfumst í augu við lokaþátt starfs hans með trú, trausti og hugrekki, því að við vitum, að þetta gífur- lega átak, hið stærsta og háleitasta, sem sagan getur um, verður til lykta leitt fyrir mátt Heilags anda og í honum. Stærstu sigrarnir vinnast „ekki með valdi né krafti, heldur fyrir anda minn, segir Drottinn hersveitanna." Eitt af þýðingarmestu atriðunum í kenningu Krists lærisveinunum til handa var samheldni og eining þeirra á milli. Fyrirmynd þessa var einingin, sem ríkti milli hans sjálfs og föður- ins. „Allir eiga þeir að vera eitt, eins og þú, faðir, ert í mér og ég í þér, eiga þeir einnig að vera í okkur; til þess að heimurinn skuli trúa, að þú hafir sent mig,“ (Jóh. 17, 21) sagði hann. Páll postuli talar um einingu í Andanum í Efesusbréfinu. Hann leggur áherzlu á, að söfnuðurinn komist ekki aðeins á þann stað, þar sem eining ríki, heldur ætti einingin að vera dygð, sem stöðugt dafnar innan safnaðar- ins. Bæði lærðir og leikir innan safnaðarins ættu umfram allt að keppa eftir einingu. Skýrasta einkenni postulasafnaðarins var andi einingar. Þetta var undirstaða máttar og styrks í hinu kristna útbreiðslustarfi á þeim tíma. Boðberum fagnaðarerindisins er það nauðsynlegt, að söfnuðurinn sameinist í bæn- um fyrir þeim. 1 upphafi var kristnin samheldin og einhuga hreyfing, og við getum vænzt þess, að andi einingar og samræmis muni einkenna hana, þegar hlutverk hennar verður til lykta leitt. Eining safnaðarins verður fyrst að skapast með einstökum meðlimum hans, sem eiga að sameinast bræðrum síns eigin safnaðar, síðan milli starfssvæða og trúsystkina um allan heim. Menning getur hjálpað okkur til að sameinast trúsystkinum okkar. Persónuleg kostgæfni í að rækta með sér skilning á hög- um annarra hjálpar mjög mikið til að skapa æskilega einingu, en samt sem áður verðum við öll að skilja, að Heilagur andi er hið eina,

x

Bænavikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.