Bænavikan - 07.11.1959, Side 22
— 22
ræknisalda gengur yfir. í því sambandi er
Austur-Afríku ungmennamótið, sem haldið
var í Nairobi í september 1958, e. t. v. stærsta
skrefið í sögu starfsins árið 1958. Hið ómögu-
lega gerðist. 1.600 aðventunglingar komu víðs-
vegar að úr Austur-Afríku til mótsins til að
fá blessun Guðs og sneru heimleiðis innblásn-
ir þeirri kennd að þeir væru hluti mikillar
heimshreyfingar, sem hefur himneskt en ekki
jarðneskt takmark.
Forsjón Guðs leiðbeinir okkur. Á tólf mán-
uðum, eða til 30. sept. 1958, voru 16.529 sálir
skírðar. Starfið eflist, og söfnuðurinn vex svo
ört, að við getum tæplega fylgzt með þróun-
inni, og skapar þetta talsverð vandamál.“
í Miö-Ameríku er meðlimatalan komin yfir
125.000. Samkvæmt skýrslu frá C. O. Franz
ritara deildarráðsins voru samkomur haldnar
snemma á árinu 1958 í sykurreyrhéraði einu
á Jamaica. Samkomutjald var reist á stað,
sem áður hafði verið notaður fyrir spilavíti,
og skemmtanafíknir þorpsbúar komu þangað
í von um, að eitthvað spennandi væri þarna
á ferðinni. Þegar samkomur höfðu verið haldn-
ar um skeið, hétu margir því að reynast Guði
trúir á sama staðnum og þeir höfðu spilað
fjárhættuspil áður. 28. september voru rúml.
1000 manns sjónarvottar að skírn, sem fram
fór í á í grenndinni. 21 gerðu sáttmála við
Guð í skírninni.
í þessari starfsdeild eru framfarirnar örast-
ar í Colombíu og Venezuela. Meðlimatala þar
hefur þrefaldazt síðustu tíu árin, þrátt fyrir
ofsóknir og borgarastyrjöld. Hvíldardag nokk-
urn voru átta menn skírðir í fljóti, sem rann
um landareign safnaðarins í þorpi einu. Allt
í einu komu lögreglumenn þorpsins og tóku
starfsmenn okkar fasta fyrir að halda sam-
komu á þeim stað, sem bannað væri að boða
mótmælendatrú. Biblíur, sálmabækur og hvíld-
ardagsskólalexíur voru gerðar upptækar,
kirkjan innsigluð og leiðtogunum varpað í
fangelsi.
Fangarnir voru brátt umkringdir forvitn-
um hermönnum, lögreglumönnum og föngum.
Þeim var skipt í sex hópa, og fékk hver um
sig að heyra aðventboðskapinn. Áheyrendur
voru djúpt snortnir.
Daginn eftir gengu fangarnir undir yfir-
heyrslu. Þeir voru hart víttir og þeim hótað,
en síðan látnir lausir. Strax á eftir fengu þeir
sér bifreið og fóru til annars þorps, þar sem
í ráði var að hafa aðra skírnarathöfn. Að
henni lokinni, flýttu starfsmennirnir sér í
burtu og glöddust yfir handleiðslu Guðs og
góðum árangri."
Ef við förum til Austurlanda fjær, sjáum
við einnig handleiðslu Guðs anda, sem opnar
Aðventista, sem var þátttakandi hollenzks
Boerhanoe’ddin, sem snerist frá múhameds-
trú, er nú virkur aðventstarfsmaður og hefur
ritað bók, sem heitir: „Kristur í Kóraninum“
á indónesísku. Þessi bók hefur komið út í
fjórum útgáfum í 10.000 eintökum í hvert
sinn og vekur mikla athygli. Áhugi hefur
vaknað og nýir hópar manna, sem halda
hvíldardaginn, myndast.
í fjöllum Vestur-Nýju Guineu gerast krafta-
verk afturhvarfs. K. Tilstra segir frá ungum
aðventista, sem var þátttakandi hollensks
vísindaleiðangurs árið 1957 og dvaldi í fleiri
vikur meðal Bora Bora fólksins. Við prédikun
hans breytti það skjótt um óguðlega háttu
sína og drakk í sig sögu hjálpræðisins. Nú
dvelur einn af Papuan kennurum okkar hjá
því og uppfræðir það betur. Það hefur hafið
gróðursetningu fagurra garða og er að byggja
steinkirkju, sem mun rúma 300 manns, svo
að það geti boðið nágrannakynflokknum að
hlusta á boðskap kennara síns. Það hefur látið
af bardagavenjum sínum, þjófnaði og drykkju-
skap. Þegar mennirnir byggðu kirkjuna, settu
þeir timburstoð í hana, svo að hún varð skökk.
Daginn eftir rifu þeir fúslega niður það, sem
með þurfti til að rétta bygginguna við. „Líf
okkar hefur ummyndazt og við viljum ekki
hafa neitt hallandi í Guðs húsi,“ sögðu þeir.
Nemendur Taiwan trúboðsskólans eru kín-
verskir og af Tyal kynþættinum, sem býr í
fjöllunum í nágrenni skólans. Þeir hafa mik-
inn áhuga fyrir kristniboðsstarfi og eru byrj-
aðir á að uppfræða Tyal-kynþáttinn um sann-
indi Biblíunnar. Þetta starf hófst með biblíu-
lestrum með myndaútskýringum og aðhlynn-
ingu hjúkrunar- og læknaliðs skólans á sjúk-
um. W. K. Nelson biblíukennari skólans segir
frá því, að sjúkrastöð og tvær kapellur hafi
verið byggðar, þegar ár var liðið frá því að
starfið hófst, og 43 meðlimir áunnizt vegna
starfs þessara nemenda.
Kristniboðið stendur með miklum blóma á
okkar dögum. Á Hawaiieyjum er ný aðvent-