Bænavikan - 07.11.1959, Side 23
— 23 —
kirkja risin upp á strönd Oahu eynnar. Það
var fyrir tilstilli eins safnaðarbróður og konu
hans, að þessi kirkja varð til. Áður fyrr voru
þau andadýrkendur, en þau ákváðu að gerast
kristin, vegna þess að trú feðra þeirra var
þeim ónóg. Þau þjónuðu Guði eftir beztu vit-
und, þótt þau væru ekki áhangendur neinnar
sérstakrar trúarhreyfingar, og byggðu sam-
komuhús, þar sem þau og vinir þeirra gátu
tilbeðið Guð. Þá var það að aðventbóksali
fann þetta fólk. Samkomur voru haldnar, og
þegar fólkið heyrði sannleikann, tók það með
gleði við þessari nýju trú. í þakklætisskyni
við Guð, gáfu hjónin aðventkristniboðinu sam-
komuhúsið, og þannig bættist nýr hlekkur í
—------<-í«
keðju hinnar heimsvíðtæku aðventhreyfingar.
Það er sagt um kristnina, að hún sé eitt
af sterkustu öflunum í mannkynssögunni. En
hún er meira en það, hún er eitt af sterkustu
öflunum í örlögum heimsins — hinum guð-
legu örlögum. Við erum ekki aðeins áhorfend-
ur þessarar miklu krossferðar, heldur þátt-
takendur, tæki í Guðs hendi til að undirbúa
endurkomu Krists veg. Áður en þessu starfi
lýkur með sigri, verðum við að gefa allt:
bænir okkar, þjónustu okkar, æsku okkar og
fjármuni í þakklætisskyni við Guð og vegna
kærleika til meðbræðra okkar. Megi Guð gefa
okkur styrk til að gera okkar hluta.
Lestur fyrir föstudaginn 13. nóvember 1959.
„Heiminum að augnagamni“
EFTIR ANDREW C. FEARING
starfsmann hjá Aðalráði Aðventsamtakanna.
„Því að vér erum orðnir heiminum að
augnagamni, bæði englum og mönnum“ (1
Kor. 4, 9). Augnagaman er eitthvað óvenju-
legt og markvert, sem sýning er haldin á.
Orðið ,,augnagaman“ á okkar máli er þýtt
úr gríska orðinu theatron, sem táknar „leik-
sýningu" eða „sjónarsvið”. Kristnir menn eru
þess vegna sjónarsvið, athyglisverður mið-
punktur, ekki aðeins fyrir þeim, sem næst
okkur standa, heldur og alheiminum. Við er-
um eins konar sýning á því, hvernig óendan-
leg náð Guðs og endurleysandi máttur fram-
kvæmir undraverða lundernisummyndun.
„í miskunnsemi sinni og náð veldur Guð
breytingu á hjarta mannsins. Hann fram-
kvæmir svo undraverðar breytingar, að Satan
með allt sitt sjálfshól og vélráð gegn Guði
og lögum ríkis hans stendur magnþrota gagn-
vart þeim. Það er honum óleysanleg ráðgáta.
Englar Guðs, Kerúbar og Serafar og þau
máttarvöld, sem ætlað er að samstarfa með
mannlegum erindrekum, horfa með undrun
og aðdáun á hvernig fallnir menn, sem eitt
sinn voru börn reiðinnar, móta lunderni sitt
fyrir tilverknað Krists eftir guðlegri fyrir-
mynd og verða synir og dætur Guðs, sem
eiga hlutdeild í gleði og athafnasemi himins-
ins.“ Test. to Min. 10.
Við skulum líta á nokkur af þeim leyndu
öflum, sem Heilög Ritning talar um og Guð
getur göfgað og dregið fram í okkur.
Fyrirmynd. Postulinn Páll skrifar ungum
samverkamanni sínum og segir: „Sýn þig
sjálfan í öllum greinum sem fyrirmynd góðra
verka“ (Tít. 2, 7). Fyrirmynd er leiðbeining,
sem einhver hlutur er mótaður eftir, það er
eitthvað eftirbreytnisvert. Með hverri athöfn
í lífinu sýnum við eða birtum fordæmi annað