Bænavikan - 07.11.1959, Blaðsíða 27
— 27
augnabliki, því að „Drottinn mun koma öllu
vel til vegar fyrir mig.“ (Sálm. 138, 8.)
Sir Hubert von Herkomer, höggmyndasmið-
urinn frægi, hafði föður sinn hjá sér síðustu
árin, áður en gamli maðurinn dó. Á daginn
•vann faðirinn, sem líka var höggmyndsmiður,
að leirmótun, en vanmáttur stirðnaðra fingra
hans hindraði hann í að gera það, sem list
hans bauð honum. Síðar á kvöldin athugaði
sonur hans lélegan árangur hinnar þverrandi
hagleikni föður síns. Á fáeinum mínútum
fullkomnaði hann það, sem faðir hans hafði
verið að gera. Morguninn eftir leit faðirinn
yfir handaverk sín frá deginum áður. Andlit
hans ljómaði og hann hrópaði upp yfir sig:
„Sjáðu bara! Þetta er betra en ég hélt. Eg
get gert betur en é ghélt, að ég gæti gert!“
Kæru vinir, það er ekki mikið jafnvægi eða
fegurð í tilraunum okkar, en Guði séu þakkir
fyrir, að hann vill koma öllu vel til vegar fyrir
okkur strax í dag. Hinn mikli myndasmiður
biður okkur um að lofa sér að endurleysa,
endurreisa og móta okkur eftir fegurð síns
eigin lífs. Þegar við leyfum hendi hans að
snerta okkur, verðum við „heiminum að augna-
gamni, bæði englum og mönnum“.
Lestur fyrir hvíldardaginn 14. nóvember 1959.
„Heíjið upp augii yðrtr
lítitl á akranaM
EFTIR E.G.WHITE.
(Bænavikulestur hvíldardagsins 14. des. 1912),
Orð frelsarans: „Þér eruð ljós heimsins",
benda til, að hann hafi falið fylgjendum sín-
um heimsvíðtækt ætlunarverk. Á sama hátt
og geislar sólarinnar ná til yztu endimarka
jarðarinnar hefur Guð áíormað, að ljós fagn-
aðarerindisins nái til hvenar mannveru á jörð-
unni. Ef söfnuðurinn uppfyliti áform Guðs,
myndi ljós hans skína á alla þá, sem í myrkri
sitja og eru í skugga dauðans. í stað þess að
hópast saman og sneiða hjá ábyrgð og kross-
burði myndu meðlimir safnaðarins dreifa sér
út um öll lönd og láta ljós Krists lýsa út frá
sér, vinna eins og hann að frelsun sálna, og
þá mundi „boðskapurinn um ríkið“ fljótlega
berast út um allan heim.
Makedóníukallið: „Komið yfir og hjálpið
oss“ berst frá mörgum löndum. Guð hefur
opnað landsvæði fyrir okkur. Himneskar ver-
ur hafa samstarfað með mönum. Forsjón Guðs
fer fyrir okkur, og guðlegur máttur samein-
ast mannlegum tilraunum. Þeir hljóta í sann-
leika að vera blindir, sem ekki geta komið
auga á handleiðslu Guðs, og þeir heyrnarlausir,
sem ekki heyra kall hins sanna hirðis til
sauða sinna. Sumir hafa heyrt kall Guðs og
svarað því. Hver sannkristinn maður ætti að
svara honum núna með því að leitast við að
boða hinn lífgefandi boðskap. Vilji menn og
konur gegna því starfi, sem Guð hefur gefið
þeim og falið, með auðmýkt og trúmennsku,
mun guðlegur máttur opinberast og margir
veita fagnaðarerindinu viðtöku. Tilraunir
þeirra munu bera undraverðan árangur.
Guð býður fólki sínu hvarvetna í heiminum
að sá meðfram öllum vötnum. Það kostar
mikið að hlýða þessu boði. Það kostar að við