Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1940, Page 19

Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1940, Page 19
17 hi’is fyrir almenna sjúkdóma. Reykjavík á að vísu farsóttahús með 35 rúmum, en mestur hluti þeirra er notaður í þágu ríkisins fyrir berkla- sjúklinga. Á Norðurlöndum reka bæjar- og sveitarfélög almenn sjúkrahús og farsóttahús, og' er sú skylda lögð á með lögum í Svíþjóð. Alls staðar er þeirri reg'lu fylgt að ákveða dagg'jöldin mjög lág, en halli sjúkrahúsanna er síðan greiddur af almannafé. Stefna bæjar- og sveitarfélaga, er reka sjúkrahús hér á landi, er hins vegar sú, að reka beri sjúkrahúsin halla- laust, og eru því daggjöld ákveðin svo há, að líkur séu til, að það takist. Hið sama gildir vitanlega uin einkasjúkrahúsin. Um skipun sjúkrahúsamálanna má segja í stuttu máli, að sæmi- legur kostur sé á sjúkrarúmum, og hefur sú hlið málsins ráðizt allvel, en það er einkamál sjúklinganna, hversu þeim tekst að kljúfa kostnað- inn. Bæjar- og sveitarfélög'in hafa yfirleitt eigi talið sér skylt að létta þeim veruleg'a róðurinn, þótt þau hefðu á valdi sínu að gera það, en þriðjung'ur landsmanna á þess eng'an kost að hafa beina ihlutun um sjúkrahúsakostnaðinn, þar eð forsjón þeirra sér þeim eigi fyrir sjúkra- í'úmum. Af því, sem sagt hefur verið liér að framan, er ljóst, að byrðar þær, er hlutu að hvíla á einstaklingnum vegna sjúkdóma, voru næsta þungar. Þyngstar voru þær í þéttbýlinu, þar sem dýrast var að lifa, en atvinnu- skilyrði hins vegar eigi þeim nmn betri en annars staðar almennt. Þar við bæltist, að opinber aðstoð einstaklingunum lil handa vegna heilsu- leysis var þar minnst, bæði til að leita læknishjálpar og njóta umönn- unar í sjúkrahúsum. Það er því engin furða, að margir urðu að leita hjálpar annarra. Aðstoðin, sem maður gat veitt manni, hrökk skammt, þegar um var að ræða alvarleg, Iangvinn veikindi, og' því varð það æ ahnennara, að bæjar- og sveitarfélög urðu að hlaupa undir bagga. Þetta ástand var á engan hátt æskilegt eða viðunandi, og var því eðlilegt, að hugmyndin um almennar sjúkratryggingar fengi byr undir vængi. Sú hugmynd var þó ekki ný. Árið 1911 voru sett lög um sjúkrasam- lög. Samkvæmt þeim voru sjúkrasamlögin frjáls samtök, er nutu nokk- urra, opinberra fríðinda. Þau náðu þó litlum vexti, og aðeins um 5% þjóðarinnar höfðu tryggt sig í sjúkrasamlögum af frjálsum vilja árið 1936. Þetta tómlæti almennings um sjúkratryggingu spáði ekki góðu um viðhorf hans til skyldulryggingar, og bætti það ekki úr, að umræður urn rnálið lentu í ljónsgini stjórnmálaþrefs og' flokkadrátta. Árið 1936 voru sjúkratryggingar gerðar að skyldu í öllum kaupstöð- um landsins, og' náði þá tryggingin til nærri helinings landsmanna. Öðr- um sveitarfélögum var gert heimilt að stofna sjúkrasamlög með sömu réttindum til opinberra fríðinda. Nauðsyn sjúkratrygginga var óve- fengjanleg. En hitt gat verið vafamál, hversn víðtækar þær skyldu vera. Sjúkratrygging verður helzt að uppfylla tvö meginskilyrði. Hún verður að anna hlutverki sínu og' vera ódýr. Hún annar hlutverki sínu, ef sann- gjarnt hlutfall er milli fjárstyrks hennar og markmiðs. 3

x

Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins
https://timarit.is/publication/1877

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.