Heimili og skóli - 01.12.1949, Side 7

Heimili og skóli - 01.12.1949, Side 7
HEIMILI OG SKÓLI 123 um við „sett undir eftirlit“ og það all strangt. Það var gerð áætlun um, hve mikið þyrfti að prjónast á hverjum degi, svo að verkinu yrði lokið á til- settum tíma, þrátt fyrir allt. Þá var rekið miskunnarlaust eftir og vinnu- tíminn lengdur eftir þörfum, en lítið tillit tekið til veikra krafta og van- þroska. Sá skóli var harður, en var hann ekki hollur, þegar alls er gætt? Rétt er að geta tvenns í þessu sam- bandi. Hið fyrra er það, að „ætlunar- verkið“ var ekki meira en það, að því mátti svo sem hæglega Ijúka fyrir til- settan tíma með hóglegum vinnu- brögðum, ef við gættum okkar. Og svo var hitt, að okkur var heitið einu pari af sokkum, sem við, máttum sjálf kaupa fyrir, það er okkur lysti. Það var til mikils að vinna, — en bundið því skilyrði, að við liefðum skilað ætlunar- verkinu á réttum tíma. Þeir, sem kom- ust undir eftirlit, áttu hins vegar ekki víst að fá „verðlaunin“. Man ég glöggt, að þeir fengu þau ekki æfinlega, en þó stundum, en aldrei án einhverra skil- yrða, — aukaskilyrða, er þeir hinir sömu urðu að inna af hendi milli jóla og nýárs. Ég lield mér sé óhætt að full- yrða, að það barn, sem einu sinni komst í þessa kreppu, hafi ekki gleymt því í bráð og áreiðanlega gætt sín bet- ur næst. Mætti ekki eitthvað af þessu læra? Loksins komu svo jólin. Strax á að- fangadagsmorgni varð jólanna vart, fannst okkur krökkunum. Aldrei þessu vant logaði á kerti hér og þar um bæinn, þegar við komum á fætur. Ljóss var víða þörf, og víðar en venju- leg ljósker hrukku til. Þá var gripið til kertanna. En hvað blessað kertaljósið setti hátíðlegan blæ á gamla, kalda bæ- inn! Fátt hefur snortið mig öllu dýpra en ljósadýrðin á jólunum, þegar ég var barn. Hún var ekki stór né rík- mannleg, litla baðstofan, og dimm var hún hversdagslega í skammdeginu, — en barnshjartanu fannst hún verða höll, þegar búið var að kveikja jóla- ljósin. Ég man þetta eins glöggt eins og það hefði gerzt í gær: I rökkrinu kom húsbóndinn með „kertastikurn- ar“. Það voru þunnar fjalir, sem gerð- ar voru oddhvassar í annan endann og var þeim endanum svo stungið inn í þar til gerð göt á þiljunum, hring í kring í baðstofunni. Á fjalirnar voru svo kertin brædd. Þau voru heima unnin, úr tólg. Ekki man ég með vissu, hve mörg ljós loguðu í litlu baðstof- unni meðan lesinn var lesturinn á jólanóttina, en færri en 30 hafa þau varla verið. Húsbóndinn, sem jafnan las lesturinn, sat við stórt borð. Mig minnir, að dúkur væri jafnan á það breiddur og nokkur kerti voru á því. Fólkið sat á rúmum sínum, meira og minna prúðbúið. Söngurinn hófst, Jólin voru komin. Til hátíðabrigðis voru oft 2 sálmar sungnir á undan og og versið: Heilög jól höldum í nafni Krists milli guðspjalls og predikunar- innar fhúslestursins). Á eftir var venjulega sungið: Heims um ból og: Sjá, himins opnast hlið. Sá sálmur var í miklum metum þá, og jafnvel meiri en nú gerist, enda eftir gamlan prest húsbænda minna og foreldra. — Mér eru þær ógleymanlegar, heimilisguðs- þjónusturnar á aðfangadagskvöldin í litlu baðstofunni, þegar ég var barn. Þá söng ég ekki fyrir siðasakir:

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.