Heimili og skóli - 01.10.1962, Blaðsíða 4

Heimili og skóli - 01.10.1962, Blaðsíða 4
„HÉR KOM ÍSLENZKT AFL, SEM HÓF UPP ÚR JÖRÐU STEININN“ STEPHAN G. STEPHANSSON 500 mannamyndir prýða bókina, sem er 484 blaðsíður með 455 æviskrám og samtals 6615 mannanöfnum. — Bókhlöðuverð kr. 480.00. Útgáfa Vestur-íslenzkra æviskráa þjónar tvenns konar tilgangi. Annars vegar er þar skjalfestur og um leið gerður heyrin kunnur á fslandi nokkur þáttur af þeirri sögu, sem landar vorir hafa skapað í Vesturheimi, og gefið sýnishom af þeirri þjóðfélagsaðstöðu, sem þeír hafa skapað sér, þar sem þar er getið starfa og stöðu mikils fjölda manna af íslenzkum stofni. Á hinn bóg- inn á bókin að skapa möguleika á, að koma á fót bein- um persónulegum kynnum á miH1 manna yfir hafið. Ættfærslur til manna \ á íslandi gera mönnum hér heima kleift að hafa upp á ættmennum sínum vestra, og þeim vestan hafs gefur hún einnig möguleika til að leita uppi frændur á íslandi. Þannig geta skapazt ný tengsl á milli þjóðanna. Umfram allt er rit þetta mikilvægt tillag til íslenzkrar ættfræði og per- sónusögu, og það hefur mikið þjóðemislegt gildi. VESTUR-ÍSLENZKAR ÆVISKRÁR eftir Benjamín Kristjánsson ættu sem flestir að reyna að eignast og not- færa sér sem lykil til aukinna samskipta milli íslendinga austan hafs og vestan. BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.