Heimili og skóli - 01.10.1962, Blaðsíða 11

Heimili og skóli - 01.10.1962, Blaðsíða 11
HEIMILI OG SKÓLI 111 Sk riftamál föáur Ég hefi hugsað mér að endursegja hér smágrein, sem fyrst birtist fyrir 40 árum í amerísku tímariti, og á þessum árum síðan í hundruðum ann- arra tímarita. Grein þessi segir frá skriftamálum föður yfir litlum, sof- andi syni, smámynd, dregin í flýti, á stundu djúpra, innilegra tilfinninga, og fær samhljóm í brjósti fjölda feðra. Leiksviðið er barnaherbergi. Þar ligg- ur sofandi sveinn og við rúm hans situr faðirinn. Og í mjög styttu máli hljóðar játning hans á þessa leið: „Drengurinn minn! Ég vil tala of- urlítið við þig, meðan þú liggur hér og sefur. iÞegar ég, fyrir nokkrum mín- útum síðan, sat í vinnustofu minni og las í dagblaðinu, greip mig hræðilegt samvizkubit. Og nú skaltu fá að vita, hvað ég hugsaði: Ég hefi ekki komið vel fram við þig upp á síðkastið. Þegar þú klæddir þig i morgun, ávítaði ég þig fyrir það, að þú aðeins brást þvottaklútnum -yfir -andlitið,- í -stað þess að þvo þér rækilega. Ég skammaði þig, af því að þú hafðir ekki burstað tennurnar. Ég argaði í þig, þegar þú kastaðir dótinu þínu á gólfið. Við morgunverðarborðið kom ég líka með ýmsar athugasemdir. Þú helltir ofan á dúkinn. Þú gleyptir í þig matinn. Þú varst með olnbogana uppi á borðinu. Og þegar þú síðan lagðir af stað til þess að hitta félaga þína, leizt þú við og kallaðir: „Bless, pabbi." En ég svaraði með því að gefa þér illt auga og hrópa: ,Réttu úr þér, strákur ‘ Þegar ég svo kom heinr frá vinn- unni, byrjaði sama sagan. Þegar ég hitti þig á götunni auðmýkti ég þig með því að finna að við þig í áheyrn félaga þinna. Ég ávítaði þig fyrir að óhreinka fötin þín. Og nranstu svo, seinna um daginn, er ég sat og las inni í vinnustofu minni, að þú komst þar að, eitthvað miður þín og ein- manalegur. Þegar ég leit upp yfir blað- ið, gramur vegna þessarar truflunar við lesturinn, namst þú staðar innan við dyrnar og hikaðir. ,Hvað viltu nú?‘, hreytti ég út úr mér, óþolinmóð- ur. Þú svaraðir ekki, en svo tókst þú allt í einu sprettinn til mín, vafðir af barnslegum ákafa handleggjunum um háls mér og kysstir mig. Armarn ir þínir litlu þrýstu svo fast og þétt, — í einlægni og trausti —, og síðan hvarfst þú hingað inn til að sofa. Já, vinur minn litli, ég hefi verið sjúklega hótfyndinn, alltaf að ávíta og nöldra. Það eru þakkirnar fyrir það, að þú hefir verið sannur, eðlilegur drengur. Það var ekki vegna þess ,að ég elskaði þig ekki, heldur var það hitt, að ég krafðist of mikils af þér, svo litlum, sem þú ert. En á morgun skal ég vera pabbi, eins og pabbi drengja á að vera. Ég skal vera félagi þinn, hryggjast, þegar þú ert hryggur, gleðjast, er þú gleðst. Þegar óþolin- mæði mín ætlar að brjótast út í orð- um, skal ég bíta mig í tunguna og

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.