Heimili og skóli - 01.10.1962, Page 12

Heimili og skóli - 01.10.1962, Page 12
112 HEIMILI OG SKÓLI Hinn Iiættulegi Ieikur móáur og barns EFTIR RASMUS JAKOBSEN SKÓLASÁLFRÆÐING Við sjáum nálega á hverjum degi dæmi upp á það, sem ég vil kalla hinn „hættulega leik“ milli móður og barns. Við kynnumst í sporvögnunum barninu, sem ýmist vill sitja, standa eða hlaupa fram og aftur um vagninn. Síðan vill það sitja við hlið móður sinnar, því næst í kjöltu hennar eða fyrir aftan hana í sætinu og þar næst krjúpa. Við kynnumst einnig móður- inni og viðbrögðum hennar. iÞar linnir ekki umvöndunum og áminningum: Sittu nú fallega — gættu þess nú að sparka ekki í konuna — stattu nú kyrr — gættu þess að detta ekki — hagaðu þér nú ekki illa, annars kemur lestar- þjónninn (konduktören) og klippir í eyrað á þér með tönginni sinni. Það er oft greinilegt að þetta eirðarleysi barnsins stafar ekki af eðlilegri hreyfi- þörf, heldur er barnið hér að leika sér að móður sinni og taugum hennar, og þessi leikur verður því eftirsóknar- verðari, sem hann gefur meiri árang- ur. Þetta erfiði barnsins endar alltaf með því að móðirin, nauðug viljug fer að taka þátt í leiknum. Þá verðum við oft áheyrendur að eins konar spurningaeinvígi milli barns og móður. í fyrstu svarar móð- irin öllum spurningum barnsins á stöðva þau. Og alltaf skal ég segja við sjálfan mig: ,Hann er nú bara dreng- ur, lítill drengur.“ Jónas Jónsson frá Brekknakoti þýddi. eðlilegan hátt og vill með því gefa meðfarþegum sínum í vagninum þá hugmynd, að hér sé um sérstaklega áhugasamt og gáfað barn að ræða, sem á skynsama og uppeldisfræðilega menntaða móður, og þau lifi mjög innilegu samlífi. En sú gríma endist oft ekki ekki nema á milli nokkurra biðstöðva. Þá kemur annar tónn: — Það veit ég ekki — reyndu nú að þegja — hættu þessum heimsku spurningum — láttu mig nú í friði. En við hin, sem í vagninum erum, höfum þegar upp- götvað, að barnið spyr ekki af áhuga á þessu eða hinu, heldur er spurningin þessi: Hve langt get ég komist? Það er að æfa leik, sem það hefur lært fyrir löngu og er alltaf að gera fullkomnari. Á götunni sjáum við þennan sama leik. Sum born hafa náð mikilli tækni í því, sem kalla mætti „að fylgjast með mömmu“. Nokkur böm. eru alltaf langt á undan. Þau þurfa helzt að gægjast inn um öll hlið og alla búðar- glugga og allar hliðargötur. Þau virð- ast hafa mestu andúð á að leggja leið sína eftir gangstéttunum. Móðirin kemur venjulega lafmóð og óttaslegin á eftir, reiðubúin til að halda langa siðapredikun á hinu hentuga andar- taki er hún nær barninu, og stundum heyrum við brot úr þessari ræðu: — lífshættulegt — getur týnzt — orðið fyrir bíl — fara á spítala — lögreglan —. En auðsjáanlega hafa allar þessar áminningar ekki önnur áhrif en þau, að barnið reynir að komast úr talfæri

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.