Heimili og skóli - 01.10.1962, Blaðsíða 16

Heimili og skóli - 01.10.1962, Blaðsíða 16
116 HEIMILI OG SKÓLI Svo kemur auðvitað að því, að barn- ið brýtur fyrsta bollann eða diskinn. Og áður en það lærir að umgangast hlutina og fara með þá eins og við á, má búast við að margt verði brotið og skemmt. 'Þegar barnið fer að skríða eða ganga, hefur það mikla þörf fyrir að gefa at- hafnaþörfinni útrás svo að kraftarnir fái einhver verkefni. Þá er byrjað á því að flytja öll húsgögnin, það veldur há- vaða og truflun. Forvitnin og löngun- in til að reyna eitthvað nýtt, eða hvað við eigum að kalla það, kemur barn- inu til að taka bækur föður sins út úr bókaskápnum og hafa hönd á öðrum girnilegum hlutum. Öll þessi athafna- semi getur verið hræðilega ertandi og þreytandi. Hún getur einnig haft í för með sér ýmis útgjöld. En við verðum að gera okkur það fullkomlega ljóst, að ekkert af þessu gerir barnið, að minnsta kosti í fyrstu, af stríðni eða öðrum illum hvötum. En þótt mæð- urnar, við rólega athugun, viti þetta og skilji, breyta þær oft, því miður, eins og þær þekktu ekki þessa auð- skildu staðreynd. Mörg móðir breytir oft við barnið sitt, undir þessum kring- umstæðum, eins og þetta væri aðeins gert í þeim tilgangi að særa móðurina og vinna skemmdarverk á heimilinu. Móðirin svarar þessum aðgerðum barnsins því með aðfinnslum, ásökun- um og siðaprédikunum. En þetta er alveg tilgangslaust, því að litla barnið skilur ekki slík viðbrögð. Það veit ekki hvað það er að vera vondur og ó- artarlegur, og það væri bezt að það fengi aldrei að vita það. En einmitt af þessum viðbrögðum móðurinnar fær barnið að vita hvernig það á að fara að því að erta hana og koma henni úr jafnvægi. Og þá er stríðið hafið. Barn- ið verður æ matvandara og uppástönd- ugra. Það fussar og sveiar við flestum mat. Það verður sífellt handóðara og missir allt úr höndum sér, sem það snertir á, það verður eirðarlaust og flögrandi, og þó gerist ekkert af þessu í raun og veru af ásettu ráði. Því er naumast ljóst, hvernig það hagar sér og leikur á taugar móðurinnar. Það er ekki að furða þótt svona börn séu erf- ið. En við verðum að muna, að þetta allt er gert meira og minna „að gefnu tilefni". Barnið fæðist ekki stríðið eða ertandi, og fyrstu tilburðirnir í þá átt hafa aldrei þann tilgang að erta móð- urina eða stríða henni. Börnin byrja aldrei á slíku fyrr en foreldrarnir hafa óbeint sýnt þeim, hvemig á að fara að því. Það, sem móðirin getur gert til að koma í veg fyrir að hinn „hættulegi leikur" hefjist nokkurn tíma með allri þeirri ógæfu, sem lionum fylgir, er að missa aldrei stjórn á skapi sínu láta aldrei koma sér úr jafnvægi, hvað sem fyrir kann að koma í sambúð barns og móður. Og þó henni renni í skap, má barnið helzt aldrei verða þess vart. Ef barnið vill ekki borða þann mat, sem því er boðinn verður að reyna að kom- ast að því, hvers vegna það vill ekki borða hann. Brjóti það bolla eða disk, verðum við að reyna að skilja, að það var óhjákvæmileg afleiðing af ein- hverju, sem var að gerast þessa stund- ina. Ef það tekur bækur föðurs síns út úr bókaskápnum, verður að reyna að hindra það með einhverjum skynsam- legum ráðum og með rólegum aðgerð- um.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.