Heimili og skóli - 01.06.1971, Page 13
áætluð vera um 210, en nú eru um 70 sér-
kennarar á öllu landinu. Það liggur í aug-
um uppi að enn vantar mikið á.
— Hefur þú hug á frekara sérnámi?
— Eg hef mikinn áhuga á því að ljúka
seinni hluta þessa náms í Noregi, en það er
ekki hlaupið að því.
— Nokkur álitsorð að lokum?
— Það er vitað mál, að fyrstu æviárin
skipta manninn svo ótrúlega miklu máli.
Því finnst mér að auka þyrfti ungbarna-
vernd og fræða fólk um mikilvægi fyrstu ár-
anna.
— Mjög margar mæður þurfa að vinna
úti og vera frá börnum sínum jafnvel állan
liðlangan daginn. Því er nauðsynlegt að
dagheimili og leikskólar séu í námunda við
vinnustaði og þar starfi sérmenntað fólk.
— Skipuleggja þarf betra fóstrunarkeríi
og stofna fósturheimili í stað hæla, en þau
verða alltaf líkari heimilum.
— Víða eru aðstæður þannig, að enginn
er heima, þegar börnin koma úr skólanum.
Þessi börn þyrftu athvarf, þegar skóla lýk-
ur. Þá aðstöðu ætti að vera hægt að skapa í
skólunum sjálfum.
Við Þökkum Kristínu Aðalsteinsdóttur
svörin og væntum þess að sérþekking henn-
ar verði mörgum nemandanum til hagsbót-
ar. Skólana vantar mjög sérmenntað fólk t.il
þess að hjálpa börnum, er ekki geta notið
hópkennslu. Sum þessara barna gætu komizt
töluvert áleiðis í námi með smávegis aðstoð,
en önnur verða að njóta mikillar sérkennslu
öll sín skólaár, ef gera á þau læs og skrif-
andi.
Einstaklingskennsla svo og kennsla lítilla
hópa, er þjóðfélaginu dýr, en dýrara er að
sinna ekki þessum ungu borgurum og valda
því að þeir verða utangátta í þjóðfélaginu
og alls ófærir um að uppfylla þær kröfur er
það gerir til þegna sinna.
Ijitln söngvararnir
ÞAÐ rigndi í nótt. Ég leit út á húslóðina og
sá þar fimm þresti vera að tína ánamaðka.
Þeir koma hingað alltaf þegar rignir og tína
ánamaðka á norðurlóðinni. Þar er mest af
þeim.
I sumar hafa venjulega verið hér tveir
þrestir. Þeir áttu hreiður í tré í næsta húsi.
Þeir eru svo gæfir, að þeir hreyfa sig ekki,
þó að heimilisfólkið gangi um stéttina.
En þegar frost og snjóar koma, þá verða
þrestirnir að treysta á reyniberin og hjálp
mannanna. Nú eru það ekki aðeins snjótittl-
ingarnir, sem leita heim að mannabústöðum
til að seðja hungur sitt. Þrestirnir hafa bætzt
í þann hóp og eru stundum aðgangsfrekir
við minni meðbræður sína.
Foreldrar! Minnið börnin ykkar á að
hjálpa þessum litlu söngvurum, þegar
harðnar að í vetur.
E.
HEIMILI OG SKÓLI
57