Heimili og skóli - 01.06.1971, Blaðsíða 28

Heimili og skóli - 01.06.1971, Blaðsíða 28
undarlegustu stellingar. Líkamlega þroskast þeir seint, fara kannski ekki að ganga fyrr en tveggja til þriggja ára gamlir. Mongólidar eru sá hópur vangefinna barna, sem einna auðveldastur er í um- gengni. Námshæfni þeirra er nokkur, þeir læra einföld störf, og sumir þeirra geta jafnvel lært að lesa. Lesturinn verður þó mjög vélrænn og skilningur þeirra á les- efninu lítill. 2. Heilahimnubólga, heilabólga, mjög hár hiti á fyrstu ævivikum barnsins (s. s. mislingum) geta valdið skemmd í heila og fávitahætti. Sama er að segja um fæðingar- áverka. Helztu einkenni, sem fram koma við beilaskemmd, eru lélegur hreyfiþroski. Hreyfingar allar eru stirðlegar og talsvert ber á einkennilegum, ósjálfráðum hreyf- ingum. Einbeitingarhæfni er mjög léleg og þau verða mjög auðveldlega fyrir truflun- um. Þessi börn eiga erfitt með að skilja at- burðarás og samhengi hlutanna og geta tæplega hugsað í heildum. Algeng afleiðing heilaskemmdar er floga- veiki. Algengast er, að ekki fari að bera á henni fyrr en barnið er orðið um þriggja ára. Fyrstu einkenni flogaveikinnar eru oft þau, að barnið fær hitakrampa, sem síðan breyt- ist í venjulega krampa án þess að hiti hækki. Oft gera flogin boð á undan sér með slappleika, höfuðverk og ógleði, en van- gefnir flogaveikissjúklingar gera sér yfir- leitt ekki grein fyrir því, að krampakast sé í aðsigi. Krampinn stendur mismunandi lengi yfir, allt frá nokkrum sekúndum upp í örfáar mínútur. Meðan krampinn stendur yfir verður sjúklingnum mjög þungt um andardrátt og 72 liann dökknar í andliti eins og honum liggi við köfnun. Slím freyðir um munn hans og honum hættir til að bíta sig í tunguna. Ekki er hægt að stöðva krampann eftir að hann er byrjaður og vara skal þá, sem umgangast krampasjúklinga við því, að reyna á nokk- urn hátt að stöðva hinar ósjálfráðu hreyí- ingar sjúklingsins, en fjarlægja þá hluti, sem hann ef til vill gæti meitt sig á. Eftir að kastið er liðið hjá er sjúklingur- inn oft mjög máttfarinn og sofnar þá oft og sefur í nokkurn tíma. Ef köstin standa lengi yfir, geta heila- frumur eyðilagst vegna súrefnisskorts, en heilafrumur endurnýjast ekki aftur eins og aðrar frumur líkamans. Margir þessara sjúklinga sljóvgast því með aldrinum. Ekki er hægt að lækna flogaveiki nema hún stafi af heilaæxli eða skemmd í heila, sem hægt er að fjarlægja með skurðaðgerð, en til eru lyf, sem haldið geta krampanum í skefjum eða fækkað köstum til muna. 3. Heilalömun (cerebal parese) stafar af skemmd í heila og er oft samfara fávita- hætti. Margir heilalömunarsjúklingar hafa þó óskerta greind. Aðaleinkenni er lömun þeirra tauga, sem stjórna sjálfráðum hreyf- ingum, sérstaklega hreyfingum útlima. Vöðvar allir verða mjög stífir og hreyfingar erfiðar. Stundum er stífleiki þessi einungis bundinn einum útlim, en nær stundum til allra útlima, allt eftir því hvar skemmdin er í heilanum og hversu mikil hún er. Oft er heyrn þessara sjúklinga léleg og málfar óskýrt vegna erfiðleika í stjórn tal- vöðva. Sumir þessara sjúklinga geta haft nokkurt gagn af sjúkraþjálfun og talkennsla er þeim nauðsynleg í mörgum tilfellum. HEIMILI OG SKOLl

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.