Heimili og skóli - 01.06.1971, Blaðsíða 15
Stefánssonar skólameistara. Þá var sam-
þykkt tillaga um stofnun kennarafélags.
Næst var rætt um frumvarp til laga fyrir
félagið og samþykkt á fundinum. Fyrstu
tvær greinar laganna voru svohljóðandi:
1. Grein. Félagið heitir Kennarafélagið
á Akureyri.
2. grein. Tilgangur félagsins er að koma
á og efla föst samtök og samvinnu með-
al kennara, þeim til andlegra og efna-
legra hagsbóta og skólum og kennslu-
málum yfirleitt til stuðnings, og stöð-
ugra endurbóta, samkvæmt kröfum
tímans og eftir því sem reynsla og at-
hugun benda til. — Félagið vill einnig
vinna að því, að samskonar félags-
skapur komist á um allt Norðurland,
er síðar verði liður í einu allsherjar
kennarasambandi, er hafi sama mark-
mið.
Þarna kemur fram hugmyndin að stofn-
un Sambands íslenzkra barnakennara, sem
komst í framkvæmd fjórum árum síðar.
Fjórða mál á dagskrá fundarins eftir að
lögin höfðu verið samþykkt var um „Ymis
atriði úr frœðslulögunum“, og hafði Hall-
dóra Bjarnadóttir framsögu. Hún las upp
símskeyti um launakjör kennara, samkvæmt
lagafrumvarpi, sem lagt var fyrir þingið,
og fólust í því talsverðar hækkanir. Skóla-
stjóri kaupstaðaskóla átti að hafa í byrjun-
arlaun 2000 krónur, sem hækkaði alls
upp í 3000 krónur fyrir veturinn, utan kaup-
staða 1500 krónur, sem hækkaði uppí 2500
ki'ónur, kennarar kaupstaðaskóla 1500 kr.,
sem hækkuðu uppí 2500 kr., utan kaup-
staða 1200 krónur, sem hækkuðu uppí
1800 kr. og farkennarar 300 kr., sem hækk-
uðu uppí 600 kr. yfir veturinn og allt frítt.
Allt miðað við 6 mánaða kennslu. I þetta
mál var kosin 5 manna nefnd.
Fimmta mál fundarins var um lesbækur,
skrifbœkur og réttritun. Páll J. Ardal hóf
umi-æður um það mál. Og stærsta frarh-
kvæmd þessa félags var síðar einmitt í sam-
bandi við þetta mál.
Fundurinn hafði byrjað klukkan 1 og var
gefið fundarhlé klukkan 6. Eftir fundar-
hléið voru ræddar tillögur frá nefndum.
Sjötta mál fundarins var um kennara-
náfiiskeið. Kristbjöi'g Jónatansdóttir var
frummælandi að því. Taldi hún heppilegt,
að kennaranámskeið yrðu haldin hér á
Norðurlandi.
Þá var kosin stjórn félagsins. I hana voru
kosin:
Stefán Stefánsson, skólameistari, form.
Ingimar Eydal, kennari, ritari.
Halldóra Bjarnadóttir, skólastýra, féh.
Síðasta mál þessa stofnfundar var:
Tóbakssala til barna. Aðalbjörg Sigurðax--
dóttir hafði framsögu og lagði fram tillögu
þess efnis, að lagt yrði fyrir Alþingi frum-
varpa til laga, er banni að selja tóbak börn-
um og unglingum innan 16 ára.
Það mál, sem síðast var á dagskránni,
styrktarsjóður kennara, vannst ekki tími til
að ræða að þessu sinni.
A þessu yfirliti er hægt að sjá, að næg
voru málefni til umræðu á þessum fundi
Kennarafélagsins og fundurinn vel undir-
búinn. Þarna var rætt um launamál, les-;
bækur og skrifbækur, kennaranámskeið,
stofnun sambands fyrir kennarasamtökin og
vísi að lífeyrissjóð kennara. Þeim var ljóst,
sem þarna komu saman, að þetta yrðu aðal-
viðfangsefni kennarasamtakanna á næstu
árum.
HEIMILI OG SKÓLI
59