Heimili og skóli - 01.06.1971, Síða 19
gagnlegt í sambandi við barnafræðsluna í
bænum.
Félag þetta var endurvakið á ný 9 árum
síðar, 1931, með stofnun „Félags barna-
kennara við Eyjafjörð“ fyrir forgöngu
Snorra Sigfússonar. Nú voru framhalds-
skólakennarar ekki með í félaginu. En ekki
er Kennarafélag Eyjafjarðar hér til um-
ræðu, þó að saga þess sé ekki síður mark-
verð. Kennarafélagið á Akureyri átti stutta
sögu en merka og á það skilið á aldarafmæli
almennrar barnafræðslu á Akureyri að
starfs þess sé minnzt.
Til gamons
Kunningjar urðu sammála um að annar þeirra
lánaði hinum peninga.
— Segðu bara ekki konunni minni, að ég hafi
fengið peninga að láni hjá þér.
— Þú mátt heldur ekki segja minni konu, að
ég hafi lánað þér peningana.
★
Orðheppinn maður komst einu sinni svo að
orði:
— Þegar ég sé kvenfólk kyssast, dettur mér
ávallt í hug glímumenn, sem takast í hendur, áður
en viðureignin hefst.
★
— Hvernig lízt þér á þessa Ijósmynd af kon-
unni minni?
— Ágaetlega. Þetta mun vera augnabliksmynd.
— Af hverju heldurðu það?
— Jú, munnurinn á henni er lokaður.
★
Siggi ferðalangur var að koma heim eftir að
hafa dvalið mörg ár erlendis, m. a. hafði hann
imnið í leikhúsi.
— En ég hélt það ekki lengur út en í fimm
mánuði, því ég var í svo erfiðu hlutverki, sagði
hann við vinkonu sína. — Ég gat ekki orðið setið.
— Hvað segirðu, og hvað lékstu?
— Það var í revíu, og ég lék afturhluta af asna.
En kunningi minn, sem lék framhlutann, var allt-
af að kankast við dansmeyjarnar, en þá fékk asn-
inn alltaf duglegt spark í bakhlutann.
★
Drengur, þriggja ára gamall, hafði mikinn
áhuga á að læra mannasiði. Einu sinni, þegar
hann var að koma úr heimhoði frá vinkonu sinni,
segir hann:
— Heyrðu, mamma, ég ropaði hjá henni frú
Ástu. Hvort átti ég að segja, verði þér að góðu,
eða guð hjálpi mér?
★
Mamma hafði keypt sér nýjan borðdúk. Hún
varð að víkja sér frá stundarkorn og skildi Stínu
litlu eftir inni í stofu. Stína var ekki nema fimm
ára. Þegar mamma kom aftur, hafði Stina klippt
stórt gat á dúkinn. Mömmu varð skapbrátt.
— Stína, gerðirðu þetta með fullu viti, hróp-
aði hún.
— Nei, ég gerði það með skærum. sagði
Stína.
HEIMILI OG SKÓLI
63