Læknaneminn - 01.10.1956, Side 11
LÆKNANEMINN
11
an hverfur, og hafa athuganir á
lifrarvef frá sjúklingum í aftur-
bata sýnt, að bólgubreytingar
finnast í lifrinni mörgum vikum
og jafnvel mánuðum þar á eftir.
Einnig hafa rannsóknir sýnt, að
í gulusótt eru vefjabreytingar svo
að segja eins, hvort sem um er
að ræða sjúklinga í faraldri eða
sjúklinga með serum hepatitis.
Þess var áður getið, að sjúkling-
ar næðu sér í flestum tilfellum full-
komlega eftir gulusótt. Hinsveg-
ar dregst sjúkdómurinn stundum
á langinn, svo að einkenni haldast
mánuðum saman. Enda þótt dauðs.
föll séu mjög fátíð, getur sjúk-
dómurinn þó endað með dauða.
í grein í Am. Journal of Patho-
logy frá árinu 1944, lýsir Luc-
ke(12) breytingum, sem fundust
við krufningu á nokkrum sjúkling-
um, er látizt höfðu úr gulusótt.
Mun ég í stuttu máli rekja nokk-
uð af því helzta, sem hann fann.
Athuganir hans ná til 125 tilfella.
Ávallt fundust breytingar í lifur,
sem svöruðu til þess, er nefnt hefir
verið idiopatisk gul eða rauð lifr-
aratrophi. Þegar litið er á lifrina,
er hún í flestum tilfellum greini-
lega minnkuð og oft aðeins helm-
ingur af eðlilegri stærð. Þunginn
er venjulega milli 800 og 1200 gr.
Þó koma fyrir tilfelli, þar sem
lifrin er af eðlilegum þunga.
Yfirborð lifrarinnar er venjulega
slétt eða örlítið hrukkótt, ef sjúk-
dómurinn hefir staðið stutt, og
litabreytingar ógreinilegar. Hafi
sjúkdómurinn staðið lengur, koma
fram gulgrænir hnútar, er geta
líkzt æxlum og skaga út á yfir-
borðið hér og þar, en á milli er
yfirborðið ýmist rauð- eða grá-
leitt. í þverskurði sést, að út-
breiðsla skemmdanna er mjög ó-
regluleg, þannig að stórir, rauðir,
kjötkenndir flákar skiptast á við
órelulega, ljósgula flekki, sem
gjarna eru galllitaðir. Þessir gulu
blettir eru misstórir, allt frá smá-
hnútum og upp í samfelldar breið-
ur, sem þá ná stundum yfir mest-
alla lifrina.
Við smásjárskoðun á hinum
rauðleita, kjötkennda vef, er ekki
unnt að greina neinar lifrarfrum-
ur. (Sbr. 3. mynd). Þó sést votta
fyrir útlínum lifrar lobuli, þar sem
nokkur gallgangnaaukning er á
mörkunum. Hinsvegar eyðast reti-
culumþræðir ekki og reticulum net
lifrar lobuli sést ■ greinilega, enda
þótt möskvar þess séu víða sam-
anfallnir og einstaka reticulum-
þræðir nokkuð í þykkara lagi.
(Sbr. 4. mynd). Um þráðanet
þetta eru dreifðir lymphocytar,
plasmafrumur, granulocytar og
macrophagar. Við eyðingu lifrar-
frumanna falla lifrar lobuli sam-
an, en eins og áður sagði, er bólgu-
frumuíferð mjögáberandi í möskv-
um reticulum netsins. Þessi eyð-
3. mynd....