Læknaneminn - 01.10.1956, Qupperneq 24
LÆKNANEMINN
LÆKNA NEMINN
BLAÐ FÉLAGS LÆKNANEMA
Ritnefnd:
Hrafn Tulinius, ritstj.
Þórarinn Ólafsson.
Þórey J. Sigurjónsdóttir.
Auglýsingar:
Edda Björnsdóttir.
Kristján Baldvinsson.
Oddur Bjarnason.
Frá rítnsfndinni
Um leið og nýkjörin ritnefnd
tekur við ritstjórn þessa blaðs,
vill hún láta það verða sitt fyrsta
verk, að þakka síðustu ritnefnd
ágætlega unnin störf. Það liggur
við borð, að okkur þyki síðustu
tvær ritnefndir hafa verið of dug-
legar. Samanburðurinn verður ef
til vill óþægilegur. Hvað um það,
við reynum að gera okkar bezta,
og væntum mikillar og góðrar
samvinnu meðstúdenta okkar.
Við teljum okkur geta treyst á
hina ágætustu hjálp, ef dæma má
eftir þeim viðtökum, sem við þeg-
ar höfum fengið, hvar sem við
höfum borið niður eftir efni eða
aðstoð. Við höfum ekki í hyggju
að gera neinar róttækar breyt-
ingar á formi eða stærð blaðsins,
heldur viljum við reyna að halda
í horfinu og feta þann veg, sem
þegar hefur verið markaður. Eina
nýjung má þó geta um, en það er
þátttaka tannlæknanema. Síðasta
ritnefnd reifaði málið við þá, og
höfum við rætt við formann Fé-
lags tannlæknanema. Það hefur
verið fastmælum bundið. að þeir
birti eitthvað efni í hverju blaði
og í fyrsta sinn í næsta tölublaði.
Annar fastur þáttur verður Skák-
þátturinn og hefur Guðjón Sigur-
karlsson tekið að sér að sjá um
hann.
Sérstaklega viljum við þakka
Ólafi Bjarnasyni lækni fyrir ágæta
ritgerð hans og þá velvild, að leyfa
okkur birtingu á henni.
Úr gömlum hygienuglósum.
Fyrsta vatnssalerni var hjá
Wathne á Seyðisfirði 1895. Næst
í ráðherrabústaðnum í Reykjavík
1906. 3. í Vestmannaeyjum 1908.
Hugsast getur, að minna promi-
nent persónur hafi komið þarna
inn í án þess að það vekti athygli.
Háfjallasólir
Og
Gigtarlampar
(ORIGINAL HANNAU)
Höfum viff ávallt fyrirliggjandi.
Ennfremur allar
HJÚKRUNAR — SNYRTI
OG HREINLÆTISVÖRUR
HOLTS APÓTEK